Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 63
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 6362 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
fréttir
Alþjóðleg ráðstefna um eðlilegar
fæðingar og rannsóknir
höfundur ritstjórn
Í Danmörku, nánar tiltekið í Árósum, var 21. Inter
national Normal Labour and Birth Research Con ference
(NLNB) haldin dagana 1214. september 2022.
Heiti ráðstefnunnar var Evidence Knowledge and
Creativity; Optimising Safety and Personalisation in
Maternity Care, sem vísar til mikilvægi gagn reyndrar
þekkingar og frum kvæði til að hámarka öryggi og
persónulega barneignarþjónustu. Ráð stefnan hefur
verið skipu lögð af rannsóknarhóp um barneignir
og heilsu við University of Central Lan cashire og
hefur hlotið lof fyrir að vera ein fremsta ráðstefna
um eðlilegar fæðingar sem í boði er. Í þetta sinn
voru nokkrar ljós mæður með framlag frá Íslandi
sem byggja á meistara og doktorsverkefnum.
Ráðstefnan hefur verið haldin í Bretlandi síðan
2001 og síðasta áratuginn, annað hvert ár þar og hitt
árið í öðru landi. Á heimasíðu ráðstefnunnar er sagt
frá því að markmið hennar sé að safna saman og
miðla alþjóðlegri vísindalegri þekkingu um líf eðlis
fræðilega fæðingu, byggða á klínískum, gagn reyndum
upplýsingum og umræðum. Markmiðið er að ljós
mæður, fæðingar og nýburalæknar geti veitt örugga
persónulega þjónustu, á gagnkvæman og virðingar
verðan hátt í samstarfi milli fagstétta. Einnig með
skjól stæðingum og brugðist við að stæðum á réttum
tíma fyrir og í fæðingu. Einnig er lögð áhersla á að
fólk í fæðingu sem óskar eftir sjálfkrafa fæðingu hafi
aðgang að nýjustu upp lýsingum og fái stuðning frá
fagfólki sem getur unnið vel saman og ein beitt sér að
bestu mögulegu þjónustu og öruggri útkomu, á klín
ískan, sálrænan, tilfinninga legan og menningar legan
hátt, hvar sem er í heiminum.
Þó nokkrar íslenskar ljósmæður mættu á ráð
stefnuna að þessu sinni og voru með erindi. Eitt
af þeim fjallaði um sameiginlegt rannsóknarefni
Nord plusnetsins Midwives of the North um við horf
ljós mæðra til eðlilegra fæðinga og verndun þeirra
í sjúkra hús fæðingum. Erindið fluttu saman full trúar
nemenda og kennara og stóð því stór hópur á senunni.
Í þessu verkefni hafa tekið þátt fyrir Íslands hönd
Ingibjörg Ýr Óskarsdóttir sem lauk sínu meistara
námi vorið 2022 og Sunna Líf Guðmundsdóttir sem
lýkur námi vorið 2023. Leið beinandi þeirra er Ólöf
Ásta Ólafsdóttir.
Nemendur og kennarar í Árósum sem kynntu rann-
sóknarverkefnið um verndun eðlilegra fæðinga.
Fundur í samstarfsnetinu Midwives of the North í
Árósum haustið 2022.
fréttir
Samstarfsnet ljósmóðurnáms
á Norður og Eystrasaltslöndum
höfundur ritstjórn
Samstarsfnet ljósmæðraskóla á Norðurlöndum
hefur verið starfrækt síðustu 25 ár. Á vegum Nord
plus var netið Nordejordemoderen stofnað um það
leyti sem nám ljósmæðra á Íslandi fluttist í Háskóla
Íslands árið 1995. Skólarnir voru í fyrstu alls sjö, tveir
í Noregi og Svíþjóð, einn í Danmörku, Finnlandi
og á Íslandi. Fleiri skólar hafa bæst við og einnig eru
með fæðingardeildir sjúkrahúsanna í Nuuk á Græn
landi, Þórshöfn í Færeyjum og á Álandseyjum. Árið
2007 bættust við skólar frá Eystrasaltlöndunum, nafn
netsins var breytt í Midwives of the North og einnig
varð tungumál netsins enska. Mikil virkni hefur
löngum verið í netinu. Nema og kennaraskipti hafa
verið milli skóla og landa með jákvæðum áhrifum á
mótun náms í ljósmóðurfræði, bæði klínískt og fræði
lega. Fulltrúar okkar nemenda og kennara á Íslandi
voru með framlag og fóru á sameiginleg viku náms
keið sem haldin voru t.d. í Osló, Borås og Kaup
manna höfn og síðar í Eystrasaltslöndunum Eistlandi,
Lettlandi og Litháen. Efni þeirra hefur meðal annars
verið um kjarna ljósmóðurfræðinnar, vald eflingu nem
enda og ungra ljósmæðra, eðlilegar fæðingar, gagn
reynda þekkingu, notkun tækni s.s. fóstur greiningu
í barn eignar þjónustu og gagnrýna íhugun í klínísku
námi og klíníska kennslu.
Einnig hafa verið unnin sérstök rannsóknar og
þróunarverkefni milli skólanna, hér áður um þarfir
feðra og nú síðustu árin stórt rannsóknarverkefni um
eðlilegar fæðingar, viðhorf ljósmæðra og skil greiningu
þeirra á þeim og leiðir til að vernda þær á fæðingar
deildum sjúkrahúsa. Í því verkefni vinna nemendur
ásamt kennurum frá tíu skólum loka verk efni til BS
eða MS gráðu, gera fræðilegar saman tektir og taka
við töl við ljósmæður. Kennarar eru að safna saman
niður stöðum, endurgreina og samþætta. Jafnframt
er verið að skrifa grein til birtingar í fræði tímariti.
Fyrstu niðurstöður hafa verið kynntar á ráðstefnunum
í Helsinki og Árósum sem sagt er frá hér í blaðinu,
en kynningin var haldin af nemendum ásamt kennur
unum Elíne Skírnisdóttur Vik, frá Bergen í Noregi
sem er hálf íslensk og Alina Liepinaitienė frá Kaunas
í Litháen.
Styrkir í gegnum Nordplusnetið og Erasmus
hafa einnig fengist í fleiri verkefni s.s. milli Háskóla
Íslands og Kaunas University of Applied Sciences
í Litháen. Vorið 2022 var Ólöf Ásta Ólafsdóttir
gesta prófessor í Kaunas með viku námskeið um hug
mynda fræðilega nálgun í starfi og námi ljós mæðra.
Með henni á námskeiðinu var Litháísk ljósmóðir
Aurelija Povilaitytė; sem er ljósmæðrum á fæðingar
vakt Landspítalans vel kunn. Þær voru með vinnu
smiðjur um ljósmóðurstarf í Litháen og Íslandi,
hugmynda fræði, starfshætti og menningarlegar að
stæður. Í lok vikunnar var haldin ráðstefna á ensku
með þátttöku kennara og nemenda þar sem nema
verkefni voru kynnt og umræður voru um eðlilegar
fæðingar og ljós móður fræði í báðum löndunum.
Eftir fyrsta skóladaginn í Kaunas.
Á covid tíma í heimsókn á fæðingardeild í Kaunas.