Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 86
86 – Sjómannablaðið Víkingur
bátur var sjósettur í Vör „og svo var
maður mættur niður á bryggju alla daga
þegar skólinn var búinn til að fara með í
prufusiglingar.“
Halldór, sá kunni knattspyrnumaður á
árum áður bætir við: „Þá var slegist um
að vera fremst, það var svo spennandi að
fá gusur í andlitið.“
Þannig atvikaðist að Halldór var
staddur á Húsavík haustið 2015 vegna
atvinnu sinnar og fór, eins og svo oft
áður, niður á höfn að skoða báta! Þar eru
einmitt margir afar glæsilegir eikarbátar,
notaðir í hvalaskoðun. „Þar sá ég þennan
og ræddi það við Egil strax og ég kom
heim að nú væri tækifærið. Við komumst
að því hver átti bátinn, Egill hringdi í
hann og karlinn sagðist strax vilja selja
okkur hann.
„Hann gaf mér upp verð, ég sagði að
ef okkur litist á bátinn myndum við
kaupa hann á þessu verði. Við fórum svo
austur og þú veist hvernig þetta endaði!“
Þeir vilja ekki gefa upp kaupverð en
segjast vitaskuld meira en að segja það
að fara út í slíka fjárfestingu. „Við erum
hins vegar að kaupa miklu meira en bát; fortíðarþráin er svo
mikil og þessir bátar eru glæsilegar mublur. Við erum alls ekki
bara að kaupa bát heldur ættardjásn.“
Stofnendur og eigendur Varar voru sex skipasmiðir sem
starfað höfðu í Slippstöðinni hf. en hættu þar og stofnuðu eigið
fyrirtæki. Þeir voru Kári Baldursson, Jón Steinbergsson, Gauti
Valdimarsson, Áskell Egilsson sem áður er nefndur og náfrænd-
ur hans, Áskell Bjarnason og Hallgrímur Skaptason. Þrír síðar-
nefndu voru bræðrasynir, ættaðir frá Grenivík.
Báturinn var dreginn til Akureyrar og bræðurnir tóku til við
ýmsar lagfæringar. Hvalbak hafði verið bætt á bátinn og fyrst
verk þeirra var að rífa hann af, því þeir vildu hafa bát sinn eins
og hann var upprunalega. Síðan var skrapað og málað og ann-
að gert sem nauðsyn þótti.
Hafþór orðinn Ási. Báturinn liggur við Torfunefsbryggju og fer ekki á milli mála að ófá handtök þarf til að reisa hann til vegs og virðingar á ný.
Hallgrímur Skaptason og Svala Halldórsdóttir, ekkja Áskels Egilssonar. Hallgrímur veitti bátasmiðjunni Vör
forstöðu og tók þátt í að stofna fyrirtækið með Áskeli og fleiri góðum mönnum.