Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 87
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 8786 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
viðtal
Sofa Borða Elska
Viðtal við Hafdísi Guðnadóttur, ljósmóður
höfundur anna guðný hallgrímsdóttir
Hafdís Guðnadóttir ljósmóðir útskrifaðist árið 2016,
þá yngsta ljós móðir landsins. Frá útskrift hefur hún
starfað á Land spítalanum, á fæðingarvaktinni og
deild meðgönguverndar, fóstur greiningar og bráða
þjónustu kvennadeildarinnar, á Heil brigðis stofnun
Suðurnesja, en í tvö ár sinnti hún einnig með göngu
vernd á Heilsugæslunni í Lágmúla ásamt því að sinna
heima þjónustu. Hafdís er gift og á tvö börn fædd
2018 og 2020. Hennar helstu áhugamál fyrir utan
það sem tengist starfinu eru útivera, hreyfing, köld böð
og samvera með fjölskyldu og vinum. Nýlega flutti
fjölskyldan á Selfoss og nú starfar Hafdís á fæðingar
deildinni á Selfossi ásamt því að sinna nýstofnuðu
fyrirtæki sínu Sofa borða elska. Veg ferðin hófst á því
að Hafdís stofnaði síðu á insta gram til þess að ná til
foreldra og svo vef síðuna sofabordaelska.is þar sem
hægt er að nálgast ýmsan fróð leik og kaupa netnám
skeið um svefn barna. Hafdís hefur verið tals vert
í sviðsljósinu undanfarið vegna tilkomu Sofa borða
elska en við í rit nefnd Ljósmæðrablaðsins vorum
einnig for vitnar um þetta frábæra framtak hennar
Hafdísar og óskuðum eftir viðtali við hana.
Hvernig kom það til að þú fékkst áhuga á svefni
ungbarna?
Þetta kom þannig til að ég var í fæðingarorlofi
með yngra barnið mitt, sem svaf mjög illa. Þegar
hann var fjögurra mánaða hafði hann ekki sofið
lengur en tvær klst. í einu yfir nóttina nema í fáum
undantekningartilfellum. Ég sem ætlaði að taka
svefninn föstum tökum í þetta sinn þar sem eldri
stelpan mín svaf ekkert frábærlega heldur, eða
var að vakna oft yfir nóttina langt fram eftir aldri.
Ég fann að ég hafði ekki þá þekkingu sem ég
þurfti til að geta hjálpað honum að sofa betur
og mig þyrsti í upplýsingar um hvað ég gæti
gert, ég gat ekki mikið meira af þessu, svefn-
leysið var farið að hafa áhrif á andlega og
líkamlega líðan. Það var ekki úr miklu að moða
þegar ég fór að leita að þessum upplýsingum
á netinu, það er jú yfir leitt fyrsta stopp þegar
mann vantar upp lýsingar. Ég vissi að það væri
löng bið að komast að í svefnráðgjöf á Barna-
spítalanum og mig langaði líka ótrúlega að
finna út úr þessu sjálf og öðlast þá þekkingu
sem til þurfti til að hjálpa honum að sofa vel
til frambúðar. En það sem ég fann á netinu var
allt erlent efni og ég sá að það var greinilega
ágætis framboð af erlendum svefn ráðgjöfum
en hér á Íslandi er mikill skortur og löng bið
eftir þjónustu, enda er svefn lyfja notkun hjá
ungbörnum í hæstu hæðum hér á landi.
Ég var komin á það stig að ég vildi vita allt um
svefn barna, vildi þekkja allar nálganir á þetta
mál efni, hvað væri best fyrir barnið mitt og geta
tekið upplýsta ákvörðun um það hvernig ég
ætlaði að hjálpa honum að sofa betur. Þá kviknaði
á peru í hausnum á mér að læra þetta frá A-Ö og
deila svo þessum upplýsingum á þægilegan og
aðgengilegan hátt með öðrum foreldrum í sömu
sporum. Svo að þeir geti hjálpað sínu barninu
að sofa betur, um leið og þeir finna þörfina, ekki
mörgum svefnlausum mánuðum síðar. Eftir góða
umhugsun fannst mér besta leiðin til að koma
þessum upp lýsingum frá mér að búa til netnám-
skeið sem foreldrar geta keypt sér aðgang að og
fengið strax þær upplýsingar sem þeir þurfa og
nokkra möguleika á nálgunum til að velja úr eftir
því hvað hentar þeim og þeirra barni. Hugmyndin
er líka að veita upplýsingar fyrir verðandi foreldra
og foreldra ungra barna sem vilja fræðast um
heilbrigðar svefnvenjur og hvað hægt er að gera
til að koma í veg fyrir að barnið þrói með sér svefn -
vanda og koma barninu í góða rútínu, þegar það
hefur orðið þroskann til að falla í rútínu. Það er eitt-
hvað sem ég hefði viljað hafa aðgang að þegar
ég var með börnin mín lítil. Þannig að nám skeiðin
eru hugsuð fyrir alla foreldra sem vilja fræðast um
svefn barnsins síns og leggja grunninn að góðum
svefni til frambúðar.
Hvaða menntun hefur þú bætt við þig varðandi svefn
ungbarna? Hvernig var náminu háttað?
Ég fór í gegnum prógram hjá Baby Sleep Con
sul tant Training sem veitti mér faggildingu sem
svefn ráðgjafi ungbarna og barna. Þetta tók mig
9 mánuði og námið samanstóð af lestri bóka
og greina, fyrirlestrum, verkefnavinnu og vinnu
með sjálfboðaliðum sem ég hjálpaði að sofa
betur og verk efnum tengdum þeim. Ég var með
leið bein anda allan tímann sem ég gat spurt
spurninga og hún studdi mig í gegnum vinnuna
með sjálfboðaliðunum. Þetta var mun umfangs-
meira en ég hafði nokkurn tímann getað ímyndað
mér, en ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa
klárað þetta.
Hvar og hvenær fékkst þú hugmyndina að því að
stofna Sofa borða elska? Hvenær var svo fyrirtækið
stofnað?
Ég fékk hugmyndina bara á stofugólfinu heima
þegar ég var að gera æfingu til þess að reyna
að gera þessa svakalegu þreytu sem ég var að
upplifa aðeins skárri. Það var í desember 2020.
Fyrirtækið var svo stofnað í janúar 2022 þegar
námskeiðin komu út.
Starfar þú ein eða ertu með teymi með þér?
Ég starfa ein en hef þó fengið aðra sérfræðinga
til að vinna hin ýmsu verk fyrir mig, eins og til
dæmis að setja upp heimasíðuna, taka upp mynd-
böndin fyrir námskeiðin og fleira í þeim dúr.
Hvernig gengur svefnráðgjöfin? Seljast netnám
skeiðin vel?
Já, þetta hefur gengið vonum framar og nám-
skeiðin seljast mjög vel. Foreldrar virðast vera
mjög ánægðir með námskeiðin og árangurs-
sögurnar eru ófáar, þar sem börn sem höfðu
jafnvel aldrei sofið vel eru farin að sofa mjög vel.
Í hverju felast námskeiðin?
Námskeiðin eru í formi myndbanda af mér að
tala, PowerPoint fyrirlestra og texta. Ég fer yfir
það hvernig börn sofa, svo að foreldrar skilji
aðeins lífeðlisfræðina og geti nýtt sér hana
þegar þeir hjálpa barninu að sofa betur. Ég fer
yfir heilbrigðar svefnvenjur, sem er grunnurinn
að góðum svefni, ég tala um svefntengingar
og hvernig þær hafa áhrif á svefninn, tala um
dag rútínuna, nætursvefn og næturgjafir. Ég gef
einnig upp mismunandi aðferðir sem hægt er að
nota til að hjálpa barninu að læra að sofna á eigin
vegum en foreldrar velja aðferð út frá skapgerð
barnsins og uppeldisstíl. Að lokum tek ég þetta
allt saman og foreldrar búa til sérsniðið plan fyrir
barnið sitt.
Hvernig finnst þér að vera svona mikið fyrir framan
myndavélina með ráðgjöf til dæmis á instagram?
Mér finnst það bara skemmtilegt og gefandi.
Það tók smá tíma að venjast því, ég var alls ekki
vön því að vera mikið fyrir framan myndavélar, en
eins og með annað þá bara þjálfast maður með
tímanum.
Hvernig sérðu fyrir þér framtíð Sofa borða elska?
Viltu færa út starfsemina á einhvern hátt? Hverjir
eru draumar þínir?
Ég er stöðugt að skoða og velta því fyrir mér
hvernig ég get breytt og bætt þjónustuna og ég
get alveg trúað því að hún muni taka breytingum
á einhvern hátt næstu árin.
Að þýða námskeiðin yfir á önnur tungumál er
eitt hvað sem ég mun skoða næstu árin. Það væri
mjög gaman að geta boðið foreldrum á Íslandi