Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur
Gámamagn um hafnir Bandaríkjanna óx frá 28.3
milljónum TEU á árinu 2000 til 46,5 milljóna á árinu
2014. Reyndar náði magnið hámarki 2007, 44,8
milljónir TEU og féll eftir það og náði nýju hámarki
7 árum síðar 1,7 milljónum meira, svo ekki er víst
hvort vænta megi mikils vaxtar á næstu árum.
Í samhengi
Albatross er nafn MSC á rútu milli norður Evrópu-
hafna og Norðaustur-Asíu, Kína og Kóreu með við-
komu í Singapore/ Tanjung Pelepas á hvorri leið.
Vegalengdin fram og til baka er 25.500 sml og siglt
að jafnaði á 18 hnúta hraða og nýttir 180 gr per kW
tíma. Til einföldunar er rútunni skipt í tvennt og
siglt 793 klst hvora leið. Reiknað er með að jafnaði
60% nýtingu á TEU plássi.
Þessi leið er ein sú lengsta í öllum áætlunum
stærstu skipafélaganna og því kostnaður meiri en við
flestar aðrar leiðir. Útreikningurinn styrkir þá stað-
hæfingu að heildarkostnaður er meiri en heildarábati.
Kostnaður vegna fjármagns, reksturs og olíu er sem
hér segir:
Áður hefur verið minnst á að í tveimur höfnum á austur-
strönd Bandaríkjanna hafi auka kostnaður við að taka á móti
stærri skipum verið um það bil $ 100 á TEU sem fer um hafn-
irnar. Má ætla að kostnaður hafna fyrir hverja flutta TEU sé um
það bil $120- $150 sem gerir meira en að éta upp sparnað af
nota 20.586 TEU í stað 8.000 TEU.
Hér hefur ekki verið tekið tillit til að hafnartími stærri skip-
anna er mun lengri en þeirra minna, enda afköst hvers krana
minni eftir því sem skip stækkar. Þrátt fyrir að hægt sé að koma
fleiri krönum að, er framleiðni á bryggjupláss samt lægri.7
Tímann sem minni skip spara er hægt að nota til að minnka
hraðann og spara olíu, eða halda hraða og nota færri daga, færri
skip til að klára hringinn. Hvort sem hraðinn er minnkaður eða
færri skip notuð minnkar kostnaður frá $ 395 um einhverja
tugi dollara, þannig að hagkvæmni minni skipa eykst hlutfalls-
lega.
Framleiðni í höfnum
Það sem veldur mestum vonbrigðum í rekstri risa skipa er sá
tími sem losun og lestun tekur. Lengri tími í höfn á leiðinni
lengir heildarsiglingatíma hringferðar.
Skip með 18.000 TEU þarf 10.800 hreyfingar til losunar og
annað eins við lestun. Þá þarf oft að forfæra gáma og lúgur inn-
an skips eða á bryggju. Flestar hafnir hafa einungis eina komu í
hringferð og er því bæði losað og lestað í hafnartímanum.
Útgerðir ætlast til 6.000 hreyfinga en það mesta sem þær fá
eru 3.500 hreyfingar á sólarhring. Munur á milli óska og þess
sem fæst eru 8, 6 dagar sem er heilt skip í 11 vikna hringferð
sem færi niður í 10 vikur.
Það er hægt að raða 13 krönum á stærstu skip, en þó til séu
hafnir með það marga lausa krana, þá eru 7 kranar líklegra
meðaltal fyrir 80% magnsins og 5 fyrir restina. Tæknilega með
samhliða (tandem) spreaders eins og sýndir eru á skýringar-
myndinni, er hægt að ná 40 hreyfingum á krana á klukkustund.
Ef við segjum að skip hafi gáma sem samsvari 6000 hreyfingum
og 7 krana til reiðu og hver mínúta sé nýtt þá er þetta tækni-
lega mögulegt á 23 tímum. Reyndar á að vera hægt að ná meiru
en 40 hreyfingum, hér er átt við annað hvort 2*20´eða 1*40´. Í
raun er tveimur slíkum einingum lyft í einu.
En vandinn eru ekki kranarnir, heldur skipulag á hreyfing-
um til og frá krananum, sem hefur enn ekki verið leystur á full-
nægjandi hátt. Vera má að ein ástæðan sé að menn séu ekki til-
búnir með 7 gengi, sem mundi þýða 30 flutningstæki milli
krana og stæðu og 16 tæki fyrir gámastæðurnar. Fjöldi og gerð
tækja veltur á hvaða tækni er notuð. Þessi tæki þurfa að vera til
reiðu 24 tíma á sólarhring og ef þörf er á 7 daga vikunnar.
Vandinn er, að það er fjarri því að full nýting fáist á þennan
búnað og mannskap.
Menn geta leyft sér að bera saman við 8-10.000 TEU skip,
sem koma oftar og með minna hverju sinni. Þar væru menn
væntanlega himinlifandi að fá 4-6 krana.
Tvær ferðir
Til að fá betri skilning á hringferðum stærstu skipa var fylgst
með Madrid Maersk og Munich Maersk frá september 2017 til
janúar 2018 Skipin eru ekki á sömu rútunni.
Munich Maersk er á 12 vikna rútu þar sem 25% tímans er í
höfn, 75% á sjó. Það voru 17 komur til hafna, til lestunar og
losunar, 8 sinnum í Asíu, 8 sinnum í Evrópu og Tangier í
7 JOC.COM 301117, Midsize vessels outpace mega-ships in berth productivity
TEU $/borgandi pláss Sparnaður við að nota stærra skip á TEU
8.000 395 12.500 – 8.000 $ 60
12.500 335 20.656 – 8.000 $ 132
20.568 263
Afköst gámakrana minnka þegar skip stækka.
Gámakrani fyrir skip gærdagsins. Það er með 22 gámaraðir meðan skip morgundagsins
hefur 24 raðir. Þá er skipið með 16 lög samtals í lest og á dekki, en framtíðin er 12 í lest og
12 á dekki. Því þarf kraninn að ráða við efstu gáma 23 metrum hærri en þeir sem sjást á
teikningunni sem tekin er ófrjálsri hendi úr Quay Cranes in Container Terminals birt í
TRANSACTION ON TRANSPORT SCIENCES NUMBER 1 2013.