Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 49

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 49
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir sérfræðingi í fjármálum og rekstri Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á nýrri skrifstofu innri þjónustu. Starfið felur í sér vinnu við fjárlagagerð, stefnumótun, reikningshald, rekstur og þjónustu við aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Leitað er að drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og þekkingu og reynslu á opinberum fjármálum. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir meðal annars á sjálfstæði, frumkvæði og lipurð í samskiptum. Skrifstofa innri þjónustu fer meðal annars með fjármál, fjárlagagerð, framkvæmd fjárlaga, rekstur og áætlanagerð forsætisráðuneytisins, ber ábyrgð á gæða- og umbótamálum í ráðuneytinu, skjalavistun, upplýsingakerfum og sér um öryggismál, starfsumhverfi og eignaumsjón. Starfsfólk skrifstofunnar styður við innra starf ráðuneytisins, meðal annars við störf hópa og teyma sem starfa þvert á ráðuneytið. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðs hafa gert. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022 Nánari upplýsingar veita Margrét Hallgrímsdóttir skrifstofustjóri margret.hallgrimsdottir@for.is Eydís Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri eydis.eyjolfsdottir@for.is Sótt er um starfið á Starfatorgi: starfatorg.is Helstu verkefni og ábyrgð • Fjárlagagerð • Vinna við fjármálaáætlun ásamt aðkomu að stefnumótun og kostnaðarmati • Efnisöflun og vinna við gerð skýrslna og greinargerða • Reikningshald og ferðauppgjör • Aðkoma að rekstraráætlanagerð • Þátttaka í framkvæmd fjárlaga • Þátttaka í teymisvinnu, umbótastarfi og innri þjónustu ráðuneytisins • Ýmis önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af Oracle bókhaldskerfi ríkisins • Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu • Þekking á lögum um opinber fjármál • Reynsla af fjárlagagerð og stefnumótun • Reynsla og þekking af reikningshaldi • Góð þekking á Office 365 forritum • Þekking og reynsla af Power BI • Greiningarhæfni, þ.e. geta til að greina og vinna úr gögnum og upplýsingum • Þjónustulund ásamt færni og lipurð í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða verkefnum • Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun Stjórnarráð Íslands Forsætisráðuneytið Er verið að leita að þér? Viðskiptavinir Ráðum fela ráðgjöfum okkar oft að finna starfsmenn án þess að auglýsa stöðuna. Skráðu þig í gagnagrunninn okkar til að tryggja að við finnum þig þegar rétta starfið býðst. ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 7. maí 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.