Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur Berlin NC 105, skipi sem er 81 m. langt og 16 m. breitt knúið 3600 kW aðalvél. Við aðalvélina er 2200 kW rafali og við ljósavélina 1800 kW rafali. Samanlagt getum við því framleitt um borð 4000 kW eða 4 MW sem mundi trúlega geta séð um 2000 manna sveitarfélagi á Ís- landi fyrir raforku. Ég held að almenn- ingur geri sér ekki grein fyrir því hvað þessi skip eru orðin fullkomin og afkasta- mikil. Að jafnaði erum við að nota tæpt 1 MW en topparnir hjá okkur, þegar við erum til dæmis að taka trollið geta nálg- ast 2 MW Við erum tveir skipstjórar á skipinu og erum til skiptis um borð, ég og nafni minn Sigurður Hörður Kristjánsson. Yfir- vélstjórar eru sömuleiðis tveir, og skiptast á um að vera um borð, þeir Kristófer Kristjánsson og Sigurpáll Hjörvar Árna- son. Þrátt fyrir að Baldvin NC-100 hafi verið og sé mjög gott skip, í alla staði, þá voru umskiptin miklu meiri en ég bjóst við. Allur aðbúnaður um borð í Berlin er mjög góður og sambærilegur á við það sem var um borð í Baldvin. Vegna stærð- arinnar, er skipið mun betra í sjó að leggja sem þýðir að hægt er að vera að í verri veðrum þar sem vinnuaðstaða áhafnarinnar er mun betri og sömuleiðis aðbúnaðurinn því ef skipin láta illa í sjó þá hvílist áhöfnin illa og allt verður ön- ugt og leiðinlegt. Á þessu skipi er allt sem tilheyrir afl- anum hirt og unnin úr því verðmæti. Hausar, dálkar og annar úrgangur sem fór aftur í sjóinn á Baldvini fer í bræðsluna um borð í Berlin. Brúin er full af nýjustu tækjum bæði til staðsetninga og fiskileit- ar. Ekki viss um að það sé í sjálfu sér um mikið af nýjum upplýsingum að ræða aft- ur á móti eru þær settar fram á aðgengi- legri hátt en áður var. Allur vélbúnaður, bæði í vél og á milli- dekki, er sömuleiðis mjög fullkominn en þarf engu að síður sitt eftirlit og við- hald. Segja má að vélarúmið í nýjustu skipunum sé orðið allt skipið og ekki síst vinnsludekkið en þar gegna vél- stjórarnir lykilhlutverki í því að tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Í fyrstu túrunum á Berlin var, eins og gengur með nýtt skip, um nokkra byrjunarörð- ugleika að ræða sem vélstjórunum tókst að leysa án þess að til vandræða kæmi. Þeir stóðu sig virkilega vel sem segir okk- ur að íslenska vélstjóranámið er mjög gott. Rétt að geta þess hér að á sambæri- legum þýskum skipum þar sem eru þýsk- ir vélstjórar er alltaf rafvirki um borð. Þess þurfum við ekki með ef vélstjórarnir eru íslenskir, þeir eru mjög færir í öllu sem lýtur að rafmagni um borð sem er nú ekkert smáræði. Úr matsalnum. Hér er aðstaðan eins og best verður á kosið. Takið eftir því hve gluggarnir eru stórir. Skipstjórarnir og yfirvélstjórarnir, Sigurður Óli Kristjánsson, Kristófer Kristjánsson, Sigurpáll Hjörvar Árnason og Sigurður Hörður Kristjánsson. Yfirvélstjórarnir fyrir miðju og skipstjórarnir til hvorrar handar. Guðmundur Fannar Þórðarson, 1. vélstjóri, og fjær, Sigurpáll Hjörvar Árnason yfirvélstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.