Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 88
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 8988 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
sem tala ekki íslensku upp á möguleikann á
nám skeiði. Svo er markaðs setning erlendis og
útf ærsla á því eitthvað sem ég er ekki farin að
hugsa út í en það er aldrei að vita.
Draumur minn er að námskeiðin stuðli að bættum
svefni landsmanna til langs tíma litið og að tíðni
svefnlyfjanotkunar fari niður.
Hvernig fer saman að starfa sem ljósmóðir og vinna
við svefnráðgjöf?
Það fer bara vel saman, mér finnst svolítið eins
og ég sé að grípa foreldra þegar þetta mikla eftir -
lit hættir eftir fyrstu vikurnar. Markmiðið með ný-
buranámskeiðinu er að veita foreldrum þær upp-
lýsingar sem þeir þurfa til að geta lesið barnið
sitt, komið til móts við þarfir þess á sama tíma
og þeir leggja grunninn að góðum svefni. Ég tala
einnig um óværð og leiðir til að róa nýbura.
Það er ótrúlega margt sem ég tek með mér úr
ljósmóðurstarfinu inn í svefnráðgjöfina, þá sér-
stak lega þegar kemur að nýburanum. Einnig
hefur reynsla í samskiptum við foreldra komið
sér mjög vel. Að vera nærgætin og sýna skilning
en koma skilaboðunum áleiðis er eitthvað sem
þessi störf krefjast bæði.
Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum?
Við erum alltaf að verða meðvitaðari um mikil-
vægi svefns og það á ekki síður við um börn.
Góður svefn og getan til að sofa vel er ein stærsta
gjöfin sem foreldrar geta gefið börnunum sínum
og barnið mun njóta góðs af því út barn æskuna.
Markmiðið með námskeiðunum er að veita for-
eldrum þá þekkingu sem þeir þurfa til að geta
hjálpað barninu sínu að sofa vel, því ég trúi því
að fyrir utan að með henni fari barnið að sofa vel,
að þá sé góð þekking á svefni barna valdeflandi
fyrir foreldra og ég vil að foreldrar upplifi sjálfs-
traust í foreldrahlutverkinu.
fréttir
Rannsóknakaffi á vegum Fagráðs
ljósmæðraþjónustu á Landspítala
höfundur valgerður lísa sigurðardóttir
Töluverður fjöldi ljósmæðra stundar nú rann sóknar
tengt framhaldsnám, auk þess sem árlega útskrifast
1014 ljósmæður með meistarapróf í ljós móður fræði
til starfs réttinda. Fagráð um ljós mæðra þjónustu
á Land spítala hefur undanfarin misseri staðið fyrir
mál stofum sem kallast Rannsóknakaffi, til að skapa
tækifæri til umræðna um rannsóknir ljósmæðra.
Mark miðið er að eiga samtal við ljósmæður og skoða
hvernig niðurstöður rannsóknanna geta nýst á klín
ískum vettvangi.
Þrjár málstofur voru haldnar á árinu 2022.
Fyrsta Rannsóknakaffið var haldið 6. apríl. Þar var
El len Blix, prófessor í ljósmóðurfræði við OsloMet
háskólann með erindið Physiological Birth – Birth
Hormons, Pain and Epidural og fjallaði það um hið
flókna samspil hormóna, lífeðlisfræði fæðingar, verkja
og utan basts deyfinga. Emma Marie Swift lektor
í ljós móður fræði við HÍ kynnti þar einnig rannsókn
sem hún hefur unnið að um ábendingar og útkomu
á fram köllun fæðingar.
Næsta Rannsóknakaffi var haldið 22. september.
Guðrún Pálsdóttir ljósmóðir MS kynnti þar rann
sókn á stjórnun og starfsánægju ljósmæðra og Berg
lind Hálfdánsdóttir dósent í ljósmóðurfræði við HÍ
kynnti rannsókn Bryndísar Sunnu Jóhannesdóttur
ljósmóður MS á áhrifum notkunar ytra oxýtósíns
í fæðingu á brjóstagjöf.
Þriðja og síðasta Rannsóknakaffið var haldið
1. desember. Elsa Ruth Gylfadóttir ljósmóðir MS
kynnti þar rannsókn sína á viðhorfum ljósmæðra
í fæðingarþjónustu til notkunar ómtækja við mat
á framgangi fæðingar. Harriet Nabulo ljósmóðir og
doktorsnemi í Úganda kynnti rannsókn á reynslu
kvenna af flutningi milli þjónustustiga í fæðingu og
leiðum til að bæta útkomu fæðingar í nærumhverfi
kvenna í Úganda (Emergency Obstetric Referral:
Women’s Experiences, Perceived CommunityLed
Initiatives To Facilitate Referral, Maternal, Neo
natal Outcomes and Associated Factors in Isingiro
District SouthWestern Uganda).
Það er ljóst að mikil gróska er í rannsóknum
í ljósmóðurfræði. Fróðlegar umræður sköpuðust á
málstofunum sem vonandi eru kveikjur fyrir frekari
rannsóknir á fjölbreyttum starfsvettvangi ljósmæðra.
Svipmyndir úr Rannsóknakaffinu.