Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Side 24

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Side 24
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 2524 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 fréttir Norðurlandaráðstefna 2022 í Helsinki höfundur ritstjórn Í Helsinki í Finnlandi var Norðurlandaráðstefnan haldin í 22. sinn þann 4.­6. maí s.l. Yfirskrift hennar var: Midwives Promoting Sexual and Reproductive Health and Rights. Enn á ný gafst ljósmæðrum á Norðurlöndum og samstarfsfélögum víða að tæki færi til að kynna og ræða nýjustu þekkingu og rann sóknir á sviði ljósmóðurfræða. Einnig gafst þátt takendum tækifæri til að kynnast og mynda sambönd til eflingar ljósmóðurfaginu í framtíðinni. Þátttakendur voru fjölmargir og margir frá Íslandi. Eins og Unnur Berglind formaður sagði á Ljósmæðraspjallinu, lét nærri að 20% starfandi ljósmæðra væru á staðnum. Farið var í skoðunarferðir, skálað í gleði og óspart farið í gufubað að hætti innfæddra. Einnig voru erindi flutt, bæði munnleg og á veggspjöldum, nær 30 talsins frá íslenskum ljósmæðrum og sam starfs­ félögum. Hér að neðan er hópmynd sem tekin var á alþjóðadegi ljósmæðra 5. maí í blíðu vorveðri. Íslensku ljósmæðurnar í Helsinki. félagsstörf Ljósmæðradagurinn 13. maí 2022 Ljósmæðrafélag Íslands hélt fræðsludag ljósmæðra þann 13. maí 2022. Þetta var dagur fyrir ljósmæður, haldinn af ljósmæðrum og er óhætt að segja að hann hafi verið stútfullur af áhugaverðu efni. Fræðsludagurinn var haldinn í Nauthól og fór vel um þær rúmlega 100 ljósmæður sem nýttu sér þetta frábæra tækifæri. Fundarstjórar voru þær Guðlaug María Sigurðardóttir og Gréta María Birgisdóttir. Karitas Halldórsdóttir tók að sér að setja fræðsludaginn. höfundur guðlaug erla vilhjálmsdóttir og anna guðný hallgrímsdóttir Fyrsti fyrirlesarinn var Berglind Hálfdánsdóttir en hún kynnti stöðuskýrslu um framtíð barneignar­ þjónustu á Íslandi 2020­2030. Mjög gott var að fá útdrátt úr þessari skýrslu en efni hennar eru til lögur frá starfshópi heilbrigðisráðherra. Margir áhuga verðir punktar komu fram, bæði í tengslum við með göngu­ vernd, fæðingarþjónustu, sængurlegu, fag mennsku, menntun, kven­ og kynheilbrigði og ósjúkra tryggðar og erlendar konur. Til að nefna eitt hvað má nefna úrbætur á landsbyggðinni þar sem reynt verður að tryggja jafnt aðgengi að sér hæfðri þjónustu. Inn­ leiddar verða stöður um dæmis ljós móður í hverju heilbrigðisumdæmi sem og stöður héraðs ljósmæðra í dreifðari byggðum þannig að hvergi verði lengra en klukkustundar neyðar flutningur í vaktþjónustu ljósmóður. Eins og Berglind benti sjálf á þá er fram­ tíðin full af tækifærum fyrir ljósmæður sem vilja spreyta sig á áhugaverðum verkefnum. Helga Gottfreðsdóttir prófessor í ljósmóður­ fræði við Háskóla Íslands ræddi um nám og starfs­ svið ljósmæðra. Það var gaman að hlusta á hana rifja upp sögu námsbrautar í ljósmóðurfræði í stuttu máli og segja frá því þegar hún sjálf var nemandi í ljós­ mæðra skólanum. Helga nefndi að mikilvægt væri að fá nákvæma tölu yfir fjölda starfandi ljósmæðra á landinu, meðal annars til þess að meta raunveru­ lega þörf á ljósmæðrum. Hún nefndi einnig að sér þætti mikilvægt að efla leiðtogaþjálfun ljósmæðra. Helga sagðist hafa viljað sjá í skýrslunni um framtíð barn eignar þjónustu að stefnt væri að því að ákveðinn fjöldi kvenna fengi samfellu í þjónustu og færi í gegnum eðlilegt fæðingarferli. Dögg Hauksdóttir fæðingarlæknir og for­ stöðumaður Kvenna­ og barnaþjónustu Landspítala hélt mjög skemmtilegt erindi um stöðu og framtíð barneignarþjónustu á Landspítalanum. Hún nefndi að árin 2020­2021 hefðu verið eins og fullkominn stormur sem samanstóð af metfjölda fæðinga og heimsfaraldri. Heimsfaraldri sem fylgdu miklar breytingar á starfsumhverfi til að mynda með notkun hlífðarbúnaðar og grímuskyldu, uppskiptum starfs­ mannaeiningum, fundar­ og fræðslubanni ásamt manneklu vegna skorts á ljósmæðrum og veikindum eða sóttkví starfsfólks. Á sama tíma hefur húsakostur Landspítala farið versnandi en kröfur starfsfólks um sveigjanleika í vinnutíma aukist. Jafnframt hafa kröfur skjólstæðinga um notkun samfélagsmiðla í fæðingum aukist sem og væntingar þeirra til fæðingar upplifuninnar breyst. Hún minnti þó á að eftir storminn lægir og að vonandi séu bjartari tímar fram undan. Dögg sagði einnig að hennar fram tíðar­ sýn sneri að öryggi og ánægju skjólstæðinga en jafn­ framt vonaðist hún til að fæðingarþjónusta Land­ spítala yrði eftirsóttur vinnustaður þar sem nýsköpun og vísindastarf væri partur af daglegri starfsemi. Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir ljósmóðir á Landspítalanum kynnti meistaraverkefni sitt um ljósmæðrastýrðar einingar. Markmið verkefnisins var að bera saman útkomu móður og barns eftir upp hafs stað fæðingar. Bornar voru saman útkomur fæðinga kvenna sem stefndu að fæðingu á ljós­ mæðra stýrðum einingum innan og utan sjúkra húsa við útkomu fæðinga á þverfaglegum deildum sjúkra­ húsa. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að konur sem stefndu að fæðingu á ljósmæðrastýrðum einingum voru líklegri til þess að fæða eðlilega en minni líkur voru á notkun hríðaörvunar, mænu rótar ­
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.