Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 16

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 16
156 líf- eyrisþegar hafa enn ekki fengið endurút- reikning vegna skráningar séreignar- sparnaðar á árinu 2020. Lífeyrisþegar sem tóku út lífeyrissparnað sem hluta af sérstöku úrræði stjórnvalda í heimsfaraldri Covid, búa margir hverjir enn við skerð- ingar og skuld við Trygginga- stofnun nærri tveimur árum eftir úttekt, þrátt fyrir að skýrt væri tekið fram í lögum að úttektin ætti ekki að leiða til skerðinga. Til að bregðast við Covid-heims- faraldrinum heimiluðu stjórnvöld lífeyrisþegum, með takmörkunum, úttekt á séreignarsparnaði sínum án þess að það hefði áhrif á bætur þeirra eða réttindi. Rúmu ári eftir að heimildin var gefin kom í ljós að allt að 300 lífeyrisþegar sem nýttu sér þetta höfðu mögulega orðið fyrir skerðingu. Á st æða skerðingar innar er ýmist sú að úttektin var vitlaust skráð hjá vörsluaðilum sem úttekt vegna örorku, að ekki voru til rétt umsóknareyðiblöð fyrir úttektina hjá vörsluaðila, eða að umsókn- areyðublaðið var ekki þannig hann- að að lífeyrisþeginn gæti komið því á framfæri að um slíka úttekt væri að ræða. Eins og stendur er eitt mál til meðferðar hjá Yfirskattanefnd vegna slíkra skerðinga, en í síðasta mánuði kvað nefndin upp sinn fyrsta úrskurð í slíku máli og felldi úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra í máli manns sem hafði tekið út sparnað sem var vitlaust skráður á skattframtali sem tekjur. Í frétt á vef Tryggingastofnunar í júlí í fyrra kom fram að orsök skerð- ingarinnar hjá þeim  væri skrán- ing tekna í skattframtal af hálfu vörsluaðila séreignarsparnaðar. Var úttektin skráð í skattframtal sem líf- eyrisgreiðslur úr séreignarsjóðum en ekki sem sérstök útgreiðsla sér- eignarsparnaðar, sem hefur ekki áhrif á tekjutengdar bætur. Þar kom svo fram að Tryggingastofnun bæri að fara eftir skráningu frá Skattinum og gæti því ekki breytt skráningunni. Á annað hundrað bíða Tryggingastofnun sendi bréf til þeirra 300 sem töldu sig hafa orðið fyrir slíkri skerðingu með upp- lýsingum um hvernig væri hægt að fá leiðréttingu. Samkvæmt upp- lýsingum frá stofnuninni kom í ljós við nánari skoðun að alls urðu 207 einstaklingar fyrir lækkun og við síðustu úttekt stofnunarinnar hafði aðeins 51 þeirra fengið skatt- framtali sínu breytt hjá Skattinum og í kjölfarið endurútreikning hjá TR. „Það eru því 156 lífeyrisþegar sem hafa ekki fengið endurútreikning vegna skráningar séreignarsparn- aðar á árinu 2020,“ segir í svari stofnunarinnar við fyrirspurn Fréttablaðsins og að ítrekað verði við hópinn hvernig er hægt að óska þess að fá þetta leiðrétt. Júlíus Birgir Jóhannsson hefur í meira en ár barist fyrir því að fá skráningu í skattframtali leiðrétta svo hægt verði að leiðrétta skerð- ingu á tekjum hans og réttindum, en í miðjum heimsfaraldri tók hann út hluta séreignarsparnaðar síns, í þeirri trú að það myndi ekki skerða tekjur hans eða réttindi með neinum hætti. Anna Kjartansdóttir tók út sér- eignarsparnað lífeyrissjóðs hjá Íslenska lífeyrissjóðnum hjá Lands- bankanum árið 2020 og segist, eins og margir aðrir í þessari stöðu, hafa hakað í vitlausan reit og úttektin því vitlaust skráð á skattframtalinu hennar. Ásgeir Jónsson öryrki tekur í sama streng og Anna, en hann tók út séreignarsparnaðinn sinn hjá Almenna lífeyrissjóðnum í tengsl- um við úrræði stjórnvalda í þeim tilgangi að kaupa sér húsnæði. „Ég fékk svo bréf frá TR þar sem þau biðja lífeyrissjóðinn um að haka við reit 140 í stað 143 en þau neita því og biðja Skattinn að gera það, sem neitar því líka, og þá þurfti ég að borga alla summuna til baka því það er ekki reitur á eyðublaðinu frá Almenna lífeyrissjóðnum til að haka við vegna húsnæðiskaupa. Svo vegna þess að ég er öryrki er verið að hegna mér tvisvar fyrir að taka þetta út,“ segir Ásgeir, en reitur 140 á framtalinu er sá reitur sem þeir sem taka út samkvæmt úrræðinu eiga að haka við. n Nánar á frettabladid.is Covid-úrræði olli tekjutapi og skuldum Búinn að margborga til baka Júlíus Birgir Jóhannsson Rúmu ári eftir að Júlíus tók sparnaðinn út komst hann að því að úttektin var skráð með vitlausum hætti á skattframtali hans og reiknuð sem tekjur. „Það hefur skapast ákveðinn vítahringur frá því að þetta byrjaði. Ég er daufblindur og heyri ekki neitt. Það kom nýlega á markað búnaður fyrir fólk eins og mig sem Heyrnar- og tal- meinastöðin hefur milligöngu um, þetta er sérstakur dyra- bjöllubúnaður, reykskynjarar og vekjaraklukkur. Sjúkratrygg- ingar borga bara 80 prósent en eftir standa 20 prósent. Mig vantaði peninginn fyrir mínum hluta kostnaðarins. Ég sótti um styrk hjá borginni og var að bíða eftir úrvinnslunni þegar ég ákvað að taka lífeyrissjóðinn út,“ segir Júlíus Birgir. Hann segir hina röngu skráningu hafa haft víðtæk áhrif á líf hans og geri enn. Þar sem Skatturinn skráði þetta sem tekjur hafði það áhrif á upp- hæðina sem hann fékk greidda út frá Tryggingastofnun og svo í kjölfarið skertust húsaleigu- bæturnar í samræmi við þessar meintu hærri tekjur. Hann segir að afleiðing- arnar séu svo umfangsmiklar og dreifist á svo margar stofnanir að hann geri sér varla vonir um að fá allt til baka. Það eigi þó eftir að koma í ljós eftir nýfall- inn úrskurð Yfirskattanefndar. „Ég veit að ég er búinn að margborga úttektina til baka.“ Aðspurður segir Júlíus að hann hefði hætt við úttektina hefði hann vitað hverjar af- leiðingarnar yrðu. Lífeyrisþegar sem tekið hafa út séreignarlíf- eyrissparnað hafa orðið fyrir skerðingum hjá Trygginga- stofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Fær enn skertar tekjur vegna málsins Anna Kjartansdóttir „Ég hélt að ég væri að haka við á grund- velli sérstöku heimildarinnar í tengslum við Covid og sam- kvæmt henni átti úttektin ekki að skerða mínar tekjur hjá TR. Það var grundvöllur úttektarinnar,“ segir Anna. Hún segir að eftir að þetta uppgötvaðist hafi hún verið í stöðugu sambandi við Skatt- inn en að þau hafi ekki enn fengist til að breyta skráning- unni á skattframtali hennar og segist ekkert geta gert. „Ég fór í skuld við Trygginga- stofnun út af þessu og enn í dag er verið að skerða tekjurn- ar mínar þar,“ segir Anna. Hefði líklega ekki tekið sparnaðinn út Ásgeir Jónsson Ásgeir segir að hann sakni þess að hafa ekki fengið leiðbeiningar um umsókn sína en að þegar hann sótti um hafi ekki verið neinar leið- beiningar á vef Almenna líf- eyrissjóðsins um þetta. Þess má geta að á umsókninni þegar Ásgeir sótti um var ekki hægt að haka við að það væri vegna úrræðis stjórnvalda. „Það kom hvergi fram að þetta gæti valdið skerðingum hjá Tryggingastofnun,“ segir Ásgeir og bætir við að hefði hann vitað af þessu þá hefði hann líklega ekki sótt um að taka sparnaðinn út. Lovísa Arnardóttir lovisa @frettabladid.is FRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.