Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 27
Sjómannablaðið Víkingur – 27 á Hala. Þar norðaustan stormur. Ekkert aðhafst. Trollið bundið upp. Haldið upp í veðrið, fyrst með hægri ferð, en síðar smám saman bætt við meiri og meiri ferð, eftir því, sem veðurofsinn fer vax- andi. Notuð full ferð að lokum. Kl. 11 e. m. reið brotsjór yfir skipið, er braut niður loftskeytastengurnar og sópaði fyrir borð öllu, sem lauslegt var ofan þilja, lifrartunnum (60 alls) og fiskikössum. Rúður brotnuðu í brúnni Á sunnudag 8. febrúar var sami veðurofsinn og fyrr, lát- laus stórhríð og hörkufrost. Kl. 16:00. var ég staddur í herbergi mínu. Kom stýrimaðurinn þá niður til mín og sagði veðrið nú heldur vægara; myndi sennilega vera orðið óhætt að gera tilraun til þess að leita lands. Fór ég þegar upp í brú, en var með naumindum kominn þangað, þegar hrikalegur brot- sjór hóf sig skyndilega upp fyrir framan skipið. Haldið var upp í sjóinn svo vel sem unnt var, en rétt áður en hann reið yfir skipið, var vélin stöðvuð. Þó var krafturinn svo mikill á sjónum, að hann mölbraut ofan af brúnni allan efri hluta stýrishússins, sem gerður var úr tré og svipti þilinu úr henni að aftan. Samtímis hratt hann skipinu svo harkalega aftur á bak, að stýrisstamminn snerist og lagðist stýrisfjöðrin fram á skrúfublöðin bak- borðsmegin. Skipið lagðist á stjórnborðs- hliðina, þannig að sjór flæddi niður í það um lúgur á „keis“. Kolin, saltið og fisk- urinn hentist til í skipinu, og voru menn sendir fram í lestina (gegnum „tunnel- inn“) til þess að lagfæra það. Skipið náð- ist fljótlega á réttan kjöl aftur, með því að taka áfram á vélinni, en ómögulegt var að hafa stjórn á því, því að stýrið var svo skakkt, að ekki var hægt að koma því miðskipa. Rak því skipið með öllu stjórn- laust, það sem eftir var dagsins, en án þess þó að fá á sig önnur veruleg áföll. Mánudaginn 9. febr. var látið reka, sem fyrr, fyrir sjó og vindi til kl.14:00. Þá var nokkuð farið að lægja veðrið. Reynt var að halda til lands, en sú tilraun varð árangurslaus, þar sem aðeins var hægt að stýra skipinu til bakborða. Gerð var til- raun til þess að ráða bót á þessu með því að setja út trollhlera stjórnborðsmegin, en það nægði ekki á móti stýrinu. Var því enn látið reka um stund. Sást þá skipsljós skammt í burtu og var neyðarrakettu skotið til þess að vekja á okkur athygli. Kom skipið þegar á vettvang, en það var breski togarinn St. Brelaid. Var óskað eftir að hann biði hjá okkur meðan tilraun yrði gerð til þess að lagfæra stýrið. Vegna sjógangsins reyndist það ómögulegt og voru þá ráðstafanir gerðar til þess að að- komutogarinn reyndi að draga okkur til lands. Togvírar hans voru dregnir yfir til okkar og einn liður af akkeriskeðju okkar lásaður við þá annars vegar, en í hinn enda keðjunnar voru togvírar okkar fest- ir, þannig að keðjan varð á milli víranna, til þess að draga úr mestu rykkjunum. Áður en skyggja tók um kvöldið sást til lands frá skipunum og vorum við þá staddir norðarlega á Breiðafirði. Var þá þegar breytt um stefnu og haldið í áttina til Patreksfjarðar. Veður var dágott, en þó voru vírarnir alltaf öðru hvoru að slitna. Á þriðjudag 10. febr., þegar komið var fyrir Bjarg, tók aftur að hvessa af NA. Kl. 12:00 á hádegi komum við loks til Pat- reksfjarðar við illan leik. Var þar lagst fyrir akkeri og 5 liðum af keðju. Veður var slæmt, NA, stormur og hríð. Eftir að lagst hafði verið á Patreksfirði var farið að huga að ýmsu um borð í skipinu, sem gengið hafði úr skorðum. Var þar ófagurt um að litast. Báðir bátarn- ir höfðu losnað og lafði annar þeirra að hálfu leyti út af bátapallinum að framan. Báðir voru þeir fullir af ís og bátaþilfarið allt að útliti eins og samfelldur jökull. Loftnetið, sem var hringjanet, hafði vafist utan um aftur-mastrið, sem var að um- máli eins og meðal-reykháfur. Allan mið- vikudaginn var unnið að því að koma stýrinu í lag. Sendi útgerðarfélagið, sem var Helly- ersbræður, þá með bækistöð í Hafnarfirði, einn af togurum sínum, Ceresio, til þess að fylgja okkur suður, því að báðir átta- vitar okkar höfðu farið fyrir borð um leið og brúna tók af skipinu. Þó að langt sé liðið síðan viðburður þessi gerðist, eru mér enn í minni þær verður haldinn föstudaginn 5. júní 2020 á Grand Hótel í Hvammi, 1. hæð kl. 14:00. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og ritara. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram og bornir undir atkvæði. 4. Umræður um skýrslu formanns og ársreikninga. 5. Kjöri stjórnar lýst. 6. Kjaramál. 7. Önnur mál. Stjórnin Félag skipstjórnarmanna Aðalfundur Félags Skipstjórnarmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.