Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 21
Ranger Brisis, annað tveggja hjálparskipa sem Bretar voru með á miðunum, lagt að Óðinsmönnum að vera nú rólegir, það væri ekki vert að gera stöðuna verri. Óðinsmenn lýstu svari sínu í skeyti til stjórnstöðvar: – Við svöruðum honum að togari hefði reynt að sökkva skipi okkar og drepa áhöfnina – stopp – ef þeir vilja rólegheit þá gæti hann sagt togaranum að halda sig fyrir utan 50 sjómílur. Í því lá lausnin og var næsta einföld í augum Óðinsmanna. „Lygasögur úr þorskastríðinu“ Í skjölum og í frásögnum þeirra sem stóðu í ströngu liggur sannarlega merk saga fólgin. Mér er minnisstætt hversu gaman var að koma hingað í Óðinn með nemendur. Óli Valur tók á móti okkur, klæddur uniformi sem innlendum jafnt og erlendum nemendum þótti mikið til koma. Ein slík heimsókn festist mér sér- staklega í minni. Ég var þá hingað kom- inn með erlendum nemendum mínum. Óli Valur var að segja frá en í miðju kafi byrjar síminn hans að hringja. Hann tek- ur símann ofurhægt úr vasa sínum og svarar með sömu hægu röddinni og hann hafði talað við okkur: – Ég hringi í þig á eftir. Ég er að segja útlenskum krökkum lygasögur úr þorskastríðinu. „Varðskip reyna enn ásiglingar“ Síðustu átökin á miðunum voru hin hatrömmustu og við megum þakka fyrir að ekki fór verr í hörðum ásiglingum er urðu veturinn 1975 til ´76 en þá höfðum við fært út í 200 sjómílur. Þó má finna atvik frá þessum tíma sem við getum kímt yfir. Þann 1. apríl 1976 lét Óðinn stjórn- stöð vita að F-71 hefði gert margar til- raunir til ásiglinga og þegar skipin voru hvað næst hvort öðru hefðu freygátu- menn gert sér til dundurs að kasta eggj- um á Óðinn. Ekki sama léttúðin, skulum við segja, hinn 30. apríl 1976 þegar togarinn Arctic Corsair sigldi á Óðinn en til eru magnað- ar ljósmyndir frá ásiglingunni. Pálmi Hlöðversson sagði um þennan atburð: – Gert við til bráðabirgða og svo vel að togararnir spurðu: Á hvora síðu Ægis keyrði Arctic Corsair en herskipið var búið að tilkynna að Óðinn væri „out“? Leyfið mér í blálokin að rifja upp kvöldið ægilega, 6. maí 1976, þegar lá við að skip sykki. Þá er mér Týr efst í huga en Óðinn var sannarlega líka í atinu. Freigátan Gurkha gerði Óðins- mönnum lífið leitt. Blessunarlega varð enginn mannskaði og sem betur fer sá mun meira á freigátunni en Óðni. En þetta var ekkert annað en stríðs- ástand, fannst mönnum um borð í Gurkha, sem sendu skeyti til London: – Óska leyfis fyrir allar freigátur til að mega nota fallbyssur og sprengjur í sjálfsvörn. Mermaid og Falmouth mikið skemmd. Varðskip reyna enn ásiglingar. Sagan er nefnilega þannig að hún get- ur verið ólík eftir því af hvaða stjórnpalli hún er sögð. Þetta getur valdið vanda síð- ar en um það ætla ég ekki að orðlengja. Hitt má alveg örugglega fullyrða að þorskastríðinu lauk með fullum sigri okkar manna. Samið var um tímabundin fiskveiðiréttindi Breta við Ísland en 1. desember 1976 hurfu breskir togarar fyrir fullt og allt af Íslandsmiðum. Stjórnstöð sendi þá skeyti til allra varðskipanna sem ég ætla að nota hér sjálfur sem niðurlags- orð: – Um leið og þessu 560 ára tímabili virðist nú lokið þá þökkum við ykkur öllum ánægjulega samvinnu á tímabilinu og segjum góða nótt. Þakkir Við segjum þó ekki góða nótt hér, ekki alveg strax, en þökkum svo sannarlega farsælan feril Óðins í þágu lands og þjóð- ar í áranna rás. Þökkum þeim sem voru um borð í Óðni í blíðu og stríðu og þökkum þeim sem sýna skipinu hina miklu virðingu að halda því við og tryggja þannig þjóðinni Óðinn sem lif- andi minnisvarða um þessa merku sögu. Kæru vinir, afsakið að ég festist í sögunni. Njótum saman þessarar stundar. Ég legg til að við sem hér erum klöppum Óðinsmönnum lof í lófa og þökkum þeim þeirra drjúgu störf í þágu lands og þjóðar um leið og ég þakka fyrir mig. (Fyrirsagnir eru Víkingsins) Óðinn siglir laskaður til lands. Mynd: Jón Páll Ásgeirsson Gurkha í apríl 1976. Yfirmenn um borð báðu stjórnvöld í London leyfis til að nota í sjálfsvörn fallbyssur og sprengjur á íslensku varðskipin. Mynd: Landhelgisgæslan ÓÐINN 60 Á Sjómannablaðið Víkingur – 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.