Luxus - 01.12.1984, Side 95
hún um tíma í enskunám til
Englands, en það gerði hún eigin-
lega bara til að hafa eitthvað fyrir
stafni meðan hún beið eftir að fá
pláss sem lærlingur í hárgreiðslufag-
inu. Að námi loknu fór hún til New
York og vann þar á stofu í 2 ár. Nú
vinna 8 manns á stofunni hennar
°g sjálf er hún búin að ferðast um
allar jarðir til að kynna það sem
helst er að gerast í hárgreiðslugrein-
inni hérlendis og til að fylgjast með
nýjustu straumunum þar ytra. Þess
má geta að hún er bæði eiginkona
og móðir.
íslandsdeildin vakti heldur betur
athygli í Rio de Janeiro í Brasilíu
fyrir 2 árum þegar hún sýndi eins
konar „snjókonur“ þar suðurfrá.
Hópurinn var þar í gærum og nokk-
uð rosalegar ásýndum - en fyrir
bragðið fékk hann sýningartilboð
frá Bandaríkjunum, þar sem hann
sýndi í fyrra, en þaðan lá leiðin til
Sviss og síðar til Svíþjóðar.
Hárgreiðslusýning fer þannig fram
að meistarinn fær óþekkta mann-
eskju og greiðir henni við undirleik
tónlistar, en tónlistin virkar sem
einhvers konar tímavörður um leið
og hún eykur á stemmninguna og
spennuna. Að vísu fær meistarinn
að ráða hæð. þyngd og e.t.v. háralit
viðfangsefnisins, en þar sem taka
verður tillit til mismunandi útlits og
persónueinkenna fólks lítur Bára
fyrst og fremst á þetta sem listgrein.
Tvisvar á ári fer hún utan. ásamt
nokkrum kollegum sínum, til að
kynnast nýjustu línum hárgreiðslu-
tískunnar - og einmitt um þessar
mundir er hún að leggja upp í eina
slíka ferðtil Parísar, ásamt Elsu Har-
aldsdóttur, til að fylgjast með því -
fyrir luktum dyrum — þegar hár-
greiðslan fyrir árið 1985 fæðist.
Suðurnesja. Til að byrja með tók
hann á móti erlendum ferða-
mönnum. Þá hafði hann aldrei skoð-
að íslandskort almennilega, en
smám saman lærði hann á kortið og
vann sig upp í Iykilstöðu fyrirtækis-
ins. Að gera pínulitla ferðaskrifstofu
að öðru eins stórveldi og hún er í
dag - og það á mjög skömmum tíma
- hefur auðvitað kostað ómælda
vinnu og talsverða útsjónarsemi eða
eins og Helgi segir: „Októberferðirn-
ar okkar voru undirbúnar í febrúar,
mars. Þetta er fyrsta ferðaskrifstofan
á íslandi sem hefur gert tilraun til
að koma út með bækling ári áður en
ferðin hefst. Dauði tíminn í ferða-
skrifstofurekstri er því búinn. Þetta
er orðið samtengt allt árið og fólk í
dag sér í fyrsta skipti fram á að hægt
er að gera raunhæfar áætlanir fram
í tímann. Verðbólgan hefur hjaðnað
og öryggið sem fylgir því að við bjóð-
um ferðir á svipuðu verði og í fyrra,
fær menn til að ákveða sig strax. Svo
er hægt að borga jafnt og þétt inn á
ferðapakkann þannig að menn fara
áhyggjulausir í ferðalagið og losna
við bakreikninga. Þetta er svona
sparivelta sem gerir fólki kleift að
búa til gott ferðaplan. Hér áður
bókuðu íslendingar utanlandsferðir
með tveggja daga fyrirvara eða mán-
aðar fyrirvara í hæsta lagi. En þetta
hefur breyst á síðustu arum, meðal
annars vegna þess að nú getum við
sett á markaðinn vöru sem við ætl-
um að afgreiða næsta sumar."
Svo mælti Helgi Jóhannsson. Ann-
ars gerir hann heldur lítið úr hæfi-
leikum sínum og vitnaði í þau fleygu
orð Halldórs Laxness: „99% vinna og
1 % hæfileikar." Það sem heldur hon-
um gangandi er þörfin á að standa
sig og einhvern veginn hefur maður
grun um að honum hafi tekist það
hingað til.
HELGIJÓHANNSSON framkvœmdastjóri
Dauði tíminn er btunn
Menn hafa stundum komið
að honum þar sem hann er
að skipta um ljósaperu eða
gera við bilaða ljósritunarvél. Það er
eins og hann hafi ekki ennþá áttað
sig á því að hann er framkvæmda-
stjóri fyrir einni af stærstu ferða-
skrifstofum landsins og jakkaföt eða
hálsbindi eru honum ekki beint að
skapi. Hann þarf mikið að ferðast til
útlanda í starfinu sem felst m.a. í
því að skipuleggja utanlandsferðir
6-8 mánuði fram í tímann. Þetta er
mjög erilsamt starf og getur verið
einmanalegt á köflum. „Það sem hef-
ur bjargað lífi mínu á þessum ferð-
um,“ segir hann, „er skáktölva sem
eg keypti einu sinni. Við erum orðnir
miklir kammeratar - ég og tölvan.“
Annars gefur hann sér tíma til að
leika tennis í frístundum og svo er
hann í 7 manna félagsskap sem
heitir einfaldlega Átthagafélagið. í
því eru nokkrir jafnaldrar hans úr
Keflavík; Ingi Valur Jóhannsson fé-
lagsfræðingur, Stefán Ólafsson
lektor, Valdimar Harðarson arkitekt
og fleiri. Þeir koma saman öðru
hverju til skrafs og ráðagerða og
leika stundum knattspyrnu við ann-
an félagsskap sem heitir Forstjóra-
félagið. Og svo er hann með bridge-
dellu.
Hann hóf störf hjá Samvinnuferð-
um fyrir 5 árum eftir að hafa kennt
viðskiptagreinar við Fjölbrautaskóla
Nokkrar
blákaldar
staðreyndir
iim Samúel
Við sem gefum út Samúel höfum alltaf talið okkur vera
með blað sem fólk hefur áhuga á að lesa. Salan á blaðinu
hefur gefið það ótvirætt til kynna. Fólk talar um
greinarnar sem birtast í Samúel, En það er ekki nóg að
við höldum einhverju fram um vinsældir Samúels. Það
þarf staðfestingu óhlutdrægra aðila. Hún er komin. Enn
einu sinni, þvi í þremur fjölmiðlakönnunum sem Samtök
íslenskra auglýsingastofa hafa gert hefur Samúel ávallt
verið eitt af mestu lesnu timaritunum hér á landi.
Tölurnar tala sínu máli, eins og sést í nýjustu
könnuninni:
60 ftúsimd íslendingar
lesa Samúel
Af íslendingum á aldrinum frá 13 ára ogupp úr segjast
30,81 prósent lesa Samúel. Þetta eru 60 þúsund manns.
Unga fóHdð les Samúel
Af fólki á aldrinum S0 til 34 ára segj ast 37 prósent lesa
Samúel. Það er meira en þriðji hver íslendingur á
þessum aldri. Á aldursbilinu 16 til 19 ára lesa 50,82
prósent Samúel. Það er annar hver íslendingur á þessum
aldri.
Samúel er þriðja mest
lesna tímaritið
I fjölmiðlakönnun Samtaka íslenskra auglýsingastofa
reyndist Samúel þriðja mest lesna timaritið, á eftir Hús
& Hibýli og Lif. í könnun SIA var spurt um lestur á 30
timaritum, og á íslandi eru gefin út hátt a fimmta
hundrað tímarit. _
HANNER LESDJN