Borgfirðingabók - 01.12.2012, Page 122
122 Borgfirðingabók 2012
Músa-Bölverki þótt ófriðarblika á norðurlofti eftir þennan atburð, því
þá gerir hann það tvennt að hann gerir virki heima á bæ sínum, að
Hraunsási og svo veitir hann Hvítá úr sínum fyrri farvegi í gegnum
ásinn, en „áður féll hún um Melrakkadal ofan“, og svo heldur áfram
„Illugi og Tindur sóttu Bölverk í virkið“. Svo hljóðar póstur sá.
ef marka má þessa frásögn þá segir hún berum orðum að Músa-
Bölverkur hafi veitt Hvítá norður fyrir bæ sinn að Hraunsási, en áður
rann að sunnan um Melrakkadal. dalurinn sunnan Hraunsáss heitir
nú Skolladalur, og er nafnbreyting, en ekki meiningar. dalurinn er all-
einkennilegur og gæti verið gamall árfarvegur. Hann er bæði djúpur
og þröngur, eins og farvegur Hvítár er víða í Hvítársíðu, en nú til
dags er botn Skolladals allmikið hærri á kafla, en vatnsborð Hvítár,
þar sem hún nú rennur við Gunnlaugshöfða, þar sem farvegurinn á
að hafa verið gerður. Vera má að botn dalsins hafi hækkað, eða að áin
hafi grafið sér dýpri farveg, því að langt er síðan að þetta á að hafa
átt sér stað og margar lagareiningar af vatni farið um farveginn í allar
þær aldir sem síðan eru liðnar, og víða hafa líka orðið meiri og minni
breytingar á hæð lands á sama tíma. Það verður því hvorki sannað né
afsannað hve örugg sögnin er og meðan svo stendur, ber að reikna
með að frásögnin hafi við eitthvað að styðjast.
en þó að Músa-Bölverkur hafi gert þetta, bæði virkið og nýjan
árfarveg, dugði það honum ekki gegn Hallkellsstaðabræðrum sem
Hvítá við Gunnlaugshöfða í fjarska sést í Gilsbakka. Mynd Ómar Arason.