Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Side 68
68 – Sjómannablaðið Víkingur
Eftirminnileg atvik, eitt eða fleiri?
Við félagarnir á Þorranum vorum að
klára að dæla síld um miðja nótt í Mjóa-
firði og vorum að við töldum einir á
sjó. Rennir þá ekki árabátur upp að hlið
okkar. Undir árum sat gamall maður og
kona – sennilega á miðjum aldri eða í
okkar augum kelling – sem sá um að
skipstýra fleyinu. Þarna var komin Anna
á Hesteyri ásamt vinnumanni til að gá
hvurt við ættum ekki einhverja síld
handa skepnunum. Jú, við áttum næga
síld til að hálffylla skektuna. Síðan
bauðst Friðrik Stefánsson skipstjóri til
þess að slefa þeim eitthvað áleiðis í land
því að þau voru komin ansi langt frá He-
steyri, en nei Anna heitin hélt nú að
karlinn gæti bara róið þetta og það varð
úr.
Hver er mesta breyting siglingatækja sem
þú hefur upplifað?
GPS staðsetningarbúnaðurinn verður
að teljast ein af betri breytingum ásamt
þróuninni á siglingaforritum
Hvernig finnst þér um kvótakerfið og
hvernig það hefur virkað?
Ég held að kvótakerfið hafi klárlega
verið nauðsynlegt en hvort það var nægi-
lega vel útfært í byrjun skal ósagt látið.
Það er vissulega dapurleg að sjá hvernig
mörg bæjarfélög hafa farið eftir að kvót-
inn hefur verið seldur á brott, en út frá
fiskverndarsjónarmiði eða sjálfbærnis-
sjónarmiði hefur það virkað.
Hvernig finnst þér fiskifræðin hafa staðið
sig við að meta veiðiþol stofna?
Ég er búinn að taka þátt í ansi mörg-
um togararöllum á vegum Hafró og veit
nokkuð hvernig þetta fer fer fram veiði-
lega séð en fræðilega hliðin er mér ráð-
gáta. Ég held þó að þeir eða öllu heldur
þau hafi staðið sig ágætlega í að finna
veiðiþol þó að skipstjórar víða um land
geti haft allt aðra skoðun.
Hvað áhrif telur þú að hlýnun jarðar
muni hafa á fiskistofna við Ísland í fram-
tíðinni?
Ég sé ekki annað en að fiskgengd hafi
hafi almennt þokast norður á bóginn í
samræmi við hækkandi botnhita fyrir
suðurströndinni. Þetta er því miður
löngu hafið.
Hefur þér tekist að vekja áhuga afkom-
endanna (ef einhverjir eru) á sjó-
mennsku?
Nei, ég hef ekki reynt að gera sjó-
menn úr mínum afkomendum.
Mundir þú mæla með sjómennsku eða
skipstjórn sem starfsvettvang við ungt
fólk í dag?
Því ekki það, þetta er örugglega ekki
verri vinna en mörg önnur fyrir utan sí-
versnandi vetrarveður og hættur sem
þeim fylgja.
Og að lokum fyrir bókaorma, áttu þér
uppáhaldsbók og hvaða bók ertu að lesa
núna?
Ég er enginn bókaormur, því miður.
Hjálmar Sigurjónsson er kallinn í brúnni.
Cuxhavengötu 1 · 220 Hafnarfirði
Sími: 560 4300
saltkaup@saltkaup.is · www.saltkaup.is
SALT
Umbúðalausnir – Rekstrarvörur – Íbætiefni