Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 63

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Síða 63
krefjast má, að hver góður og samvizkusamur embættismaður fylgi í embættis- færslu sinni“.128 Það er í sjálfu sér ekkert því til fyrirstöðu að stjórnlögum að löggjafinn ákveði að gera ráðherra refsiábyrgan í tilvikum sem þessum. Það leiðir hins vegar af 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar, eins og nánar er rakið í kafla 3.3.3 og 3.3.8, að þegar inntak refsiákvæðis miðast einkum við siðferðislögmál um hin góða, gegna og skynsama mann, en byggir ekki í sjálfu sér á ólögmætismæli- kvarða, þá verði slíkt ákvæði að lýsa með fullnægjandi hætti þeirri athöfn sem löggjafinn telur að eigi vera refsiverð. Hátternisregla 10. gr. rbl. setur ekki fram nein hlutlæg viðmið eða áþreifanlegar leiðbeiningar um inntak þeirrar refsi- næmu háttsemi sem hún beinist að og veitir viðkomandi ráðherra því ekki sann- gjarna viðvörun um hvaða háttsemi hans kann að falla innan gildissviðs ákvæðsins. Virðist það eiga við hvort sem lagður yrði til grundvallar almennur og hlutlægur mælikvarði um venjulegan, sakhæfan einstakling eða miðað við einstaklegan mælikvarða, þ.e. hvernig ákvæðið horfir við viðkomandi ráðherra. Ákvæðið er því of almennt orðað og óljóst til að fullnægja meginreglunni um skýrleika refsiheimilda samkvæmt 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar.129 Ákvæði b-liðar 10. gr. rbl. lýsir verknaði sem stofnar heill ríkisins í fyrirsjá- anlega hættu. Enda þótt orðalagið heill ríkisins kunni við fyrst sýn að valda ein- hverjum vafa, enda kannski ekki hefðbundið orðalag í lagasetningu nú til dags, yrði inntak þess líklega skýrt til samræmis við ákvæði annarra laga sem fjalla t.d. um öryggi ríkisins eða eftir atvikum almannahagsmuni eða almannaheill. Þá verður hér að hafa í huga þá afmörkun á þeim verknaði sem hér er lýst sem felst í orðunum fyrirsjáanleg hætta. Mat á því hvort slík hætta sé til staðar verður eðli máls samkvæmt að byggja á nokkuð hlutlægum sjónarmiðum, t.d. um mögulegt umfang tjóns sem athöfn ráðherra kann að hafa í för með sér. Niðurstöður af framangreindu eru þær í fyrsta lagi að a-liður 10. gr. rbl. full- nægir ekki þeim kröfum um skýrleika refsiheimilda sem leiða af 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. Ekki verður aftur á móti fullyrt að á skorti að önnur ákvæði rbl. fullnægi þeim kröfum. Í öðru lagi er rétt að taka undir það með nefnd for- sætisráðherra um starfsskilyrði stjórnvalda að þróun í lagasmíð á sviði refsi- réttar og á sviði mannréttinda mæli með því að lög nr. 4/1963 verði endur- skoðuð, og þá einnig með tilliti til breyttrar hugtakanotkunar, bæði í nýlegri lög- gjöf, s.s. á sviði stjórnsýsluréttar, og í daglegu máli. 128 Ólafur Jóhannesson: Stjórnskipun Íslands, bls. 166. 129 Um 10. gr. rbl. segir meðal annars eftirfarandi í skýrslu nefndar forsætisráðherra um starfsskil- yrði stjórnvalda o.fl., sjá bls. 140: „Í ljósi þess að ákvæðið leggur refsingu við athöfnum sem ekki eru ólögmætar samkvæmt öðrum landslögum leikur vafi á hvort hin almenna verknaðarlýsing 10. gr. laganna teljist nægjanlega skýr samkvæmt þeim kröfum sem í dag eru gerðar til refsiákvæða. Þá skal jafnframt bent á að með lögfestingu málsmeðferðarreglna sem fylgja ber við meðferð stjórnsýslumála, jafnræðisreglna og meðalhófsreglna hafa brot á þessum reglum flust undan a-lið 10. gr. yfir í 9. gr. laganna sem fjallar um brot ráðherra gegn fyrirmælum laga, en ekki er vafa und- irorpið að a-lið 10. gr. hefur ekki síst verið ætlað að ná til brota sem nú falla undir þessar reglur“. 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.