Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 18
Á hverjum mánudagsmorgni und- anfarin ár hafa níu vélstjórar mætt um borð í Óðin þar sem þeir hafa unnið hörðum höndum við að koma vélum skipsins í lag. Kannski ekki alltaf allir í einu, yfirleitt þó aldrei færri en sex, en hópurinn hefur verið samstilltur og markmiðið eitt, að gera Óðinn sigl- ingahæfan. Í þessum hópi er Ingólfur Kristmundsson. Við tókum hann tali. - Segðu mér ögn af sjálfum þér, Ingólfur, hver er menntun þín og hvaða taugar berðu til varðskipsins Óðins? Ég fæddur og uppalinn í Flóanum – áður Gaulverjabæjarhreppi – fluttist síðan á Selfoss en frá 1966 hef ég búið nánast óslitið í Reykjavík. Byrjaði vélstjórnarnám 1962 í því sem þá hét Mótornámskeið Fiskifélags Íslands og var upphaflega sett í gang vegna skorts á menntuðum vélstjórum í sí- stækkandi fiskiskipaflota. Var síðan næstu fjögur ár vélstjóri á bátum í Vest- mannaeyjum, Ísafirði og Þorlákshöfn. Hóf síðan nám í Vélskóla Íslands árið 1966 og útskrifaðist þaðan þremur árum síðar. Þetta var fyrsta árið sem vélstjórar með reynslu fengu inngöngu í Vélskólann án þess að hafa sveinspróf en möguleiki gefin á að gangast undir það eftir á til að fá yfirvélstjóra réttindi Réðst eftir skólann til Hnífsdals á vél- bátinn Guðrúnu Guðleifsdóttir, þá í eigu Miðfells hf í Hnífsdal undir stjórn hins landsfræga Jóakims Pálssonar. Bjó á Ísa- firði í tvö ár á Mjallargötu 6. Í júní 1971 fluttist ég svo til Reykjavíkur og hóf störf hjá Landhelgisgæslunni, fyrst á vs Ægi 12. júlí 1971 og síðan á flestum skipum Gæslunnar, þar á meðal Óðni, fyrst 5. janúar 1973, aðeins átján dögum fyrir eldgosið í Vestmannaeyjum. Óðinn var eitt fyrsta skipið á vettvang utan Vestmannaeyjabátanna. Við komum fyrir Eyðið um klukkan 12:30, einhverj- um tíu tímum eftir að gos hófst. Þá var nánast samfelld eldsprunga frá Helgafelli og niður undir hafnargarð. Þetta sama ár, eða 29. ágúst, var ég afskráður af Óðni. Samtals var ég skráður vélstjóri á vs Óðni í 560 daga. Tveimur árum síðar, eða 1975, tók ég sveinspróf í vélvirkjun frá Landssmiðjunni. Árið 1979 réðst ég til Jökla sem yfir- vélstjóri á Hofsjökli sem þá var stærsta og gangmesta skip á Íslandi og eru þá varð- skipin ekki undantalin. Hofsjökull var þá í Ameríkusiglingum með fisk fyrir Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna, SH, og fleiri aðila. Það var mikið og erfitt verkefni að halda við og lagfæra vélbúnað Hofsjökuls og nokkuð ólíkt vélstjórn varðskipanna. En ég átti því láni að fagna að hafa dug- lega og ósérhlífna vélstjóra og smyrjara með mér og með sameiginlegu átaki og mikilli vinnu tókst okkur að bæta eitt og annað og sigla skipinu vandræðalaust þann tíma sem ég var um borð. Þessi starfsferill gaf mér mikla og góða reynslu sem kom sér vel í starfi sem sölu- maður í skipatengdum vörum hjá Olís síðustu ár starfsferilsins. - Hvernig kom það til að þú fórst að vinna við Óðin og hvenær gerðist það? Ég varð snemma félagi í Hollvina- samtökum Óðins, þó án mikilla af- skipta í fyrstu. Svo var það síðla árs 2014 að við Halldór Olesen tókum að að- stoða Birgir Vigfússon, sem er starfsmað- ur Sjóminjasafnsins, við smávægileg „Handtökin orðin óteljandi“ Talið frá vinstri: Halldór Olesen, meistari í rennismíði. Brautskráður frá Vélskóla Íslands (VÍ) 1969. Vélstjóri hjá Hval hf til margra ára síðar á Skólaskipinu Sæ- björgu og einnig kennari í járnsmíðum við sinn gamla skóla í um tvo áratugi. Brynjar Pétursson, brautskráður frá VÍ 2016. Vélstjóri hjá Björgun, nú síðast á Dísu í Landeyjarhöfn. Búi Steinn Jóhannsson vélvirki. Brautskráður 1969 frá VÍ. Vélstjóri á bátum og togurum en lengst af starfsferils vélstjóri í virkjunum Landsvirkjunar. Bjarni Sigfússon, vélvirki VÍ 2016. Vélstjóri á skipum Ísfélagsins og Hugins í Ve. Birgir Óskarsson, vélvirki og rafvirki VÍ 1978.  Vélstjóri á togurum en lengst af hjá Eimskip og fjögur ár sem rafvirki í landi. Ingólfur Kristmundsson, vélvirki VÍ 1969. Vélstjóri á fiskiskipum til 1971 þá til Landhelgisgæslunnar sem 3. vélstjóri á vs Ægi. Starfaði sem vélstjóri á flestum skipum Gæslunnar til 1979, þá ráðinn yfirvélstjóri á Hofsjökul. Starfaði síðustu 24 ár starfsferilsins sem sölu og innkaupastjóri hjá Olíuverzlun Íslands hf. Á myndina vantar einn félaga, Gunnlaug Geir Guðbjörnsson, VÍ 1972. Vélstjóri á fiskiskipum en einnig starfsmaður FAO til margra ára í Indónesíu, Malasíu og víðar. Síðan myndin var tekin hafa bæst tveir vélstjórar í hópinn. Annar er Valur Kristjánsson, VI 1976. Vélstjóri á fiskiskipum og einnig við Laxárvirkjun og Kárahnjúka. Hinn er Leifur Ólafsson, VÍ 1975. Vélstjóri á  fiskiskipum en mestan hluta starfsferils í Caterpillar-viðgerðum, fyrst hjá Heklu og síðan Kletti hf. Svo ekki fari á milli mála þá eru allir ofantaldir vélfræðingar að mennt. ÓÐ 6 ÁRA 18 – Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.