Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 4

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 4
eru öll hófstilltari. Þá hafa bæði hæstaréttarlögmaður og prófessor tjáð sig í til- efni af ummælum ráðherra. Það er ljóst að mannréttindadómstóllinn sem stofnun er í miklum vanda staddur. Nú munu tæplega 80.000 mál, stór og smá, bíða afgreiðslu hans. Sú tala er af þeirri stærðargráðu að menn hljóta að standa agndofa frammi fyrir henni. Þessi tala getur ekki sagt annað en það að hér er komið út í hreint óefni. Prófessor Björg Thorarensen hefur bent á það að skýringin á þessum málafjölda sé m.a. sú að aðildarríkjum Evrópuráðsins hafi fjölgað að miklum mun og í hinum nýju aðildarríkjum mörgum hverjum standi mannréttindi völtum fótum. Málafjöldinn eigi einnig þá skýringu að víða telji menn mannréttindi á sér brotin vegna þess að mikill hægagangur sé á afgreiðslu dómstóla. Helmingur þeirra mála sem fyrir dómstólnum séu komi frá fjórum ríkjum, Rússlandi, Póllandi, Rúmeníu og Tyrk- landi. Prófessorinn segir að dómstóllinn hafi kveðið upp 718 dóma á síðasta ári. Af þeim hafi eitt hundrað haft þýðingu fyrir skýringu á mannréttindasáttmál- anum. Hátt hlutfall annarra mála hafi verið vegna langs málsmeðferðartíma heima fyrir og einnig séu sömu sakarefni borin undir dómstólinn hvað eftir annað. Mannréttindadómstóllinn standi nú sjálfur frammi fyrir sama vanda að því er varði málsmeðferðartíma og sé það kaldhæðnislegt. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem er alfarið á móti takmörk- unum á málskotsrétti til dómstólsins, vill leysa þennan vanda með því að fjölga deildum dómstólsins, og auka þannig afköstin, og auka fjárveitingar. Vonandi er hægt að leysa vanda dómstólsins á einhvern tæknilegan hátt. Þó er vandséð að vandinn verði leystur til frambúðar nema til komi endurskoðun á mannréttindasáttmálanum sjálfum, eins og hann er nú túlkaður, og sömuleiðis reglum sem gilda um mannréttindadómstólinn. Það er ekki nein einhlít skýring til á því hvað telst til mannréttinda og hvað ekki. Um það hafa menn löngum deilt og rætt aftur og fram. Í raun og veru er þetta efni svo útþynnt og óljóst að við liggur að hver og einn geti búið sér til skýringu og haldið því fram að hún sé jafn- gild öðrum skýringum. Menn ættu þó hugsanlega að geta sammælst að verulegu marki um það hvað flokkast undir grundvallarmannréttindi og afmarka þau með ákveðnum hætti. Það tjóar tæpast að segja að öll mannréttindi séu grundvallar- mannréttindi. Áfram mætti svo deila, t.d. um það hvort mannréttindi séu brotin með því að þurfa að greiða stöðumælasekt og að borga í strætisvagn, svo að nefnd séu mál af dönskum vettvangi. Auðvitað eru þau mál hlægileg en kunna samt að sýna hvernig teygt hefur verið úr mannréttindaumræðunni. Það er deginum ljós- ara að hér þarf að staldra við og taka mannréttindamálin öll til gaumgæfilegrar umræðu og endurskoðunar. Hvort það á að gera á forsendum Mads Bryde And- ersen er svo annað mál. Þýðingarmikið er að forða umræðunni frá pólitískum skotgrafahernaði, þótt hún hljóti alltaf að einhverju marki að vera pólitísk. Þótt stjórnmálamenn ráði ferðinni þegar til kastanna kemur þurfa þeir ekki að ráða þeirri umræðu sem fer fram. Umræðan þarf að vera hlutlæg og mótuð af yfir- vegun og réttsýni. Þá leið verður að fara til þess að reyna að tryggja sem best vitræna niðurstöðu. 4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.