Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 94
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið
1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 9594 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022
Verkjamatskvarðinn PIPPR
Verkjamatskvarðinn PIPPR er endurbætt útgáfa forvera síns
PIPP (e. Premature Infant Pain Profile) (Stevens o.fl., 2014;
Rakel Björg Jónsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, 2005). PIPP
verkjamatskvarðinn er fjölþátta og metur tvær lífeðlis legar
breytur (hjartsláttartíðni og súrefnismettun) og þrjár hegðunar
breytur (svipbrigði í andliti). Jafnframt tekur PIPP kvarðinn
til greina meðgöngualdur og vökustig barns. Hver breyta er
metin út frá grunngildi og getur stigagjöf náð frá 018 stig fyrir
fullburða barn en lítill fyrirburi getur hæst skorað 21 stig. PIPP
er vel rannsakaður með tilliti til áreiðanleika og rétt mætis en
hefur verið gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu notenda vænn.
Einnig hefur hann verið gagnrýndur fyrir að vera ekki réttmætur
þegar kemur að verkjamati fyrirbura með leið réttan meðgöngu
aldur <32 vikum, þar sem nær alltaf fæst stig á PIPP fyrir
meðgöngualdur og vökustig hvort sem verkir eru til staðar eða
ekki (Ballantyne o.fl., 1999).
Í ljósi þessa var ráðist í breytingar á PIPP sem ætlað
var að ná betur yfir verkjamat fyrirbura og skýra að auki betur
stigagjöf í tengslum við leiðréttan meðgöngualdur og vökustig
og var niðurstaðan endurskoðaður PIPP eða PIPPR (e. Pre
mature Infant Pain Profile – Revised) (Gibbins, o.fl., 2014).
Niðurstöður rannsóknar Stevens og félaga (2014) sýndu fram
á réttmæti PIPPR með gögnum úr tveimur slembiröðuðum
samanburðarrannsóknum þar sem PIPP og PIPPR voru bornir
saman við sársaukafull inngrip hjá litlum fyrirburum. Jafnframt
sýndu þeir fram á notagildi PIPPR með könnun á viðhorfum
hjúkrunarfræðinga. Nú liggur fyrir íslensk útgáfa PIPPR sem
hér eftir verður kallaður íslPIPPR til aðgreiningar frá upp
runa legu útgáfunni á frummálinu ensku. ÍslPIPPR hefur verið
þýddur og lagaður að menningu íslenskrar nýburagjörgæslu en
upp lýsingar vantar um réttmæti og áreiðanleika (Sigríður María
Atladóttir, 2017; Olsson o.fl., 2018).
Það er mikilvægt að verkjamatskvarðinn sé prófaður
áður en hann er innleiddur og að til séu aðgengilegar leið
beiningar á íslensku. Þessi rannsókn hefur það markmið að
prófa mælitækið og meta réttmæti og áreiðanleika íslPIPPR
verkja matskvarðans og meta gagnsemi hans við verkjamat á
nýburagjörgæslu á Íslandi. Tilgangur þessarar rannsóknar er því
að prófa íslenska þýðingu á endurbættu gagnreyndu alþjóðlegu
matstæki fyrir verki fyrirbura (PIPPR) (Stevens o.fl., 2014)
á nýburagjörgæsludeild á Íslandi með tilliti til verkjamats hjá
litlum fyrirburum og veikum nýburum. Eftirfarandi til gáta
var sett fram: Íslensk þýðing endurskoðaðs PIPPRverkja
mats kvarða er áreiðanleg og réttmæt til notkunar í klínískum
aðstæðum á Íslandi. Prófun tilgátunnar mun svara rann sóknar
spurningunni: Er íslensk þýðing endurskoðaðs PIPPRverkja
matskvarða áreiðanleg og réttmæt til notkunar í klínískum
aðstæðum?
Aðferðafræði
Rannsókn þessi er megindleg samanburðarrannsókn á klínískum
mælieiginleikum íslPIPPR með prófun í þremur aðstæðum
á nýburagjörgæslu. Rannsóknin var framkvæmd á Vökudeild,
Barnaspítala Hringsins, Landspítalanum og fór gagnasöfnun
fram frá febrúar til apríl árið 2018 og febrúar til apríl árið 2021.
Stuðst var við tölfræðiforritið SPSS við tölfræðilega gagna úr
vinnslu, marktektarútreikninga og fylgnipróf voru notuð til að
athuga hvort verkjamatskvarðinn væri marktækur. Réttmæti
var athugað með Cronbach‘s fylgni og ANOVA og stuðst við
Pearson’s r til að athuga áreiðanleika milli rannsakenda og hvers
mat þáttar íslPIPPR. Einnig var gert Tukeypróf sem mælir
nákvæmlega á milli hvaða hópa er marktækur munur. Prófaðar
voru eftirfarandi rannsóknartilgátur:
1. T1: Stigagjöf með íslPIPPR nemur mun á milli
sársaukafullra aðstæðna, raskaðra aðstæðna og hlut
lausra aðstæðna.
2. T2: Ekki er marktækur munur á mælingum með
íslPIPPR á sársauka milli rannsakenda í þremur
ólíkum aðstæðum.
Þátttakendur
Þýðið er inniliggjandi fyrirburar og veikir nýburar á nýburagjör
gæsludeild á Íslandi. Alls voru valdir í úrtak 50 fyrirburar og
veikir nýburar með leiðréttan meðgöngualdur frá 23 til 40
vikur. Þægindaúrtak var valið, bæði stúlkur og drengir. Þátt
takendur voru valdir sem einungis þurftu að gangast undir
sárs aukafull inngrip tengd meðferð eða veikindum meðan
dvöl á nýburagjörgæslu stóð yfir. Fyrirburar og veikir nýburar
með taugasjúkdóm, nýburar sem voru alvarlega veikburða eða
með sjaldgæf efnaskipta og genafrávik voru ekki teknir með
í rannsóknina þar sem þótti eðlilegt að taka tillit til aðstæðna
fjölskyldu sökum mikilla veikinda barns. Rannsóknin var
sam þykkt af siðanefnd heilbrigðisrannsókna Landspítala, leyfi
nr. 45/2017 og 6/2021 og vísindarannsóknanefnd heilbrigðis
rannsókna. Tilkynning var send til persónuverndar og skriflegt
leyfi fengið frá yfirlækni og deildarstjóra Vökudeildar. Foreldrar
veittu upplýst samþykki fyrir þátttöku barns síns.
Framkvæmd
Þátttakendur voru valdir í samvinnu við hjúkrunarfræðinga og
vaktstjóra eftir að hafa fengið skriflegt upplýst samþykki frá
forráðamönnum barns. Fyrirburar og veikir nýburar sem þurftu
að gangast undir sársaukafull inngrip vegna meðferðar voru
metnir í þrenns konar aðstæðum og voru sitt eigið viðmið.
Rannsakendur eru hjúkrunarfræðingar sem starfa á
ný bura gjörgæsludeild, Barnaspítala Hringsins. Rannsakandi
A er höfundur þýðingar íslPIPPRverkjamatskvarðans, hefur
starfað við ný bura gjörgæslu í yfir 15 ár og er með mikla reynslu
á þessu sviði. Rannsakandi B er einnig hjúkrunarfræðingur
og hefur starfað á nýburagjörgæslu í rúmlega fjögur ár. Tveir
rann sakendur framkvæmdu þrjár mælingar fyrir hvert barn.
Hlut lausar aðstæður (H), ekkert inngrip af neinu tagi þar sem
Verkjamat fyrir fyrirbura Janúar 2017
© Ensk frumútgáfa Bonnie J. Stevens, Sharyn Gibbins, Janet Yamada, Kimberley Dionne, Grace Lee, Céleste Johnston & Anna Taddio. ©
Íslensk þýðing: Sigríður María Atladóttir og Guðrún Kristjánsdóttir. Endurgerð og þýðing með samþykki Bonnie Stevens. Þessa útgáfu af
PIPP-R má nota við rannsóknir, kennslu og í klínísku starfi en ekki í hagnaðarskyni.
The Premature Infant Pain Profile – Revised PIPP-R
Matsþáttur hjá barni Mat (stig) Mat hjá
barni (stig)
0 +1 +2 +3
Breyting á hjartsláttartíðni (slög/mín)
Grunnlína:_______
0-4
5-14
15-24
>24
Lækkuð súrefnismettun -SaO2 (%)
Grunnlína: ______
0-2
3-5
6-8
>8 eða aukið
súrefni (FiO2)
Setur í brýnnar (sek)
Enginn
(<3)
Lítill
(3-10)
Miðlungs
(11-20)
Hámarks
(>20)
Augu kreist aftur (sek)
Enginn
(<3)
Lítill
(3-10)
Miðlungs
(11-20)
Hámarks
(>20)
Skora frá nasavæng að munnviki/ efri vör dregst upp (sek)
Enginn
(<3)
Lítill
(3-10)
Miðlungs
(11-20)
Hámarks
(>20)
* Samanlögð grunnstig:
Leiðréttur meðgöngualdur (vikur + dagar)
≥36 32–35+6 28–31+6 <28
Vökustig
Virk/ur
vakandi
Róleg/ur
vakandi
Virk/ur
sofandi
Róleg/ur
sofandi
** Samanlögð heildarstig:
* Samanlögð grunnstig fyrir lífsmörk og svipbrigði. Ef samanlögð grunnstig > 0, bæta þá við stigum fyrir
leiðréttan meðgöngualdur og vökustig.
** Samanlögð heildarstig: Samanlögð grunnstig + stig fyrir leiðréttan meðgöngualdur + vökustig.
Leiðbeiningar við stigagjöf
Skref 1: Fylgist með barni í 15 sekúndur í hvíld (án áreitis) og metið lífsmörk (hæsta hjartsláttartíðni
(HT), lægsta súrefnismettun (SaO2)) og vökustig.
Skref 2: Fylgist með barni í 30 sekúndur eftir að inngrip hefst og metið breytingar á lífsmörkum (mesta
breyting á HT, lægsta súrefnismettun SaO2***) og hversu lengi svipbrigði eru til staðar.
***Ef barn þarf aukið súrefni (FiO2) á einhverjum tímapunkti fyrir eða við inngrip, eru gefin 3 stig fyrir
SaO2 matsþátt.
Skref 3: Reikna samanlögð grunnstig. Gefa stig fyrir leiðréttan meðgöngualdur og vökustig ef
samanlögð grunnstig >0.
Skref 4: Reikna samanlögð heildarstig með því að leggja saman samanlögð grunnstig + stig fyrir
leiðréttan meðgöngualdur + vökustig.
Mynd 1 PIPP-R verkjamatskvarðinn.