Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 95
Sjómannablaðið Víkingur – 95
Svo veit ég ekki hver sagði þetta en stend í þeirri trú að
það hafi verið Íslendingur. Kannski geta lesendur leyst gátuna
fyrir mig:
„Ekkert starf getur verið mannlegum anda samboðnara en að
höndla sannleikann.“
„Já, það má segja, þetta er mannskæð styrjöld.“
Haft eftir ónefndum Íslendingi sem tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni
er hann gægðist upp úr skotgröf sinni og rigndi þá sprengikúlum sem
þéttast allt umhverfis.
„Hverjum endanum á ég að trúa?“
Gamall sveitamaður, þar sem hann stóð andspænis hundi er fitjaði
upp á trýnið og yggldi sig en dillaði skottinu um leið mjög vinalega.
„Læri mennirnir að skilja, þá læra þeir síðar að fyrirgefa og elska.
Skilningurinn er jafn nauðsynlegur fyrir mannssálina, til þess að
nokkuð gott geti þróast í henni, eins og plægingin er fyrir ak-
urinn.“
Sigurður Nordal
„Það fyrirfinnst ekki svo lítil spýta að honum takist ekki að búa
til úr henni axarskaft.“
Sagt um klaufskan stjórnmálamann
.
„Það eru álíka miklar líkur til þess að úr ófriði verði ekki eins og
það að drukkinn maður hætti við að taka upp flösku.“
Eggert M. Laxdal listmálari aðspurður sumarið 1939 hvort
drægi til heimsstyrjaldar.
„Nú er mein að magaleysinu.“
Matmaður, búinn að borða yfir sig en hafði enn gnægð
matar fyrir framan sig.
„Ég vil heldur fást við tíu þjófa á Skagaströnd en einn djöful í
Miðfirði.“
Bogi Brynjólfsson sem var um skeið sýslumaður Húnvetninga.
„Nú er ekki langt síðan að þú, blessaður herrann, reiðst einni
ösnu inn í Jerúsalem. Taktu nú þessa þína voluðu ösnu, Kristínu
Ketilsdóttur, sem hér liggur dauðveik inni í bænum og ríddu
henni inn í þá himnesku Jerúsalem.“
Prestur á Munkaþverá á stólnum þegar hann á pálmasunnudag bað
fyrir sjúkri vinnukonu sinni.
„Ég er orðinn löngu leiður á helvítis tittlingatístinu í honum Guð-
mundi.“
Einar Benediktsson um Guðmund Guðmundsson skáld.
„Það versta við rónana er að þeir koma óorði á brennivínið.“
Árni Pálsson.
„Varla, ef hún er iðkuð eingöngu.“
Ýmsum hefur verið eignuð þessi setning en sennilegast verður að telja
að hún sé runnin undan rifjum séra Jóns Steffensens prófasts þegar
hann svaraði spurningunni um hvort kynvilla væri ættgeng.
„Nú bið ég þig um náð, Drottinn. Um speki bið ég þig ekki, af
henni hef ég nóg.“
Andlátsorð Sölva Helgasonar.
Og mundu að þú mátt alls ekki slökkva þegar þú ferð að sofa!
Breskir hermenn í fyrra stríði sem varð sannarlega mannskætt eins og Ís-
lendingurinn í skotgröfinni ályktaði.