Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 75
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 7574 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
af og til og ég var bara, við hvern ertu að tala? Því þú
ert ekki að tala við mig … hún nennti þessu ekki.
Líkamleg líðan
Þetta þema fjallar um líkamlega líðan kvennanna í fæðingunni
og í bráðakeisaraskurðinum og hvernig það gekk að jafna sig
á eftir. Það skiptist í tvö undirþemu, í fæðingu/aðgerð og að jafna
sig eftir bráðakeisaraskurð. Í fyrra undirþemanu, í fæðingu/aðgerð,
er farið í gegnum það helsta sem konurnar nefndu varðandi
líkamlega líðan þegar búið var að taka ákvörðun um keisaraskurð
og á meðan þær voru í aðgerð. Þær konur sem voru komnar
langt í fæðingu þegar tekin var ákvörðun um bráðakeisaraskurð
nefndu hversu erfitt þeim fannst að mega ekki rembast lengur.
Einnig upplifðu margar óstöðvandi skjálfta, ógleði og uppköst
í bráðakeisaranum: Ég skalf í svona klukkutíma eins og ég væri
að frjósa … já, þetta var hræðilegt, mér bara leið eins og ég væri
að detta úr rúminu (Kristín).
Seinna undirþemað er að jafna sig eftir bráðakeisaraskurð,
en mjög mismunandi var hversu fljótar konurnar voru að ná sér
líkamlega eftir bráðakeisaraskurðinn. Flestum fannst erfiðast að
standa upp og setjast fyrstu dagana: Maður gat einhvern veginn
ekkert aðhafst með líkamann, setjast upp og allt þetta … bara þvílíkt
erfitt og þú veist, nánast staulaðist hérna um ( Jóna). Aðrar voru
mjög fljótar að ná sér líkamlega og voru fljótar að fara á fætur.
Sumar sögðust enn finna fyrir skurðinum við vissar hreyfingar
og finna jafnvel enn fyrir dofa eða kláða í kringum skurðsárið.
Hjá þremur kvennanna gréri skurðurinn illa og þurftu þær
því frekari meðhöndlun. Þeim konum sem áttu ung börn fyrir
fannst það áskorun að geta ekki sinnt þeim eins og áður eftir
að gerðina: Mér fannst eiginlega erfiðast að ég mátti ekki lyfta
stelpunni minni … að þurfa alltaf að setjast niður til þess að segja
henni að koma til mín og eitthvað (Dóra).
Fræðsla og eftirfylgni
Fimmta þemað fjallar um fræðsluþarfir og eftirfylgni og skiptist
í þrjú undirþemu, fræðsluþarfir fyrir aðgerð, fræðsluþarfir eftir
aðgerð og þörf fyrir samtal.
Fyrsta undirþemað er, fræðsluþarfir fyrir aðgerð, en þar
kom fram að konurnar höfðu langflestar farið á fæðingar fræðslu
námskeið en fannst vanta meiri fræðslu um bráðakeisaraskurð
og þau inngrip sem getur komið til í fæðingu. Sumar töldu að
því upplýstari sem konur væru því betra, á meðan aðrar nefndu
að það þyrfti að vanda vel til fræðslunnar til þess að koma í veg
fyrir kvíða eða ótta hjá barnshafandi konum. Þeim fannst mikil
vægt að leggja áherslu á það í fræðslunni að það sé ekki bara
ein leið fyrir barnið að koma í heiminn, heldur að fæðingar séu
alls konar. Einnig töldu þær að þessi fræðsla þyrfti að vera inni
í meðgönguverndinni þar sem ekki allar konur hafi efni á því að
fara á fæðingarfræðslunámskeið.
Annað undirþemað er fræðsluþarfir eftir aðgerð, en
konunum fannst vera skortur á fræðslu eftir bráðakeisaraskurð;
við hverju væri að búast og hvað væri ráðlegt til dæmis varðandi
hreyfingu, að lyfta hlutum, um önnum skurðsárs og svo fram
vegis. Þriðja undirþemað er þörf fyrir viðtal, en konurnar lögðu
áherslu á að þörf væri fyrir ein hvers konar eftirfylgni eftir bráða
keisaraskurðinn hvað varðar and lega og líkamlega líðan og að
bjóða þyrfti þeim konum sem þurfa á að halda viðtal nokkrum
vikum eftir fæðingu.
Maki og stuðningsaðilar
Sjötta þemað er maki og stuðningsaðilar, en konurnar vöktu at
hygli á því hversu mikilvægt það er að taka líka utan um makana.
Þær töldu að þessi reynsla gæti líka setið í þeim og verið áfall
fyrir þá og þeir þyrftu að vinna sig úr henni rétt eins og þær:
Þarna leið mér bjargarlausri, en hvað með hann? Þegar ég fór að
missa blóðið, hann vissi ekki hvað var að gerast, honum leið ekki
vel þú veist, svona algjört bjargarleysi (Anna).
Líðan í dag
Sjöunda aðalþemað er líðan í dag og þar undir eru þrjú undir
þemu, mikilvægast að eignast heilbrigt barn, viðhorf annarra og
viðhorf til frekari barneigna.
Fyrsta undirþemað er mikilvægast að eignast heilbrigt
barn, en þegar konurnar voru spurðar að því hvernig þeim líður
í dag með þessa reynslu að baki fannst þeim mikilvægast að þær
og börnin væru heilbrigð. Það væri það sem skipti þær mestu
máli, en ekki hvernig barnið kom í heiminn:
Ég átti börnin mín einhvern veginn og þau eru
heilbrigð og hraust … það skiptir miklu meira máli
hvernig börnunum mínum líður og að þau eru hraust
og heilbrigð, heldur en hvernig fæðingin sjálf gekk, það
er talið í klukkutímum, hitt er talið í árum skilurðu og
áratugum, vonandi (Dóra). Náttúrulega svekkjandi að
hafa farið svona gjörsamlega öfugt heldur en akkúrat
við áttum von á en við gerðum bara það sem þurfti
fyrir okkur bæði og það var bara besta ákvörðunin á
þeim tímapunkti (Guðrún).
Annað undirþemað er viðhorf annarra, en konunum
fannst viðhorfið í samfélaginu gagnvart keisaraskurði geta verið
særandi:
En ég upplifi samt oft konur segja að maður hafi aldrei
átt venjulega, að ég hafi aldrei fætt barn að því að ég
fór í keisara (Halldóra). Að þetta sé svona easy way out,
oh heppin fórstu í keisara, maður er bara, já en ég var
samt rúmliggjandi í fimm daga á eftir þú veist … já,
það fylgir þessu svo margt, sem maður veit ekki fyrr en
maður er búin að upplifa það (Fríða).
Þriðja undirþemað er viðhorf til frekari barneigna, flestar
kvennanna sem ætluðu sér að eignast fleiri börn sögðust vilja
reyna aftur við fæðingu í gegnum leggöng en tvær voru ákveðnar
í því að velja valkeisara. Jóna upplifði reynslu sína í raun sem
vald eflandi fyrir næstu fæðingu: Þetta var eiginlega bara meira
hvetjandi fyrir mig … Ég er bara spennt fyrir næstu og að sjá
hvernig það fer. Þegar konurnar voru spurðar um hvort þessi
reynsla hefði áhrif á sýn þeirra á barneignir í framtíðinni neituðu
því flestar. Ein af þessum tólf konum sagði þó að þessi reynsla
hefði haft þau áhrif að hún ætlaði ekki að eignast fleiri börn: Ég
var mjög snögg að ákveða það að ég ætlaði ekki að gera þetta aftur
… bara þakklát fyrir mín tvö börn … ég ættleiði frekar eða tek
fósturbarn ef að sú tilfinning kemur seinna (Olga).
Umfjöllun um niðurstöður
Meginniðurstöður þessarar rannsóknar sýna fram á að konur
upp lifa krefjandi og erfiða reynslu sem hefur áhrif á andlega
líðan þeirra. Þessar niðurstöður eru í takt við niðurstöður
annarra rannsókna sem sýna að reynslan reynir á konur (Benton
o.fl., 2019; Coates o.fl., 2019; Ilska o.fl., 2020; Karlström, 2017).
Rann sókn sem framkvæmd var á Íslandi sýndi að stór hluti
kvenna sem leita sér aðstoðar eftir fæðingu vegna nei kvæðrar
fæðingar upp lifunar hafði farið í bráðakeisaraskurð (Valgerður
Lísa Sigurðardóttir o.fl., 2017). Sú niðurstaða styður niður stöður
þessarar rann sóknar.
Að byggja upp traust og ná tengslum við konur í fæð
ingarferlinu er mikilvægt fyrir ljósmæður og getur haft já kvæð
áhrif á upplifun kvenna (Afaya o.fl., 2020; Hildingsson o.fl.,
2019). Konurnar í þessari rannsókn voru bæði með já kvæðar
og neikvæðar upplifanir af samskiptum og umönnun ljósmæðra
í fæðingunni. Áberandi var að þær sem upplifðu öryggi, nær veru,
stuðning, virka hlustun og fræðslu, voru upp lýstar í gegnum
ferlið og áttu góð samskipti við ljósmæður höfðu jákvæðari
reynslu af fæðingunni, þrátt fyrir að finnast það að hafa þurft að
fara í bráða keisara skurð vera erfið reynsla. Þetta sýna niður stöður
annarra rann sókna einnig (Andersen o.fl., 2020; Karlström o.fl.,
2015). Þær konur sem ekki upplifðu góð samskipti og stuðning
frá ljós móður höfðu hins vegar neikvæða reynslu af fæðingar
ferlinu sem samræmist niðurstöðum annarra rannsókna (Afaya
o.fl., 2020; Benton o.fl., 2019; Boorman o.fl., 2014; Burcher
o.fl., 2016; Coates o.fl., 2019; Sigurdardottir o.fl., 2017).
Fræðsla til verðandi mæðra er mikilvægur þáttur í
þjónustu ljósmæðra. Konurnar í þessari rannsókn kölluðu eftir
aukinni fræðslu varðandi þau inngrip sem geta komið upp í
fæðingu. Þetta styður rannsókn sem leggur áherslu á mikilvægi
þess að fæðingarfræðsla eigi ekki bara að undirbúa konur undir
það eðlilega heldur eigi hún einnig að miða að því að byggja upp
sjálfstraust þeirra fyrir fæðinguna með því undirbúa þær fyrir
það óvænta sem getur komið upp á (Hollins Martin og Robb,
2013, Gottfredsdottir o.fl., 2016). Það hefur enda verið sýnt
fram á að ef konur eru vel upplýstar dregur það úr kvíða þeirra
fyrir fæðingu (Meric o.fl., 2019). Konunum fannst jafnframt
þörf á aukinni fræðslu eftir keisaraskurðinn, um bataferlið og
við hverju er að búast eftir keisaraskurð sem samræmist einnig
öðrum rannsóknum (Coates o.fl., 2019; Tham o.fl., 2010).
Konurnar lýstu þar að auki þörf á frekari eftirfylgni og að fá
við tal eftir fæðingu, en rannsóknir sýna fram á að eftirfylgni eftir
erfiða upplifun í fæðingu getur haft jákvæð áhrif á kvíða, þung
lyndi og áfallastreituröskun (Asadzadeh o.fl., 2020). Samkvæmt
erlendum rannsóknum er algengt að konur upplifi starfsfólk
inni á skurðstofu á neikvæðan hátt (Benton o.fl., 2019; Coates
o.fl., 2019), sem er í raun andstæða reynslu kvennanna í þessari
rannsókn, en þær upplifðu allar mikið öryggi, fagmennsku,
stuðning og hlýju inni á skurðstofu.
Meirihluti kvennanna í þessari rannsókn ætlaði sér að
eignast fleiri börn og var ákveðinn í að láta reyna á fæðingu
í gegnum fæðingarveg þegar þar að kæmi. Þessar niðurstöður
verða að teljast jákvæðar, því samkvæmt öðrum rannsóknum er
algengt að konur sem endað hafa í bráðakeisaraskurði velji frekar
valkeisara á næstu meðgöngu vegna þess að þær eru hræddar
við að lenda aftur í sömu reynslu (Eide o.fl., 2019; Løvåsmoen
o.fl., 2018). Þetta samræmist erlendum rannsóknum, en hætta
er á því að konur með neikvæða fæðingareynslu treysti sér ekki
til þess að eignast fleiri börn (Dencker o.fl., 2019; Handelzalts
o.fl., 2017; Nystedt og Hildingsson, 2018). Þetta er vert um
hugsunar efni og þörf á að skoða nánar hvernig hægt er að
styðja vel við þessar konur, til þess að koma í veg fyrir ótta við
framtíðarbarneignir.
Takmarkanir rannsóknarinnar
Þar sem úrtakið er lítið ber að varast að alhæfa niðurstöðurnar
á þýðið og einnig þarf að taka tillit til þess að úrtakið var til
gangsúrtak. Hugsanlega gæti haft áhrif að flest viðtölin voru
tekin í gegnum Zoom en ekki augliti til auglitis. Styrkleikar
geta verið að rætt var við konur sem fætt höfðu á fæðingar
stöðum hér og þar á landinu og því einskorðast niðurstöður
ekki við upp lifanir tengdar einum fæðingarstað.
Ályktanir
Það að byrja í eðlilegri fæðingu og enda í bráðakeisaraskurði
getur verið erfið og krefjandi reynsla fyrir konur og það getur
tekið þær langan tíma að jafna sig, sérstaklega andlega. Góð og
ítarleg fæðingarfræðsla, upplýsingagjöf, virk hlustun, stuðningur
og nærvera á meðgöngu og í fæðingu er mjög mikilvæg til þess
að draga úr neikvæðum tilfinningum eftir bráðakeisaraskurðinn.
Konur óska eftir því að fæðingarfræðsla sé ekki einungis um
eðlilega fæðingu, heldur nái einnig til hvaða inngripa geti komið
ef fæðingin gengur ekki sem skyldi. Enn fremur er mikilvægt
að konum sé boðin ítarleg fræðsla um það við hverju er að búast
hvað varðar bæði andlega og líkamlega líðan eftir að hafa farið
í bráðakeisaraskurð. Mikilvægt er fyrir ljósmæður að gera sér
grein fyrir hversu djúpstæð áhrif það getur haft á konur að byrja
í eðlilegri fæðingu og enda í bráðakeisaraskurði. Bjóða þarf
konum viðtal eftir fæðingu til þess að ræða reynsluna og einnig
til þess að meta hvort þær þurfi jafnvel frekari stuðning annarra
fagaðila.