Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 93
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 9392 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
ritrýnd fræðigrein
PIPPR verkjamat hjá fyrir burum
og veikum nýburum, prófun á
íslenskri þýðingu
PIPPR Pain Assessment for Premature Infants and Sick
NewBorns, Testing an Icelandic Translation
Bakgrunnur
Lífslíkur fyrirbura hafa farið vaxandi
undan farin ár og því fylgir fjölgun inn
lagna á nýburagjörgæslu með til heyrandi
sársaukafullum inngripum vegna nauð
syn legra meðferða. Verkja mat nýbura er
flókið og þá sérstaklega hjá fyrirburum.
Enn í dag er ekki til algild aðferð við
verkjamat þessa við kvæma hóps. Mikil
vægt er að styðjast við áreiðanlega og
rétt mæta verkja mats kvarða sem hafa
sýnt klíníska gagnsemi.
Markmið rannsóknarinnar er að
meta gagn semi nýrrar útgáfu verkja mats
kvarðans PIPPR í íslenskri þýðingu
(ísl PIPPR) við verkjamat á ný bura gjör
gæslu deild á Íslandi og meta áreiðan leika
og rétt mæti íslPIPPR.
Aðferð
Rannsóknin studdist við megindleg gögn
með víxlunar tilraunasniði (e. crossover
design). Notast var við þægindaúrtak 50
fyrirbura og veikra nýbura inniliggjandi
á ný bura gjörgæsludeild á Íslandi, með
leið réttan meðgöngualdur frá 23 til 42
vikna. Tveir rannsakendur fram kvæmdu
verkja mat með íslPIPPR verkja mats
kvarðanum við þrjár mis munandi að
stæður, hlutlausar, raskaðar og sárs auka
fullar. Úrvinnsla gagna var fram kvæmd
með SPSS tölfræðiforritinu og notast var
við lýsandi og skýrandi töl fræði. Gerð var
fervikagreining og fylgni prófanir (ANOVA,
Cronbach’s, Kappa, ICC og Pearson’s)
með hjálp SPSS tölfræði forritsins.
Niðurstöður
Fylgni reyndist á milli matsaðila í mæl
ingum og fylgni milli flestra mats þátta í
íslPIPPR verkja mats kvarðanum, mark
tækur munur reyndist ekki á heildar stiga
gjöf rannsakenda í neinum af þremur
mis munandi að stæðum mælinga. Innra
sam ræmi milli rannsakenda var ásættan
legt í öllum mælingum. Fervika greining
sýndi að íslPIPPR verkja mats kvarðinn
greindi marktækan mun milli allra mæli
aðstæðnanna og sýnir því innra rétt mæti
við mat á verkjum nýbura þar sem stígandi
fékkst í mælingum eftir meintum sárs
auka í aðstæðum.
Ályktanir
Við prófunina náðist að sýna fram á á
reiðanleika og réttmæti íslPIPPR í mati
á sár sauka á nýbura gjörgæslu á Íslandi og
hægt að staðfesta gagnsemi nýrrar útgáfu
og notkunar íslPIPPR í klínísku starfi.
Mælitækið er því góð viðbót til að bæta
gæði og þjónustu í verkjamati hjá fyrir
burum og veikum nýburum á Íslandi.
Lykilorð
fyrirburar
veikir nýburar
verkir
verkjamat
ÁgripHöfundar
Theja Lankathilaka, hjúkrunar-
fræðingur BS, MS 1, 2
Sigríður María Atladóttir,
hjúkrunarfræðingur BS, MS 2
Dr. Guðrún Kristjánsdóttir,
prófessor, hjúkrunar fræðingur
BS, MSc, PhD 1, 2, 3
1 Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild,
Háskóli Íslands.
2 Vökudeild, Barna og kvennaþjónusta,
Landspítali.
3 Department of Health Science, Faculty
of Medicine, Lund University.
tengiliður thejal92@gmail.com
Inngangur
Undanfarna þrjá áratugi hafa orðið miklar breytingar á við horfi
og verklagi hjá heilbrigðisstarfsfólki í að þekkja og með höndla
verki hjá fyrirburum og veikum nýburum. Innlögn á nýbura gjör
gæslu er vörðuð endurteknum sársaukafullum inngripum vegna
veikinda eða meðferðar. Sýnt hefur verið fram á að sársaukafull
inngrip geti verið að meðaltali 12 til 16 á sólarhring og ályktað
að allt að 78% nýbura fái ekki viðeigandi verkjameðferð (Relland
o.fl., 2019; Rioualen o.fl., 2018). Þrátt fyrir þessa vitneskju eru
verkir enn álitamál fyrir heilbrigðisstarfsfólki og eru því enn ekki
meðhöndlaðir með fullnægjandi hætti (Rioualen o.fl., 2018).
Hér á landi er einnig sérstök ástæða til að leggja áherslu á mark
vissa notkun verkjamatstækja til að meta verki hjá nýburum. Til
þess þarf vel staðlaðar og prófaðar íslenskar þýðingar á viður
kenndum alþjóðlegum greiningartækjum.
Rannsóknarniðurstöður úr fyrri hluta prófunar á ísl
pippr á nýburagjörgæsludeild sýndu vísbendingar um áreiðan
leika og réttmæti til notkunar í klínískum aðstæðum á nýbura
gjör gæslu deild á Íslandi. Æskileg úrtaksstærð fyrir ásættanlegt
áreiðanleikapróf gerir ráð fyrir að lágmarki 30 þátttakendum
til að unnt sé að heimfæra á þýði með Cronbach’s alpha stuðli
(Ercan o.fl., 2007; Yurdugül, 2008). Með því að stækka úrtakið
úr 19 börnum (Theja Lankathilaka, 2018) í 50 börn með sömu
matsaðila og rannsóknarvettvang væri hægt að fá fullnægjandi
rannsóknarniðurstöður fyrir klíníska prófun mælitækisins.
Birtingarmynd verkja og þróun verkjamatskvarða
Sársauki leiðir til fjölda viðbragða í hegðun hjá fyrirburum og
nýburum sem hægt er að fylgjast með og nota til að meta styrk
sársauka. Þessi viðbrögð fela í sér breytingar á líkamshreyfingum
og vöðvaspennu. Dæmi eru grettur, grátur eða breyting á rödd,
breytingar á svefnástandi og áhrif á athygli eða samskipti við
aðra. Bæði óþroskuð lífeðlisleg viðbrögð fyrirbura og lágt vöku
stig geta leitt til dreifðari hegðunarmerkja borið saman við heil
brigða nýbura og ungbörn (Eriksson og CampbellYeo, 2019).
Fyrirburar hafa takmarkaða getu til að sýna hegðunarviðbrögð
við sársaukaupplifun og viðbrögð þeirra geta verið mikil og ýkt
eða án vöðvaspennu. Því er mikilvægt að hafa í huga og taka
tillit til meðgöngualdurs og þroska fyrirburans þegar kemur
að verkjamati á nýburagjörgæsludeild ( Johnston o.fl., 2011;
Spence, 2010).
Lífeðlislegar breytur sem taka breytingum við verkja upp
lifun eru meðal annars öndunartíðni, súrefnismettun, hjart
sláttar tíðni og blóðþrýstingur. Í gegnum tíðina hefur verið sýnt
fram á að þessar breytur gefa merki um verki eða sárs auka hjá
fyrirburum og nýburum (Eriksson og CampbellYeo, 2019; Faye
o.fl., 2010). Sársauki hjá þessum hópi hefur verið rannsakaður
með heilasírita og segulómun af heila, með því að athuga virkni,
súrefnisupptöku og blóðflæði í heila við sársaukafullar aðstæður
og þannig verið hægt að sýna fram á áreiðanleika við að greina
sársauka (Slater o.fl., 2010). Þó skortir fleiri rannsóknir og ljóst
að ofantaldar aðferðir eru ekki ákjósanlegar við rúm sjúklings.
Verkjamat
Í ljósi þeirrar þekkingar sem fyrir liggur um sársaukaupplifun
nýbura eru heilbrigðisstarfsmenn hvattir til að nota staðlaða
verkjamatskvarða sem hafa sýnt fram á áreiðanleika, réttmæti,
klíníska gagnsemi og næmi gagnvart mismunandi verkjum, svo
sem bráðum og langvarandi verkjum, verkjum við sársaukafull
inngrip og eftir skurðaðgerðir (Ranger o.fl., 2007). Verkjamat
og meðhöndlun er enn umdeild og þó margir verkjamats
kvarðar séu í boði heldur verkjamat áfram að vera vanfram
kvæmt á nýburagjörgæsludeildum (Maxwell o.fl., 2013). Til
þess að meðhöndla verki á fullnægjandi hátt er mikilvægt að
greina verki, þekkja orsakavalda og hvernig þeir birtast (Anand
o.fl., 2017).
Ein helsta hindrunin við að meta og meðhöndla verki
er skortur á þekkingu á fyrirliggjandi matskvörðum en reynsla
og þekking heilbrigðisstarfsmanns er grundvallaratriði við
verkja mat. Verkjamat hjá nýburum felur í sér þekkingu á upp
tökum verkja eða sársauka (Hatfield og Ely, 2015). Við verkja
mat hjá fyrirburum og veikum nýburum er yfirleitt stuðst við
mat á hegðun og/eða lífeðlislegar breytur. Þá er mikilvægt að
sá sem fram kvæmir verkjamat hafi skilning á hvað hver þessara
þátta þýðir og geti greint á milli streitu og verkja (McPherson
o.fl., 2020). Einnig þarf að taka tillit til annarra þátta, svo sem
aldurs og vitsmunalegs þroska barnsins (Beltramini o.fl., 2017).
Með göngu aldur, lífaldur, taugaþroski og fyrri reynsla af verkja
upplifun hefur áhrif á svörun nýburans við verkjum. Aldur barns,
bæði meðgöngualdur og lífaldur, hefur veruleg áhrif á styrk
við bragða við sársauka. Þá skiptir vökustig sérstaklega máli hjá
fyrir burum og veikum nýburum þar sem sofandi barn hefur
tak markaða getu til að bregðast við sársaukafullum inngripum
(WalterNicolet o.fl., 2010).
Sársaukafull inngrip og afleiðingar
Inngrip sem valda óþægindum, streitu og sársauka eru til dæmis
húðrof, svo sem hælstungur við blóðsykursmælingar, blá æða
stungur, uppsetningar á æðaleggjum, mænuholsástungur, blöðru
ástungur, drenuppsetningar en einnig ísetningar miðlægra leggja,
sonduísetningar, augnskoðanir, þarmaúthreinsanir, soganir í
barkatúpu, kok og nef, skipti á barkarauf, fjarlæging plásturs og
umbúðaskipti á sárum (Anand o.fl., 2017; Stevens o.fl., 2013).
Þekkt er að mörg þessara sársaukafullu inngripa og með ferða
leiða í ljós neikvæð áhrif á vöxt og þroska hjá ný burum. Ung
börn með heila og taugakerfi í mótun eru líklegri til að fá auka
verkanir en eldri börn og fullorðnir. Ef sársauki eða endur tekin
verkjaupplifun er ekki rétt metin og verkir með höndlaðir getur
það haft í för með sér neikvæðar afleiðingar (Hatfield, 2014;
Rahimi o.fl., 2017). Val á verkjamatsaðferð er því mikil væg og
brýnt að mælitæki sé nýtilegt. Það felur meðal annars í sér að
verkjamatstækið sé vel skiljanlegt þeim sem notar það. Þýðing
og menningaraðlögun er nauðsynleg og fyrsta skref í átt að
klínískri innleiðingu (Olsson o.fl., 2018).