Borgfirðingabók - 01.12.2012, Page 194
194 Borgfirðingabók 2012
Sigurkarl Gústafsson, frjálsar íþróttir, 2002, 2003
Tinna Kristín Finnbogadóttir, skák, 2006
Sigurður Þórarinsson, körfubolti, 2007
Bjarki Pétursson, golf, 2008, 2010. 2011
Trausti eiríksson, körfubolti, 2009
Skák
Skákáhugi hefur verið töluverður innan UMSB gegnum tíðina og hafa
verið haldin skákmót á þess vegum. Árið 1968 var skákkeppni innan
sambandsins og á árunum 1972-1975 voru haldnar sveitakeppnir. Á
árunum 1972 og 1974 var stofnanakeppni og firmakeppni og kom
Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari í heimsókn og tefldi fjöltefli.
Á árunum 2003-2006 voru haldin innanfélagsmót. Sá Helgi Ólafsson
stórmeistari um skákæfingar innan UMSB.
Húsafellsmótin
Á þinginu 1967 var samþykkt að heimila stjórninni að gangast fyrir
útihátíð. Farið var af stað strax um vorið að undirbúa útihátíð að
Húsafelli sem haldin var um verslunarmannahelgina. Vandað var til
skemmtiatriða og tókst samkoman vel. Mikil vinna var á höndum
ungmennafélaga til að sem best tækist. Lagður var vegur um sam-
komusvæðið, reistir danspallar, smíðaðir söluskúrar og kamarhús,
settur upp íþróttavöllur og byggt leiksvið. Alls komu um 7000 manns
á hátíðina. Á næstu árum voru einnig útihátíðir og árið 1969 er talið
að yfir 20000 manns hafi sótt hátíðina. Síðasta útihátíðin var haldin
1976. Skipulag, undirbúningur og framkvæmd þessara móta hvíldi á
herðum stjórnarmanna UMSB. Árið 1987 var Húsafellsmótið endur-
vakið, en þá á öðrum stað í landi Húsafells. ekki varð af frekari
útihátíðum. Húsafellshátíðirnar gáfu mjög góðar tekjur framan af,
en síðari árin varð tap á þeim. Nokkur ár eftir Húsafellsmótin hélt
UMSB dansleiki um verslunarmannahelgina.
Aðrar skemmtanir
UMSB tók þátt í Borgfirðingavöku 1974 í samstarfi við önnur félaga-
samtök í héraðinu. ekki voru þessar samkomur árlega, síðast var
haldin Borgfirðingavaka 1989. Árið 2001 var staðið að svokölluðu
Vorblóti, þar sem listamenn úr héraðinu komu saman í Íþróttamið-