Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Side 17

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Side 17
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 1716 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 Allir við hringborðið eru sammála því að þetta sé um ræða sem sé ekki hávær í dag. Það eru hvorki alvar legar áhyggjur af félaginu né Ljósmæðrablaðinu. Í raun má segja að við ljósmæður höfum staðið þetta af okkur. Við getum klappað okkur á bakið fyrir það og getum satt að segja verið stoltar af þeim árangri nú þegar litið er um öxl. ólafía En varðandi hvað mér finnst eftirminnilegt frá mínum ritstjórnarferli þá er mér sérstaklega minnis stætt að í mínu fyrsta blaði birtum við viðtal við Dýrfinnu, sem var hluti af lokaverkefni Bjarneyjar R. Jónsdóttur. Ferill Dýrfinnu var afar merkilegur, þetta var stórt viðtal við stóra konu. Við ákváðum að hafa stóra mynd af Dýrfinnu á forsíðu blaðsins, en það hafði aldrei verið gert áður. Myndin er af Dýrfinnu og barni sem hún var nýbúin að taka á móti. Mér fannst myndin svo lýsandi fyrir störf ljósmæðra, þegar við erum rjóðar og svolítið sveittar, með úfið hárið en sælar eftir nýafstaðna fæðingu þar sem allt gekk vel. Mér þykir vænt um þetta viðtal. Í stað þess að deyja úr hor var króginn sem sagt mættur á veraldarvefinn valgerður Hvað mig varðar, þá ætlaði ég mér nú bara að fara í ritnefndina, en það æxlaðist þannig að ég varð ritstjóri. Þetta var ofboðslega skemmtilegur tími. Ég held að ég geti fullyrt að það að vera ritstjóri Ljósmæðrablaðsins kom mér í meistaranám. Þetta var svo skapandi um hverfi, að vera með yfirumsjón með þessum skrifum. Auðvitað fór maður í gegnum ákveðið óöryggi, eins og t.d. í tengslum við ritrýndu greinarnar, en ég fékk góða leiðsögn hjá Ólöfu Ástu og Helgu Gottfreðsdóttur. Á þessum árum, í kringum 2004 var samfélagið að raf væðast og við tókum þátt í því. Það fór töluverð orka í það að koma Ljósmæðrablaðinu á rafrænt form. Í stað þess að deyja úr hor var króginn sem sagt mættur á veraldar vefinn og lifir þar sjálfstæðu lífi. Það var mikil vinna að verða rafrænt blað, en það var samstaða um það hjá félaginu og í ritnefndinni að halda áfram að prenta blaðið. Þá verð ég að minnast á Hirzluna, bóka safn Land spítalans. Það var verkefni sem fólst í að halda utan um fræði störf og skrif starfsmanna Landspítalans og Háskólans. Hvað mig varðar voru þetta stóru verkefnin. Árið 2005 skrifar Valgerður að auðvelt sé að fá ljós mæður til að skrifa í blaðið. Það er mikill við­ snúningur af því að í mörg ár virðist það hafa verið helsti höfuðverkur ritstjóra að safna efni í blaðið. Kannski er hægt að segja að á ákveðnum tíma hafi ljósmæðrastéttina skort sjálfstraust. Ritstjóri Ljós­ mæðrablaðsins var til dæmis ekki ljósmóðir, það voru ekki ritstjórnarpistlar og það var enginn sem talaði beint til ljósmæðra á ákveðnu tímabili í blaðinu. Sólveig Þórðardóttir hafði til dæmis áhyggjur af því árið 1980 að ljósmæður væru að missa starfsréttindi sín í heilsugæslunni og Hildur Kristjáns spyr í grein sinni árið 2002 hvort við séum fagstétt? ólöf ásta Sjáið þið hvað þetta er lífseigt, bæði Ljós­ mæðrablaðið og stéttin sjálf. Ég held að það hafi skipt máli fyrir blaðið að fagið skyldi þróast yfir í háskólann þó að það hafi alltaf verið náin tengsl á milli blaðsins og námsins. En það voru alls ekki allar ljós mæður sammála um þessar miklu breytingar á náminu. Í byrjun ætluðum við ekki að hafa hjúkrun sem skil yrði, en það kom ekki til greina af hálfu náms brautarinnar. Við þurftum að berjast verulega fyrir því að ljós móður fræðin yrði ekki sérgrein í hjúkrun. Það er alveg á hreinu. Dýrfinna á forsíðu Ljósmæðrablaðsins árið 2001. valgerður Það er seigla í okkur. Ég man að það var mikil hvatning frá kennurunum til okkar nemanna um að skrifa í blaðið og birta verkefni eins og dagbókar skrif. Þar hefur þú Ólöf Ásta staðið í brúnni. ólöf ásta Já, já, ég stóð alveg í brúnni þar, en ekki ein. Og enn þann dag í dag erum við þar. hrafnhildur Ég man vel eftir þessari umræðu, þegar ég var að vinna sem hjúkrunarfræðingur. Þá sögðu hjúkrunar fræðingar, hvers vegna koma ljósmæður ekki bara yfir til okkar? ólöf ásta Við ljósmæður höfum reynt að aðlagast íslenskum veruleika á hverjum tíma. Nú síðast um daginn voru mjög mikilvæg tímamót þegar það tókst að breyta nafni deildarinnar, það skiptir gífur legu máli. Nú heitir deildin Hjúkrunar- og ljósmóður fræðideild í stað Hjúkrunar fræði- deildar. Það var ekki hægt að ganga fram hjá okkur lengur. Ljósmóður fræðin nær öllum við- miðum sem gilda innan Há skóla Íslands. Þar eru til staðar tvær greinar og er þá ekki sjálfsagt að þær sjáist báðar í nafni deildarinnar? Þá var eftirtektarvert að lesa um hringborð í tengslum við eðlilegar fæðingar í Ljósmæðrablaðinu árið 2005. Þar var dregin sú ályktun að ljósmæður þyrftu að stofna teymi ljósmæðra sem tækju að sér heimafæðingar og gæti sú starfsemi orðið undanfari stofnunar fæðingarheimilis. Ljósmæðrafélagið brást við þessu með því að kaupa tvær töskur til að lána ljósmæðrum sem voru tilbúnar að taka eina og eina heimafæðingu. Nú hefur mikið vatn runnið til sjávar og í Reykjavík eru tvær sjálfstæðar fæðingareiningar. valgerður Þarna sér maður hvað það er mikilvægt að taka umræðuna. Hlutirnir gerjast og stundum er sagt að allar góðar breytingar gerist í hænu- skrefum. Nú eru liðin 17 ár og kannski er það bara eðlilegur tími. Rúmlega tíu árum síðar opnaði Björkin sitt fæðingarheimili og svo núna bætist Fæðingarheimili Reykjavíkur við. En það sem situr líka eftir hjá mér er þegar við Ólöf Ásta fórum heim til Jóhönnu Hrafnfjörð og tókum viðtal við hana. Mér fannst hún mögnuð kona. Hún var ein af þessum töffurum. Hún var búin að ánafna félaginu íbúðina sína við sitt frá fall. Nú er þetta minningarsjóður Jóhönnu Hrafn fjörð sem veittir eru styrkir úr. Hún var sjálf barn laus, en rak fæðingarheimili í Kópavogi og víðar. Það var svo margt í hennar sögu sem endur speglar það sem við erum búnar að vera að tala um hér, hvað þessar flottu ljósmæður þurftu að berjast. hrafnhildur Ég held að það sé vel við hæfi að ég taki boltann hér. Mér fannst mjög vel tekið á móti mér í Ljósmæðrafélaginu og mér fannst það líka upphefð að fá Ljósmæðrablaðið sent heim til mín sem ljósmóðurnemi. Ég las það strax upp til agna. Ég hef greinilega verið að tala um þessa ástríðu mína á blaðinu, því Valgerður hóar í mig beint eftir útskrift og ég fer í ritnefndina. Ég man að í byrjun áttum við að lúslesa greinarnar, einhvers konar prófarkalestur, en ég las bara hægar og betur efnið eins og ég hafði gert áður. Þegar við hittumst sá ég að greinin hjá Valgerði Lísu var útkrotuð með rauðu og ég hugsaði; „guð minn góður, ég er ekki með þetta.“ En svo lærðist þetta og ég fór að taka eftir punkti og kommu og vonandi líka efnislega. Ég held að það að vera í ritnefnd og ritstjóri Ljósmæðrablaðsins hafi líka verið kveikjan að því að ég fór í mitt meistaranám. Ég er eiginlega alveg viss um það. Því að á þessum tíma las maður ótrúlega mikið af ólíkum greinum. En það mætti segja að ég hafi svo fengið ritstjórastólinn í hausinn. Bergrún ákvað að hætta og það var enginn til að taka við. Og ætli það hafi ekki verið Valgerður sem hvatti mig áfram ,,Nú er komið að þér Hrafnhildur.“ Þá kom aftur svona óöryggi yfir mig. En það stóð ekki lengi. Við í ritnefndinni vorum allar í sama liði og það var þessi liðsheild sem skapaði gleði og samstöðu. Ég tek undir það sem Valgerður sagði, það var aldrei vandamál að fá efni. Þessi ritstjórapistill var kannski höfuðverkur, en á mínum ritstjórnartíma var það formaðurinn sem brýndi raustina. Hún sagði frá baráttumálunum. Úr viðtali við Jóhönnu Hrafnfjörð, Ljósmæðrablaðið, 2004 (1), s.7.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.