Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 37
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 3736 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
fréttir
Bókarkynning: Kenningar
og hugmyndafræðileg nálgun
ljósmæðra – norræn sýn
Theories and Perspectives for Midwifery – A Nordic View
höfundur helga gottfreðsdóttir
Í nóvember var gefin út bók sem ber heitið Theories
and Per spec tives for Midwifery – A Nordic View. Bókin
er sam starfs verkefni ljósmæðra á Norður löndunum og
á hvert þeirra landa sinn full trúa í rit stjórn bókar innar.
Ásamt undir ritaðri eru frá Noregi Ellen Blix pró
fessor, frá Dan mörku Ellen Aagaard Nöhr pró fessor,
frá Svíþjóð Ingela Lundgren prófessor emeríta og frá
Finnlandi Anita Wikberg dósent. Bókin er á ensku
og í henni eru 26 kaflar, skrifaðir af ljós mæðrum frá
Norður löndunum og í þeim hópi eru þó nokkrar frá
Íslandi.
En af hverju þessi bók? Ljósmæður á Norður
löndunum eiga margt sameiginlegt sem tengist sögu
og þróun fagsins og margt er líkt með starfsvettvangi
þeirra. Þar er áhersla á eðlilegt barneignarferli og
aðkoma ljósmæðra að kyn og kvenheilsu fer vaxandi
í öllum löndunum. Ljósmæður á Norðurlöndunum
hafa jafnframt verið framarlega í að efla menntun
sinnar stéttar. Þróun þekkingar í formi rannsókna
er umtalsverð í löndunum.
Bókin hefur verið í smíðum frá 2017 þegar form
lega varð til hópur ljósmæðra á Norður löndunum
sem sinna háskóla kennslu og rann sóknum. Hópurinn
skilgreinir sig sem NORNAM (e. Nordic Network for
Academic Midwives). þessi hópur hefur meðal annars
þróað og boðið sameiginlegt nám skeið fyrir ljós
mæður í doktors námi um kenningar og hug mynda
fræði lega nálgun ljós móður fræða. Í námsframboði
háskóla á norður löndunum er slíkt námskeið hvergi
að finna. Fyrsta nám skeiðið var haldið hér á landi
vorið 2019 á vegum Háskóla Íslands og það næsta
var árið 2021 á vegum Osló Metropolitan University.
Nokkrar íslenskar ljósmæður hafa sótt námskeiðið
sem hefur fengið mjög jákvæða umsögn. Þriðja nám
skeið er fyrirhugað í Noregi vorið 2023.
Á alþjóðavísu mætti sýnileiki ljósmóðurstarfs
og rann sókna norrænna ljósmæðra vera meiri og því
var ákveðið að vinna að þessu sameiginlega verk efni
og vekja þannig athygli meðal fjölmennari vísinda
samfélaga og starfandi ljósmæðra á þeim auð sem
felst í sögu og rannsóknum norrænna ljósmæðra.
Hvernig er bókin uppbyggð og er hún hugsuð
fyrir allar ljósmæður? Bókin er hugsuð fyrir allar ljós
mæður en ekki síst ljós móður nema bæði í grunn og
framhaldsnámi. Hún er jafnframt hugsuð fyrir aðra
hópa sem vinna í tengslum við barneignaferlið í
klínísku starfi, rannsóknum eða kennslu.
Bókinni er skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hluta
eru kaflar um sögu ljósmóðurfræðinnar á Norður
löndunum í samhengi við þróunina í Evrópu, heil
brigðiskerfið á Norðurlöndunum eins og það snýr
að barneignarferlinu, sérstaka hópa innan landanna
s.s. Sama sem búa í norðurhluta Svíþjóðar, Noregs og
Finnlands og konur af erlendum uppruna. Jafn framt
er menntun ljósmæðra gerð góð skil en töluverð
breidd er í uppbyggingu ljósmóðurnáms á Norður
löndunum.
Í öðrum hluta bókarinnar er fjallað um gagn
reynda þekkingu í ljósmóðurfræði og tengsl við
klínískt starf. Varpað er fram spurningum um hvers
vegna það er mikilvægt að ljósmóðurfræðin eigi
ákveðna hugmyndafræði, standi vörð um hana og þrói
til að vera grunnur í klínísku starfi. Þannig er sér
stakur kafli um hvernig sívaxandi notkun á tækni
hefur áhrif á starfssvið ljósmóðurinnar og áleitnar
spurningar um hvernig slík þróun hafi áhrif á heilsu
fars út komur mæðra og nýbura ræddar. Þá er kafli
um heilsu eflingu (e. Salutogenensis) og hvernig nýta
megi þá hugmynda fræði í menntun, rann sóknum og
klínísku starfi ljósmæðra til mót vægis við sívaxandi
inngrip í barneignarferlið. Sérstakur kafli er um eðli
legar fæðingar, hvernig við skilgreinum það hugtak,
ávinning þess að efla eðlilegar fæðingar, hvað hvetur
til eðlilegra fæðinga og hvað dregur úr tíðni þeirra.
Í því samhengi er sérstaklega fjallað um val kvenna
og hvernig ljósmæður upplifa togstreitu milli þeirra
áherslna sem stofnanir setja fram og þeirrar þekkingar
sem ljósmæður búa yfir. Sérstök áhersla er í einum
kaflanum á hugtakið stuðningur í barneignarferlinu
og rætt um hvernig hægt sé að tryggja slíkt í heil
brigðiskerfi þar sem vaxandi krafa er um afköst
og hraða. Þá eru nokkrir kaflar um fyrir komu lag
þjónustunnar þ.e. fjölskyldumiðaða ljós móður
þjónustu, samband konu og ljósmóður og sam fellda
þjónustu ljósmæðra. Fjallað er um fæðingar stað,
sjónarhorn kvenna og ljósmæðra, hönnun fæðingar
rýmis og sjálfræði ljósmóðurinnar í klínísku starfi.
Í þriðja hluta bókarinnar er sagt frá ýmsum
kenningum sem hafa verið þróaðar innan ljósmóður
fræðinnar s.s. um fagmennsku, MiMo módelið, um
umhyggju fyrir konum í aukinni áhættu og um orð
ræðu í ljósmóðurstarfi. Í þeim hluta er sérstakur kafli
um sam fellda þjónustu í Danmörku sem er eina
Norður landið sem raunverulega hefur slíkt á stefnu
skrá í sinni heilbrigðisáætlun fyrir barns hafandi
konur og fjölskyldur.
Ritstjórn bókarinnar hefur valið þessi efni sem
mörg eru ofarlega á baugi í umræðu og rannsóknum
á sviði ljósmóðurfræða á alþjóðavísu. Þessi bók er leið
til að vekja athygli á því, auk þess að vera yfirlit yfir
stöðu mála og nýja þekkingu sem sérstaklega hefur
orðið til í rannsóknum norrænna ljósmæðra.