Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 20

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 20
20 meget teoretisk spørgsmål om domstolene på statsretligt grundlag i extreme tilfælde ville kunne tilsidesætte en lov der praktisk talt ingen vejledning giver for deres afgørelse. Noget andet er at domstolene i konkret tilfælde kan og skal frifinde hvis de ikke i en bestemmelses ordvalg finder tilstrækkeligt sikkert grundlag for at anse forholdet strafbart. Men det betyder ikke at domstolene kan holde sig fri af vurder- inger og retsskabende funktioner inden for ret vage ordvalg. Af tilvitnuðum athugasemdum úr framangreindu riti Knud Waaben verður ráðið að hin takmarkaða viðurkenning í dönskum rétti á tilvist reglu um skýrleika refsiheimilda virðist m.a. afleiðing af þeirri réttarheimildafræðilegu stöðu að stjórnarskráin danska hefur ekki að geyma sambærilega tilvísun til lög- mætisreglu á sviði refsiréttar eins og 1. mgr. 69. gr. íslensku stjórnarskrárinnar og 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar, sem rætt verður um hér síðar. Útgangs- punktur umfjöllunar um þetta efni er því ákvæði 1. gr. hegningarlaganna dönsku. Þá hefur hér ugglaust áhrif að danskir dómstólar hafa veitt löggjafanum verulegt svigrúm við mat á stjórnskipulegu gildi almennra laga.36 Athyglisvert er að Knud Waaben útilokar þó ekki að dómstólar kynnu á stjórnskipulegum grundvelli að víkja til hliðar refsiheimild í algjörum undantekningartilvikum enda væri ekki að finna í refsiheimildinni neinar leiðbeiningar um inntak hennar og gildissvið. Þá virðast bæði Vagn Greve og Knud Waaben afmarka umfjöllun sína um skýrleikakröfur í refsimálum að verulegu leyti við þá skyldu dómstóla að sýkna mann í sakamáli ef vafi leikur á því að háttsemi hans falli undir verkn- aðarlýsingu refsiákvæðis. Í því sambandi er skírskotað til þess lögskýringar- sjónarmiðs á sviði refsiréttar að vafi um heimfærslu til refsiákvæða ber að skýra sakborningi í hag.37 Hefur því verið haldið fram að dómstólar í Danmörku séu í auknum mæli, og með vísan til meginreglunnar um skýrleika refsiheimilda, að gera þá kröfu að sakfelling eigi sér ekki stað nema ótvírætt þyki að ætluð refsi- verð háttsemi falli undir verknaðarlýsingu í refsiákvæði.38 Af umfjöllun Vagn Greve verður ekki annað séð en að lögð sé áhersla á viðvörunarsjónarmiðið í þessu sambandi. 36 Dómur Hæstaréttar Danmerkur, U 1999 842 H, er fyrsti og eini dómurinn þar sem rétturinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að almennt lagaákvæði brjóti í bága við stjórnarskrána, sjá hér m.a. Jens Peter Christensen & Michael Hansen Jensen: „Højesterets dom i Tvind-sagen“. UFR B 1999, bls. 227-237. 37 Sjá um þetta lögskýringarsjónarmið í íslenskum rétti Jónatan Þórmundsson: Afbrot og refsiá- byrgð I, bls. 243-245 og til hliðsjónar dóm héraðsdóms í H 1995 3149 (Bjartsmál) en honum er nánar lýst í kafla 3.2.2 í greininni. 38 Sjá hér einnig Vagn Greve, Asbjørn Jensen & Gorm Toftegaard Nielsen: Kommenteret straffelov – Almindelig del, bls. 96, en þar segir: „Domstolenes synes i nyere tid at være på vej til at skærpe kravene til en klar lovhjemmel („lex certa“) … Denne udvikling kan blive fremmet af menneskerettighedsdomstolens krav om, at straffbare forhold skal beskrives klart i loven“. Í þessu sambandi er vísað til U 1969 56 H, U 1991 85 H, U 1992 16 V, U 1995 405 V og U 1997 634 V. Um mörk meginreglunnar um skýrleika refsiheimilda og túlkunar refsilaga er nánar fjallað í kafla 3.3.3.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.