Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 23
23 en må det likevel, når straffebestemmelsen generelt rammer overtredelse av påbud i eller i medhold af loven, kreves at det fremgår klart nok av den materielle bestemm- elser at den stiller opp en handlingsnorm, og hvem den gjelder for. Einnig má hér nefna dóm Hæstaréttar Noregs, Rt. 2002, bls. 1722, en þar komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að ákvæði 48. gr. a í norsku hegningarlög- unum um refsiábyrgð lögaðila væri nægjanlega skýr refsiheimild hvað varðaði það tilvik sem til úrlausnar var að virtu orðalagi ákvæðisins og undirbúnings- gögnum:45 Etter myt syn gir lovteksten til § 48 a samanhalden med førearbeida her tilstrekkelig klar heimel for straff. Athyglisverð er sú afstaða Hæstaréttar Noregs að við mat á því hvort refsi- heimild teljist nægjanlega skýr megi horfa til undirbúningsgagna að baki refsi- heimild. Um réttmæti þeirrar aðferðafræði verður fjallað nánar í kafla 3.3.6. Í riti Jørgen Aall, Rettergang og menneskerettigheter, er fjallað um hvort og þá að hvaða marki stjórnarskrárvernd sú sem leiðir af 96. gr. norsku stjórnar- skrárinnar fullnægir kröfum 7. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Í þeirri umfjöllun er áherslan lögð á að gera greinarmun á hlutverki löggjafans við mótun og setningu refsiheimilda annars vegar og túlkun og beitingu dómstóla á lögfestri refsiheimild hins vegar. Jørgen Aall leggur til grundvallar að á báðum þessum handhöfum ríkisvalds hvíli skylda til að tryggja fyrirsjáanleika refs- iheimildarinnar (n. forutberegnelighet) þannig að hún veiti borgaranum sann- gjarna og eðlilega viðvörun um hvort háttsemi hans telst refsinæm eða ekki. Atvik kunni að vera með þeim hætti að löggjafinn hafi í upphafi sett refsiheim- ild sem samkvæmt orðalagi sínu virðist nokkuð skýr og glögg. Við túlkun og beitingu refsiheimildarinnar í einstöku máli fari dómstólar hins vegar þá leið að heimfæra undir refsiheimildina tilvik sem er efnislega í verulega fjarlægum tengslum við orðalag hennar. Með slíkri aðferðafræði geti lögskýring dómstóla í refsimáli brotið í bága við meginregluna um skýrleika refsiheimilda sam- kvæmt 96. gr. norsku stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 7. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.46 Umfjöllun Jørgen Aall er athyglisverð fyrir þá áherslu sem hann leggur á að allir þeir opinberu aðilar sem koma að setningu refsiheimilda, framkvæmd þeirra og meðferð sakamála, þ.e. löggjafinn, ákæruvaldið og dómstólar, verði 45 Rt. 2002, bls. 1722 (1725). Ákvæði 48. gr. a norsku hegningarlaganna um refsiábyrgð lögaðila er svohljóðandi: „Når et straffebud er overtrådt av noen som har handlet på vegne av et foretak, kan foretaket straffes. Dette gjelder selv om ingen enkeltperson kan straffes for overtredelsen. Med for- etak menes her selskap, forening eller annen sammenslutning, enkeltpersonforetak, stiftelse, bo eller offentlig virksomhet. Straffen er bøter. Foretaket kan også fradømmes retten til å utøve virk- somheten eller forbys å utøve den i visse former, jf. § 29“. 46 Jørgen Aall: Rettergang og menneskerettigheter, bls. 279-283.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.