Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 4
4 – Sjómannablaðið Víkingur Sigurður Óli Kristjánsson, skipstjóri, fæddist á Dalvík 3. ágúst 1960, son- ur hjónanna, Kristjáns Þórhallsson- ar og Vernu Sigurðardóttur. Hann er kvæntur Dönu Jónu Sveinsdóttur og eiga þau saman 4 börn og 6 barnabörn. Æskuárin voru nokkuð hefðbundin fyr- ir ungling í sjávarþorpi úti á landi, leik- völlurinn var bryggjan, bátarnir og fjar- an, að ógleymdum öllum samtölunum og samskiptunum við trillukarlana sem margir voru á Dalvík á þessum árum. Stebbi Grenó – Faðir minn, Kristján Þórhallsson var sjómaður, yfirleitt skipstjóri eða stýri- maður á hinum hefðbundnu vertíðarbát- um sem stunduðu oftast netaveiðar yfir vetrartímann en síldveiðar á sumrin. Nefna má Þórð Jónasson EA sem smíðað- ur var í Noregi og kom til landsins lík- lega á árinu 1964. Mikið framúrstefnu- skip bæði hvað varðar stærð, ganghraða og íverur sjómannanna, en það ég best veit var Þórður fyrsti báturinn þar sem allar vistarverur sjómannanna voru afturí. Þrátt fyrir að ég færi oft á sjóinn með pabba stóð hugur minn ekki síður til ein- hverskonar tæknináms t.d. raf- eða út- varpsvirkjunar. Á þessum árum voru bara ekki í boði lærlingastörf hjá viðurkennd- um meisturum á viðkomandi sviði, að minnsta kosti ekki á Dalvík. Því fór sem fór, ég lagði sjómennskuna fyrir mig, sem ég sé svo sannarlega ekki eftir. Að loknu hefðbundnu námi þess tíma tók stýrimannaskólinn við. Ég fór ásamt vini mínum, Gesti Matthíassyni til Vest- mannaeyja, en báðir höfðum við eins og trúlega margir ungir menn á Dalvík á þeim árum byrjað okkar sjómennsku hjá Stebba Grenó, sem svo var nefndur, en hét fullu nafni Stefán og var Stefánsson frá Grenivík, sem er austan megin fjarðarins næstum beint á móti Dalvík. Það var gott að vera með Stebba, segir Siggi, hann kenndi okkur undirstöðuat- riðin í góðri sjómennsku og ekki síst að bera virðingu fyrir lífríkinu. „Ekki sitja á beitunni, stelpur“ Þeir félagar luku fiskimannaprófi til ótak- markaðra skipstjórnarréttinda frá Stýri- mannaskólanum í Vestmannaeyjum vorið 1981. Á þessum árum var bæði skortur á skipstjórnar- og vélstjórnarmenntuðum mönnum í Vestmannaeyjum því var lagt nokkuð upp úr því að fá sem flesta til náms þangað. Í kjölfarið áttu ungu glæsilegu dömurnar í Eyjum að sjá um framhaldið að tryggja útgerðunum starfs- krafta þeirra með því hneppa þá í hjóna- band og kyrrsetja. Binni í Gröf hafði þetta á bak við eyr- að þegar hann eitt sinn sem oftar var á gangi á bryggjunum í Eyjum og gekk þá fram á nokkrar stúlkur sem sátu á einum bryggjuhausnum, dingluðu fótunum fram af og voru að dorga. Binni spyr hvernig gangi. – Illa, svara þær einum rómi. Þá segir Binni: – Dömur mínar, það hefur aldrei gefist vel að sitja á beitunni. Meðal bekkjarfélaga minna var meðal annarra Guðmundur Jónsson, Bolvíking- ur, sem síðar varð skipstjóri á uppsjávar- veiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA, fyrsta uppsjávarveiðiskipinu, sem smíð- að var fyrir íslenska útgerð, þar sem afl- inn var unnin um borð. – Að stýrimannaskólanum loknum keypti ég og áðurnefndur Gestur Matt- híasson og fleiri um 60 lesta bát sem við nefndum Merkúr EA-24 og gerðum út frá Dalvík, aðallega til veiða með þorskanet- um. Aflann unnu við sjálfir með þess tíma aðferðum sem voru söltun og síðan var hengdur upp í skreið sá hlutinn sem illa hæfði til söltunar. Skyndilega lokuðust skreiðarmarkað- irnir en við félagarnir áttum þá nokkuð af af óseldri skreið , útlitið var því ekki gott hjá okkur þar sem við skulduðum enn í bátnum. Að lokum tókst að selja megnið af skreiðinni og greiða áfallnar skuldir. Við komust því nokkuð klakk- laust frá okkar fyrsta útgerðarævintýri. Í framhaldinu ræð ég mig sem stýri- mann á Harald EA um 60 lesta vertíðar- bát sem gerður var út frá Dalvík á hefð- bundnar veiðar báta af þessari stærð. Eftir skamma dvöl þar tek ég tímabundið við skipstjórn á bátnum. Í framhaldinu ræð ég mig sem skip- „Við skiljum ekki eftir veiðarfæri í botninum“ Helgi Laxdal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.