Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Side 27
Sjómannablaðið Víkingur – 27
á Hala. Þar norðaustan stormur. Ekkert
aðhafst. Trollið bundið upp. Haldið upp í
veðrið, fyrst með hægri ferð, en síðar
smám saman bætt við meiri og meiri
ferð, eftir því, sem veðurofsinn fer vax-
andi. Notuð full ferð að lokum. Kl. 11
e. m. reið brotsjór yfir skipið, er braut
niður loftskeytastengurnar og sópaði fyrir
borð öllu, sem lauslegt var ofan þilja,
lifrartunnum (60 alls) og fiskikössum.
Rúður brotnuðu í brúnni Á sunnudag 8.
febrúar var sami veðurofsinn og fyrr, lát-
laus stórhríð og hörkufrost.
Kl. 16:00. var ég staddur í herbergi
mínu. Kom stýrimaðurinn þá niður til
mín og sagði veðrið nú heldur vægara;
myndi sennilega vera orðið óhætt að
gera tilraun til þess að leita lands. Fór ég
þegar upp í brú, en var með naumindum
kominn þangað, þegar hrikalegur brot-
sjór hóf sig skyndilega upp fyrir framan
skipið. Haldið var upp í sjóinn svo vel
sem unnt var, en rétt áður en hann reið
yfir skipið, var vélin stöðvuð. Þó var
krafturinn svo mikill á sjónum, að hann
mölbraut ofan af brúnni allan efri hluta
stýrishússins, sem gerður var úr tré og
svipti þilinu úr henni að aftan. Samtímis
hratt hann skipinu svo harkalega aftur á
bak, að stýrisstamminn snerist og lagðist
stýrisfjöðrin fram á skrúfublöðin bak-
borðsmegin. Skipið lagðist á stjórnborðs-
hliðina, þannig að sjór flæddi niður í það
um lúgur á „keis“. Kolin, saltið og fisk-
urinn hentist til í skipinu, og voru menn
sendir fram í lestina (gegnum „tunnel-
inn“) til þess að lagfæra það. Skipið náð-
ist fljótlega á réttan kjöl aftur, með því að
taka áfram á vélinni, en ómögulegt var að
hafa stjórn á því, því að stýrið var svo
skakkt, að ekki var hægt að koma því
miðskipa. Rak því skipið með öllu stjórn-
laust, það sem eftir var dagsins, en án
þess þó að fá á sig önnur veruleg áföll.
Mánudaginn 9. febr. var látið reka,
sem fyrr, fyrir sjó og vindi til kl.14:00. Þá
var nokkuð farið að lægja veðrið. Reynt
var að halda til lands, en sú tilraun varð
árangurslaus, þar sem aðeins var hægt að
stýra skipinu til bakborða. Gerð var til-
raun til þess að ráða bót á þessu með því
að setja út trollhlera stjórnborðsmegin,
en það nægði ekki á móti stýrinu. Var því
enn látið reka um stund. Sást þá skipsljós
skammt í burtu og var neyðarrakettu
skotið til þess að vekja á okkur athygli.
Kom skipið þegar á vettvang, en það var
breski togarinn St. Brelaid. Var óskað eftir
að hann biði hjá okkur meðan tilraun
yrði gerð til þess að lagfæra stýrið. Vegna
sjógangsins reyndist það ómögulegt og
voru þá ráðstafanir gerðar til þess að að-
komutogarinn reyndi að draga okkur til
lands. Togvírar hans voru dregnir yfir til
okkar og einn liður af akkeriskeðju okkar
lásaður við þá annars vegar, en í hinn
enda keðjunnar voru togvírar okkar fest-
ir, þannig að keðjan varð á milli víranna,
til þess að draga úr mestu rykkjunum.
Áður en skyggja tók um kvöldið sást
til lands frá skipunum og vorum við þá
staddir norðarlega á Breiðafirði. Var þá
þegar breytt um stefnu og haldið í áttina
til Patreksfjarðar. Veður var dágott, en þó
voru vírarnir alltaf öðru hvoru að slitna.
Á þriðjudag 10. febr., þegar komið var
fyrir Bjarg, tók aftur að hvessa af NA. Kl.
12:00 á hádegi komum við loks til Pat-
reksfjarðar við illan leik. Var þar lagst
fyrir akkeri og 5 liðum af keðju. Veður
var slæmt, NA, stormur og hríð.
Eftir að lagst hafði verið á Patreksfirði
var farið að huga að ýmsu um borð í
skipinu, sem gengið hafði úr skorðum.
Var þar ófagurt um að litast. Báðir bátarn-
ir höfðu losnað og lafði annar þeirra að
hálfu leyti út af bátapallinum að framan.
Báðir voru þeir fullir af ís og bátaþilfarið
allt að útliti eins og samfelldur jökull.
Loftnetið, sem var hringjanet, hafði vafist
utan um aftur-mastrið, sem var að um-
máli eins og meðal-reykháfur. Allan mið-
vikudaginn var unnið að því að koma
stýrinu í lag.
Sendi útgerðarfélagið, sem var Helly-
ersbræður, þá með bækistöð í Hafnarfirði,
einn af togurum sínum, Ceresio, til þess
að fylgja okkur suður, því að báðir átta-
vitar okkar höfðu farið fyrir borð um leið
og brúna tók af skipinu.
Þó að langt sé liðið síðan viðburður
þessi gerðist, eru mér enn í minni þær
verður haldinn föstudaginn 5. júní 2020
á Grand Hótel í Hvammi, 1. hæð kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða þess
lagðir fram og bornir undir atkvæði.
4. Umræður um skýrslu formanns og ársreikninga.
5. Kjöri stjórnar lýst.
6. Kjaramál.
7. Önnur mál.
Stjórnin
Félag skipstjórnarmanna
Aðalfundur
Félags Skipstjórnarmanna