Strandapósturinn - 01.06.1970, Page 116
það brann til grunna. Sláturhús félagsins brann að hluta. Ibúðar-
hús Halldórs Kr. Júlíussonar f. v. sýslumanns brann einnig. Enn
verr gat farið hefði vindátt verið austanstæð þá var talið líklegt
að ekkert hefði staðið eftir af húseignum kaupfélagsins, þeim er
stóðu í röð sunnan vert á eyrinni.
Brezka setuliðið var þá á Borðeyri og hafði hróflað upp eldhúsi
í þröngu sundi á milli sýslumannshússins, sem það hafði á leigu, og
búðar kaupfélagsins, en eldurinn kom upp í þessu eldhúsi. Svo vel
vildi þó til að fyrr á þessum vetri hafði Erlendur Halldórsson for-
stöðumaður Brunaeftirlits ríkisins komið í land af skipi og veitir
þá athygli nokkrum tugum brúsa af benzíni er voru geymdir
einnig í þessu sama sundi, upp við timburklædda veggi húsanna.
Hann gat eftir mikið þóf og með símahringingum til Reykjavíkur,
komið því til leiðar að benzínið var fjarlægt. Víst er að þetta eitt
hafi skipt sköpum, að ekki hlaust meira tjón eða slys á mönnum
sem börðust við eldinn án allra tækja, við slík störf nauðsynleg.
I þessum bruna brennur feikn af gömlum verzlunarbókum frá
tíð kaupmannanna, Húnaflóafélagsins og kaupféla.gsins. Til slíks
tjóns ná engar tryggingar. Miklar vörubirgðir brenna, einnig kjöt
í frystihúsinu svo og ljósamótorar. Líklegt er að heildartrygging
verðmætanna sem urðu eldinum að bráð hafi verið undir sann-
virði.
Enn stóðu stjórnendur frammi fyrir miklum vanda, hvað þeir
eigi að leggja til við fulltrúa sína og sitt fólk. Akveðið var strax að
byggja þann hluta sláturhússins upp, sem brann, með nokkurri
stækkun. Ekki taldist fært að reisa frystihúsið að nýju, kom þar
til að þá eru sauðfjárbú bænda mjög smá, mæðiveikin herjar og
ekki var hægt þessvegna að halda búunum í horfinu. Þar verður
ekki breyting á fyrr en eftir niðurskurð og sauðfjárskipti 1947.
Atvinna er mikil fyrir alla, sem komast að heiman, hjá setuliðinu.
Rekstursgrundvöllur fyrir nýju frystihúsi hefir þá vart verið. Þetta
hafði í för með sér að félagssvæðið dregst saman. Strax er til um-
ræðu að byggja verzlunarhús, annaðhvort í brunarústunum frá
fyrri brunanum eða nýtt frá grunni. En samkomuhús staðarins er
fengið leigt og því breytt í búð. Árin líða og flutt er úr samkomu-
húsinu í elzta hús staðarins, sem ennþá stendur, Riis húsið svo-
114