Þjóðmál - 01.12.2016, Qupperneq 90

Þjóðmál - 01.12.2016, Qupperneq 90
ráðstafanir eru aðallega tvenns konar. Smá- ríki leitast í fyrsta lagi iðulega við að útvega sér vernd eins voldugs ríkis gegn öðru, eins og saga Evrópu geymir mörg dæmi um. Portúgal væri líklega enn undirgefið Spáni, hefði það ekki leitað til Bretlands. Skotland var löngum í bandalagi við Frakkland gegn Englandi. Annar hugsanlegur útleikur smá- ríkja er að sameina kraftana, eins og gerðist eftir seinni heimsstyrjöld, þegar ríki Vestur- Evrópu gengu í Atlantshafsbandalagið. Því erfiðara er þó að gera slík bandalög sem aðilareru fleiri og sundurleitari. (Til dæmis gerðust hvorki Svíþjóð né Sviss aðilar að Atlantsbandalaginu.) Takmarkaður skýringarmáttur skjólshug- taksins sést best af sögu íslands, þótt prófessor Baldur Þórhallsson telji sig einmitt sækja rök fyrir kenningu sinni til hennar. Það hljómar til dæmis einkennilega, að íslendingar hafi leitað sér skjóls í hinu norska veldi, þegar þeir gerðu samning við Noregs- konung 1262. Þeir voru ófúsir til verksins. Ástæðan var einföld: Þeir óttuðust eins og bændur annars staðar á Norðurlöndum, að þeir þyrftu að bera þunga skatta og jafnvel vera kvaddir í stríð. Snorri Sturluson lýsir þessu vel í ræðu Einars Þveræings og frásögn af andófi norskra og sænskra bænda gegn konungum.101 í Sturlungu segja sumir bændur líka mæddir, að best sé að hafa engan höfðingja.102 í raun og veru neyddi Noreg- skonungur samningnum upp á íslendinga. Hákon gamli vildi eins og konungum er títt færa út veldi sitt. Með þátíðartækni átti hann erfitt með að senda her til íslands, en hann hafði annað vopn í fórum sér, sem var hótun um einangrun landsins. Öll verslun þjóðarin- nar fór þá fram um Noreg, og konungur gat hæglega stöðvað hana. Þessu vopni beitti konungur, eins og sést best af því, að íslendingar töldu ráðlegt að setja sérstakt ákvæði í samninginn 1262 um, að samgön- gur við landið yrðu tryggðar.103 Hitt er annað mál, að eflaust töldu líka sumir fslendingar í einlægni þjóðina (eða sjálfa sig?) best komna undir stjórn Noregskonungs, til dæmis Sturla Þórðarson sagnritari.104 Skjólid reyndist gildra Prófessor Baldur Þórhallsson snýr orsakasam- henginu við um sáttmálann 1262. fslendingar sömdu ekki við Noregskonung, af því að þeir óttuðust einangrun, heldur af því að konungur hótaði þeim einangrun, nema þeir semdu. Fjarlægðin var þeim í senn vernd og hætta. Landið var of fjarlægt, fátækt og harðbýlt til þess, að neinn annar en Noregs- konungur hefði áhuga á því að leggja það undir sig. Hitt er annað mál, að í Ijós kom, er á leið, að íslendingar höfðu ekki skriðið f skjól árið 1262, heldur gengið í gildru. Þótt þeir væru snauðir, voru íslandsmið gjöful. Þegar erlendir kaupmenn og fiskimenn tóku að venja komur sínar hingað á fimmtándu öld, var landið nærri því gengið undan konungi, sem nú sat í Kaupmannahöfn. Þá gat konungur valið á milli tveggja kosta. Annar var að stuðla að því, að þjóðin efnaðist við útgerð og verslun, sem hefði leitt til þess, að tekjur af landinu hefðu hækkað, en jafnframt til þess, að konungur hefði ekki getað gengið að yfirráðum sínum yfir því vísu. Hinn var að reyna að minnka hættuna af því að missa landið með því að hneppa útgerð og verslun í viðjar og torvelda samskipti við önnur lönd. Konungur tók seinni kostinn: Hann gerði bandalag við íslensku landeigendastéttina. Landbúnaður varð eini löglegi atvinnu- vegurinn, og ísland breyttist í fátæktarbæli, eins og prófessorarnir Gísli Gunnarsson og Þráinn Eggertsson hafa lýst.105 Öryggið var tekið fram yfir frelsið. Þetta var falsöryggi af tveimur ástæðum. Hin fyrri var, að samningur íslendinga við konung veitti þjóðinni enga vernd, þegar á reyndi. Englendingar fóru sínu fram, á meðan þeir höfðu á því áhuga,106 og þegnarTyrkjasoldáns sigldu hingað norður árið 1627 og rændu og rupluðu án nokkurs viðnáms. Raunar reyndi konungur hvað eftir annað að selja landið, en fann ekki kaupendur.107 Seinni ástæðan til þess, að þetta var falsöryggi, var, að þjóðin var svo fátæk, að hún mátti við litlu, eins og sást í Stórubólu 1707-1709 og Móðuharðind- unum 1783-1785. Var þá jafnvel rætt um að 88 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.