Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 26
26 – Sjómannablaðið Víkingur hendi. Fóru þeir fyrst fram í hásetaklef- ann, til þess að klæða sig úr trollstökkun- um, því að sjálfsagt var, vegna ofviðrisins, að vera svo léttklæddur sem unnt var, eftir að komið væri út á þilfarið og stakk- arnir myndu hvort sem var verða gagns- litlir sem hlífðarflíkur, þegar þangað kæmi. Þeir höfðu lokið þessum undir- búningi og stóðu í vari undir hvalbakn- um biðu eftir því að færi gæfist til þess að komast út á þilfarið. Þá reið ólag yfir skipið og sjórinn flæddi eins og straum- röst yfir þilfarið og inn undir hvalbakinn. Datt víst fáum í hug, að þeir, sem þar voru, kæmust lifandi úr þeirri eldraun. Þessi forleikur spáði ekki góðu um það, sem við mátti búast síðar, þegar komið væri út á þilfarið og ekkert yrði framar til að skýla þar við starf sitt hinum ótrauðu sjálfboðaliðum. Ráðgert hafði verið í fyrstu að hafa bönd á þeim í öryggis- skyni, en því neituðu þeir ákveðið, töldu vonlaust að sleppa ómeiddir, ef að sjór kæmi á skipið undir slíkum kringum- stæðum. Þá kusu þeir heldur ef ekki yrði hægt að ná handfestu að verða hafinu að bráð, en að berjast um í böndum, eins og rekald í brimi, á snarbröttu og hálu þil- farinu. Þegar færi gafst, sættu þeir lagi, kom- ust slysalaust á ákvörðunarstaðinn og luku rólegir við starf sitt, þó að vinnu- skilyrði væru erfið. Og að verkinu loknu, þegar hættunni hafði verið afstýrt, hurfu þeir aftur í raðir félaga sinna eins og ekk- ert hefði í skorist til þess að vinna með þeim að austri skipsins og öðrum nauð- synlegum björgunarráðstöfunum. Loftvogin stóð þráðbeint upp Næstur fær orðið Jónas Jónasson skip- stjóri (1878-1965) á breska togaranum Ceresio (en það skip endaði ævina í Karí- bahafi árið 1983 þá sem flutningaskip). – Fimmtudaginn 5. febrúar árið 1925 kl. 10 síðdegis lagði togarinn af stað frá Hafnarfirði í veiðiför til vesturlandsins. Skyldi fiska í salt, því að á þeim tíma voru flest skip á saltfiskveiðum hér við land. Um hádegi daginn eftir var komið á móts við Patreksfjörð og þar trollinu kastað. Veður var gott, blíðalogn og sléttur sjór. Flestir íslensku togararnir voru að veiðum þarna, ásamt nokkrum skipum enskum. Fiskur var fremur tregur. Klukkan um 16 síðdegis kom skeyti frá Leifi heppna, sem var að fiska úti á Hala. Þar var þá dágott fiskirí. Fóru því flest af íslensku skipunum út á Hala um kvöldið og fiskuðu þar um nóttina, því að þar var aðalfiskislóðin á þeim tíma. Um kvöldið fór að draga upp þykkni í norðaustri og voru skýin græn að lit með dimmbláum eyðum á milli. Hef ég aldrei séð loftslag eins og þá. Klukkan 03 um morguninn gerði ofsarok af norðri, en það stóð aðeins í hálfa klukkustund. Klukkan 08 árdegis fór að hvessa af ANA og um hádegi var komið stórviðri og haugasjór. Var þá hætt að fiska, veiðar- færi bundin upp og gengið frá öllu á þil- farinu, sem best mátti verða. Síðan var lagt af stað til lands með fullri ferð. Þegar búið var að stíma um 12 mílur, var veðrið orðið svo vont, að ekki þótti gerlegt að halda áfram lengur, enda var þá kominn svarta bylur, svo að ekki sást út úr augunum og því vonlaust að ná landi. Var því haldið upp í vindinn með hægri ferð. Veðrið fór síversnandi og sjórinn óx að sama skapi. Varð að stíma með allt að hálfri ferð til þess að halda í horfinu og stundum fullri ferð, þegar undan sló. Lifrartunnurnar, sem tómar voru, tók allar fyrir borð, og þær sem fullar voru varð að brjóta, svo að ekki hlytist tjón af, er þær ultu um þilfarið, því að sjógangur var svo mikill, að ekki var viðlit að koma á þær böndum. Klukkan um 7 síðdegis var veðurhæð- in orðin svo mikil, að ekki var lengur ferðafært milli lúkars og káetu, og voru því framhluti skipsins og afturhluti þess einangraðir hvor frá öðrum. Þegar farið var á milli stýrishúss og káetu, sem ekki var gert nema brýn nauðsyn krefði, var aðeins einn maður látinn fara í hvert sinn og litið eftir honum úr stýrishúsinu, til þess að sjá hvernig honum reiddi af. Var kaðall hafður eftir maskínukassanum, til þess að halda sér í, því að ekki var stætt vegna veðurs, og varð því maðurinn að skríða mest af leiðinni Loftvogin stóð þráðbeint upp og niður og gekk eins og pendúll í klukku. Hef ég aldrei séð hana svo langt niðri, enda var þetta hið harð- asta veður, sem ég hef komið út í, og önnur veður, sem ég hef fengið, fyrr og síðar, eru smámunir í samanburði við það. Klukkan um 20 kom brotsjór á skipið og tók baujurnar úr báðum vöntunum, þannig að sjórinn tók belgina, en skildi sköftin eftir. Um miðnætti brotnuðu báð- ar loftskeytastengurnar. Einnig biluðu raflagnir svo að lýsa varð á kompásinn með kerti. Var erfitt að halda logandi á því og var þá reynt að nota gasljós, en það bilaði, svo að aftur varð að taka kertin í notkun. Sami veðurofsinn hélst alla nóttina. Um morguninn, þegar bjart var orðið, komust menn þó úr lúkarnum, en þá hafði verið sambandslaust við hann í 18 klukkustundir samfleytt og sama vaktin því staðið allan tímann. Seinni hluta dagsins fór heldur að draga úr veðrinu, en ekkert sló á sjóinn, fyrr en komið var undir miðnætti. Þá var farið að leita lands, því að margt þurfti að lagfæra og komum við loks til Dýrafjarðar, eftir erfiða ferð, útbjuggum þar loftnet fyrir okkur og náðum sambandi við Reykja- vík. Var það eina sambandsleiðin, sem Reykjavík hafði við Vesturland, því að allar símalínur höfðu slitnað í veðrinu. Milli fjarðanna innbyrðis var þó samband ennþá. Eitt af skeytunum, sem við fengum, var frá eigendum skipsins og var okkur sagt þar að fara til Patreksfjarðar til að- stoðar öðru skipi frá sama útgerðarfélagi, togaranum Earl Haig, sem orðið hafði fyrir áfalli í ofviðrinu daginn áður (sjá frásögn Nikulásar Jónssonar skipstjóra á því skipi). Var skipinu fylgt til Hafnar- fjarðar og komið þangað daginn eftir, fimmtudaginn 12. febrúar. Rak stjórnlaust Næstur til frásagnar er Nikulás Jónsson skipstjóri (1895-1971) á b.v. Earl Haig. Nikulás var kvæntur Gróu Pétursdóttir, hinni öflugu talskonu fyrir slysavörnum. – Laugardagurinn 7. febrúar, togað um nóttina til kl. 06:00 um morguninn, 35 sjómílur norður af Kóp. Síðan stímað út Í Halaveðrinu þar sem sextán togarar með á sjötta hundrað manns innanborðs voru í mikilli hættu áttu tveir togar- ar ekki afturkvæmt. Í áhöfn- um skipanna tveggja voru samtals 63 Íslendingar og sex Englendingar. Að auki fórst vélbáturinn Sólveig og með henni fimm manns. Það voru því 68 íslenskir sjómenn sem misstu lífið í þessu óveðri auk Englendinganna sex. Morgunblaðið 12. febrúar 1925.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.