Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Page 49
Skutull bjargar áhöfn Atos
Hinn 3. ágúst sl. var togarinn Skutull staddur norðaustan við Ísland á leið til Fleetwood. Veður var gott, en lítið
skyggni vegna þoku. Sáu þá skipverjar tvo báta með mönnum. Reyndust þetta björgunarbátar af 3500 smálesta
gufuskipi frá Helsingborg í Svíþjóð, Atos að nafni. Í bátunum voru 27 manns, 26 karlar og ein kona. Skutull lagði
að bátunum og tók skipbrotsmennina. Voru þeir mjög klæðlitlir, margir hverjir, berfættir sumir og á nærfötun-
um. Fengu allir föt og vistir og alla aðhlynningu svo sem bezt var hægt í té að láta.
Skipið Atos hafði látið úr höfn í Glasgow í Skotlandi á leið til Petsamo í Finnlandi. Voru á skipinu 22 skipverj-
ar og 6 farþegar. Farþegarnir voru sænskur verkfræðingur og kona hans, bæði á leið heim til Svíþjóðar frá
London og skipstjóri og þrír aðrir skipverjar af sænsku skipi, sem skotið hafði verið tundurskeyti fyrir skemmstu
og öll skipshöfnin farizt nema þessir fjórir menn. Þýzkur kafbátur hafði skotið tundurskeyti á Atos. Bátsmaður-
inn hafði verið á afturþiljum við að ganga frá einhverju. Allt í einu flugu lestarhlerarnir í loft upp og strókur stóð
upp úr lestinni. Fórst þarna bátsmaðurinn, og var þetta í 6. skipti, sem skip, sem hann var á, varð fyrir tundur-
skeyti. Fjórum sinnum hafði hann lent í skipreka vegna tundurskeyta á árunum 1914-18, og einu sinni í þessari
styrjöld áður en hann kom á Atos. Skipverjar komust í bátana, en aðeins 6 mínútum eftir að skipið varð fyrir
tundurskeytinu, var það sokkið. Illa var skipbrotsmönnunum við það að vera undir þiljum á Skutli, og höfðust
margir þeirra við í göngum, eldhúsi og bræðsluhúsi. Óttuðust þeir nýja árás, og einkum brá þeim, þegar Skutull
lét hvína í eimpípunni vegna þoku. Skipbrotsmönnunum var skilað á land í Fleetwood. Orð höfðu þeir á því, að
frekar hefðu þeir kosið, að Skutull hefði verið á leið til Íslands. Þar mundi vera gott að búa á þessum hinum
verstu tímum.
Skutull. 17. ágúst 1940.
Sjómannablaðið Víkingur – 49
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Dælur
• Dæluviðgerðir
• Ásþétti
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
Viðgerðir • Tæringarvarnir
Keramikhúðun
Fyrir Eftir