Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 9
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 98 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
félagsstörf
Félagslífið 2022
höfundur unnur berglind friðriksdóttir, formaður lmfí
Nóg hefur verið um að vera hjá ljósmæðrum á þessu
ári enda komin uppsöfnuð þörf á því að hittast á ný
eftir langan og strembinn heimsfaraldur.
Fræðsludagur ljósmæðra var haldinn 13. maí
á Nauthól í samstarfi við Þróunarmiðstöð íslenskrar
heilsugæslu, Háskóla Íslands og Landspítala. Upp
selt var á sjálfan fræðsludaginn þar sem hundrað
ljós mæður komu saman en þema dagsins voru hin
ýmsu skipulags form á ljósmæðraþjónustu. Virki lega
skemmtilegir og áhugaverðir fyrirlestrar prýddu dag
skrána og ekki síður var gaman að hitta ljós mæður
og spjalla.
Ljósmæðrafélag Íslands hefur haldið nokkra
fjar fundi á árinu. Tæknin býður upp á hentuga að ferð
til að koma saman eina kvöldstund hvar sem við
erum á landinu og hlusta á fræðsluerindi. Hingað
til hafa erindin eingöngu verið frá ljós mæðrum,
enda sérhæfing stéttarinnar mjög mikil og á ólíkum
sviðum. Í janúar fjallaði dr. Sigfríður Inga Karlsdóttir
prófessor við Háskólann á Akur eyri um jákvæða
fæðingar reynslu. Í mars voru það Hallfríður Jóns
dóttir ljósmóðir og brjósta ráð gjafi sem flutti erindi
um brjóstagjöf og Hafdís Guðna dóttir ljósmóðir,
sem hefur sérhæft sig í svefni ung barna, sem var
með fyrirlestur um svefn nýbura. Í október fjallaði
ljósmóðirin Gréta Rún Árnadóttir, sem stundar
diplóma nám í geðheilbrigðisfræði við Háskólann
á Akureyri, um líðan kvenna á með göngu og gaf
ljósmæðrum gagnlega og hag nýta ráð gjöf á því
sviði. Í nóvember flutti Steinunn Zophoníasar
dóttir ljósmóðir erindi um breytinga skeið kvenna
en Steinunn er ein af þeim sem koma að kvenna
móttökunni á Heilsugæslu höfuð borgar svæðisins.
Stefnt er að því að halda áfram með „zoom kvöldin“
okkar annan hvern mánuð yfir vetrar tímann, en
fundirnir hafa verið teknir upp og eru aðgengi legir
á heimasíðu félagsins í einhverja daga á eftir. Gefst
þannig öllum tækifæri til að horfa og hlusta á erindin.
Stjórn Ljósmæðrafélagsins, f.v. Gréta María Birgis-
dóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Bryndís Ásta Bragadóttir,
Unnur Berglind Friðriksdóttir, Hafdís Guðnadóttir og
Guðlaug María Sigurðardóttir. Á myndina vantar Ingu
M. H. Thorsteinson sem er í leyfi.
Ljósmæður á GynZone námskeiði á Akureyri
í nóvember 2022.
Ljósmæðrafélag Íslands hefur einnig nýtt
fjar fundabúnaðinn í hádegisfræðslu, m.a. um Betri
vinnu tíma, Stafræna Ísland, þ.e. umsóknarferlið fyrir
fæðingar or lof, og nú síðast þegar Herdís Storgaard
fjallaði um öryggi í svefnumhverfi ungbarna. Eins
var félagið í samstarfi við ljósmóðurina Heiðdísi
Dögg Sigurgeirsdóttur varðandi fræðslu um grindar
botninn sem sjúkraþjálfarar hjá Hraust fluttu og var
það erindi mjög vel sótt.
Tveir kennarar frá danska ljósmóðurfyrirtækinu
GynZone komu hingað til lands á vegum félagsins
og voru með námskeið í Reykjavík og á Akureyri.
Því miður komust mun færri að en vildu og verður
því stefnt að því að halda aftur námskeið á næsta
ári. Nálastungunámskeiðið vinsæla verður síðan
haldið í janúar 2023.
Í vor fjölmenntu ljósmæður til Helsinki í Finn
landi á Norðurlandaráðstefnuna. Tvo daga á undan
hittust formenn ljósmæðrafélaganna á Norður
löndum til skrafs og ráðagerða. Þessir dagar duga
sjaldan en fyrir mig, svona nýja í starfi, þá er þetta
sam starf okkar mér mjög lærdómsríkt.
Aðalfundur ICM, International Confederation
of Midwives, var haldinn í júní 2022 og var hann
raf rænn eins og á síðasta ári. Næsta ár, 2023, er stefnt
að því að halda staðfundi á Balí samhliða ICM ráð
stefnunni sem verður 11.14. júní.
Í september var aðalfundur EMA, European
Midwives Associations, haldinn í Brussel. Mjög áhuga
vert var að hitta þar ljósmæður frá öðrum Evrópu
löndum, en staða ljósmæðra er mjög ólík eftir
svæðum. Ég sé alltaf betur og betur hvað íslenskar
ljós mæður eru faglegar og sjálfstæðar í sínum störfum,
enda horfa önnur lönd öfundaraugum til Íslands
þar sem tölfræðin hjá okkur er með því besta sem
gerist í heiminum. Skemmst er frá því að segja að
aðal fundur samtakanna verður haldinn hér á landi
árið 2024 en það var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum og er undirbúningur strax hafinn.
Búast má við að starf félagsins muni í vetur að
mestu snúast um kjaramál, þar sem samningar ljós
mæðra við ríkið verða lausir í mars á næsta ári. Er
þegar hafin vinna við undirbúning viðræðna og gerð
kröfugerðar. Góð samvinna er við aðildarfélög BHM
og nýtur Ljósmæðrafélag Íslands góðs af því að vera
hluti af bandalaginu. Þó hafa ljósmæður mikilvægar
sérkröfur sem snúa að mestu að greiðslum og skipu
lagi vaktavinnu/bakvakta þar sem veitt er sólar
hrings þjónusta ljósmæðra.
Ég fer bjartsýn inn í samningavinnuna og trúi
því að við eigum eftir að ná árangri við samnings
borðið, en geri samt fastlega ráð fyrir því að þetta
verði langdregin fæðing.
„Ljósurnar,“ 60+ deild Ljósmæðrafélagsins á árlegu
ferðalagi vorið 2022.
EMA fundur í Brussel.