Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Qupperneq 43

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Qupperneq 43
arnarsvæði og þótt ernir hefðu ekki orpið nýlega í Arnarstapa hefðu ummerki um þá fundist síðast í maí 1999 en síðast hafi verið vitað um arnarvarp á árinu 1997. Þá segir í forsendum dómsins að „ráða [megi] af framangreindri skrán- ingu að á þessum árum hafi fáeinir ungar komist upp og varpið misfarist í nokkur skipti“. Í framhaldinu er í forsendunum vikið að því að íslenski haf- örninn sé alfriðaður samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 1. gr. og 17. gr. laga nr. 64/1994, og að aldrei megi veiða hann í þeim tilgangi að koma í veg fyrir tjón, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 456/1994. Þessu næst er vísað til tilvitnaðrar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 64/1994 sem ákæran beindist að. Rétt er samhengisins vegna að taka að nýju hér upp þær forsendur Hæstaréttar sem á eftir koma: Ákærða er sem fyrr segir gefið að sök að hafa brotið gegn þessu ákvæði með því að hafa raskað hreiðurstað arna með framangreindri mannvirkjagerð á hreiðurstöðum þeirra í Arnarstapa og Hrísey. Fram er komið að á undanförnum áratugum hafa fáeinir arnarungar komist upp og á sama tíma hefur varp misfarist í nokkur skipti á þessum hreiðurstöðum. Er óumdeilt að síðast var kunnugt um arnarvarp í Arnarstapa árið 1997, en ekki er fram komið hvenær örn verpti síðast í Hrísey. Í orðskýringum 1. gr. laga nr. 64/1994 eru „lífsvæði“ talin vera „svæði sem dýr nota sér til framfærslu og viðkomu eða sem farleið“. Ekki er ljóst af 6. gr. laganna og öðrum ákvæðum þeirra eða lögskýringargögnum hvort sá staður sem örn kunni að verpa á geti fallið undir lífsvæði dýra eða hvort gerð er sú krafa að hann verpi þar í raun. Þetta orðalag ákvæðisins er að þessu leyti of almennt og því ekki nægilega ótvírætt og glöggt. Upp- fyllir það ekki þær kröfur sem gera verður til skýrleika refsiheimilda. Ekki verður önnur ályktun dregin af þessum forsendum en að sá hluti 2. mgr. 6. gr. laga nr. 64/1994 sem Hæstiréttur telur ekki fullnægja skýrleikakröfum er orðalagið lífsvæði dýra, sbr. „Þetta orðalag ákvæðisins er að þessu leyti“. Rétt er að hafa í huga að í forsendunum er hvergi vikið að því að í mati Hæstaréttar á óskýrleika ákvæðisins hafi hinir eiginlegu verknaðarþættir þess (… að gæta fyllstu varkárni og nærgætni … og forðast óþarfa truflun) haft þýðingu. Það álitaefni sem Hæstiréttur stóð í raun frammi fyrir var hvorn af tveimur haldbærum lögskýringarkostum við túlkun hugtaksins lífsvæði dýra bar að leggja til grundvallar í málinu, þ.e. hvort undir það félli einungis sá staður sem örn „verpir í raun“ eða einnig hvort undir það félli sá staður sem „örn kann að verpa á“. Þetta skipti máli vegna þess að af gögnum málsins var, eins og segir í dómi Hæstaréttar, „síðast … kunnugt um arnarvarp í Arnarstapa árið 1997“. Þá var ekki „fram komið hvenær örn verpti síðast í Hrísey“. Háttsemi sem A var gefið að sök átti sér stað sumrin 2001 og 2002. Ef fyrri lögskýringarkosturinn hefði orðið fyrir valinu þá hefði líklegast þurft að sýkna A af brotinu nema skil- yrði tilraunarverknaðar hefðu verið talin uppfyllt, sbr. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 64/1994, og þá að fullnægðum réttarfarsskilyrðum, sbr. 117. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Ef síðari kosturinn hefði verið lagður til grundvallar hefði að líkindum mátt sakfella A. Hæstiréttur valdi hins vegar hvorugan kostinn heldur taldi að hugtakið lífsvæði dýra í 2. mgr. 6. gr. laga nr. 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.