Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur móttökur, sem ég og skipshöfn mín fékk að þessu sinni hjá Ólafi Jóhannssyni konsúl og fjölskyldu hans á Patreksfirði. Þær móttökur komu sér vel, því að flestir vorum við illa haldnir eftir hina erfiðu útivist. Sjórinn kastaði skipinu á hliðina Næstur til frásagnar er Jón Högnason (1891-1989), skipstjóri á Gulltoppi. Jón var faðir þeirra Högna skipstjóra hjá Skipaútgerð Ríkisins og Gríms stýrimanns á b/v Ingólfi Arnarsyni og tengdafaðir hins happasæla skipstjóra þar, Sigurjóns Stefánssonar. – Á laugard. 7. febr. 1925 var verið á Halamiðum. Hægviðri og nokkur snjó- koma. Með birtu skellur á hvassviðri frá ANA. Kl. 14:00 hætt að toga, var þá komið hvassviðri og mikill sjór. Skipinu andæft upp í sjó og vind með hægri ferð. Klukk- an 22:00 kom brotsjór á skipið bak- borðsmegin, sem skemmdi bæði öldu- stokk og brúarvæng, síðuljósker og hlíf, enn fremur brotnuðu rúður í stýrishúsi og ýmislegt fleira skemmdist. Eftir þetta varð að hafa ýmist fulla eða hálfa ferð til þess að halda skipinu upp í. Sunnudaginn 8. febrúar 1925 var komið fárviðri frá ANA með mikilli snjó- komu og frosti. Skipinu haldið upp í veðrið með ýmist hálfri eða fullri ferð. Rétt eftir miðnætti kom brotsjór á stjórn- borðssíðu og kastaði skipinu á hliðina; mestallt saltið í lestinni kastaðist yfir í bakborðssíðu og mikið af kolum kastað- ist til, annar björgunarbáturinn brotnaði og allar lifrartunnurnar fóru fyrir borð og miklar skemmdir urðu aðrar. Var þá nokkuð af skipshöfninni sent niður í lest og kolabox, til að moka til salti og kolum og reyna með því að rétta skipið við. Eftir á að giska 30 mínútur var skipið komið á réttan kjöl aftur. Þegar birti um morguninn sást að loft- skeytastöngin á frammastri var brotin og loftnetið slitið niður. Allar rafleiðslur voru eyðilagðar og skipið því ljóslaust of- andekks, báðir áttavitarnir duttu niður og eyðilögðust. Mánudagur 9. febrúar. Vindur og sjór úr sömu átt en farið að lygna. Um kl. 2300 var farið að stíma; dýpi er þá 90 faðmar; stefna sett SV. Þegar birti sást Látrabjarg á bakborða, og kom þá í ljós að skipið hafði farið 25 sjómílur aftur á bak í ofviðrinu. Klukkan 1400 þvert af Malarrifi. Var þá komið upp loftneti og náð sambandi við Reykjavík. Var Gulltoppur, að sögn loftskeyta- stöðvarinnar í Reykjavík, fyrsta skipið, sem hafði samband við hana eftir ofviðr- ið. Klukkan um 2100, hinn 10 febrúar komið til Reykjavíkur. Þriðjudaginn 10. mars 1925 fóru fram minningarathafnir í Dómkirkjunni og Fríkirkjunni í Reykjavík og í tveimur kirkj- um í Hafnarfirði. Um kvöldið fór að snjóa. Nóttina á eftir tók ungur listamaður, Ríkarð- ur Jónsson, sig til og skapaði mikið listaverk úr nýföllnum snjónum. Sýndi það sjómann í fullum sjóklæðum standa í stafni báts. Í bátinn var settur söfnunarbaukur og komu í hann 1.800 krónur. Skallagrímur RE-145 tók þátt í leitinni af slíkri ákefð að skipið varð nær kolalaust og neyddist til að leita til hafnar fyrr en skyldi. Gulltoppur RE-247. Lá á hliðinni í tæpar 30 mínútur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.