Þjóðmál - 01.12.2016, Page 70
SMÁÞJÓÐIR OG UMHEIMURINN
■■‘W&f'í'K . ' 'i : * •• .* ' • • •;. . ?V : ' ; Bankahrunið 2008 varð íslensku þjóðinni meira siðferðilegt en fjárhagslegt áfall. Hún missti sjálfstraustið, og Anrje Sibert og '■•. . Baldur Þórhallsson, sem töldu smáriki eins og Island ekki geta y.g".: fjfi, staðið á eigin fótum, fengu skyndilega nokkrar undirtektir. v'.'j i<sn.. ^'!•''•'•*•!•*•*. •J'r.
'• i- fV ' 'ý:V; • l-Ú' •
.’ ./■• :, ' :r V' y* * —•
• •» V* *•; v 4 »
J 1 }] II m v
10 4 Mynd: Kjartan Þorbjörnsson *
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Til varnar smáþjóðum
Eftir bankahrunið íslenska haustið 2008
reyndu sumirfræðimenn að rökstyðja, að
Island væri of lítil eining til að fá staðist, og
voru þar fremstir í flokki prófessorarnir Anne
Sibert og Baldur Þórhallsson.1 ísland þyrfti
skjól. Virtust þau Sibert og Baldur bæði telja
slíkt skjól helst að finna í Evrópusamband-
inu. Þessi skoðun á smáþjóðum er gamal-
kunnug. Karl Marx og Friðrik Engels töluðu
af lítilsvirðingu um fslendinga og aðrar
fámennar útkjálkaþjóðir, sem yrðu að víkja
fyrir sögulegri nauðsyn.2 Þótt danski rit-
skýrandinn Georg Brandes væri vinsamlegur
íslendingum, skopaðist hann árið 1906 að
sjálfstæðistilburðum þeirra: Þeiráttu ber-
sýnilega að hans dómi að vera skemmtileg,
skrýtin útkjálkaþjóð innan Danaveldis, sem
halda mátti skálaræður um og rétta dúsur.3
Breski sagnfræðingurinn Alfred Cobban gerði
árið 1944 lítið úr sjálfstæðiskröfum smáþjóða.
Nefndi hann meðal annars Hvíta-Rússland,
Flandur og „Franska Kanada", eins og hann
kallaði Quebec, og spurði, hvort Malta væri
betur sett í samskiptum við granna sína í
Miðjarðarhafi án tengsla við Breta eða hvort
íslendingar gætu komist af án efnahagslegra
tengsla við sér fjölmennari og ríkari þjóðir.
Cobban mælti hér að vísu ekki spámannlega,
því að Hvíta-Rússland og Malta eru orðin
sjálfstæð ríki og öflugar sjálfstæðishreyfingar
starfa í Flandri og Quebec. Ef til vill eru raddir
gegn sjálfstæði fslands líka orðnar lágværari
nú, þegar eyjan hvíta dafnar vonum framar
og alvarleg innanmein eru komin í Ijós í
Evrópusambandinu og Bretar að segja skilið
við það. En þó er ómaksins vert að skoða
nánar röksemdirnar fyrir því, að smáþjóðum
sé um megn að halda uppi sjálfstæðu ríki.
Grænland og ísland
Prófessor Anne Sibert setur röksemdir sínar
fram í tengslum við sjálfstæðisdrauma
68 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016