Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 95

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 95
heldur geta þau ekki síður haft tilfinningalegt gildi. Á þetta einkum við um gæludýr og hesta. Slasist dýr vaknar sú spurning hvort þeim sem ábyrgð ber verði gert að greiða læknis- og lyfjakostnað þar til dýrið nær bata, eða hvort hægt sé að takmarka bæturnar við verðmæti dýrsins, og ef svo er hvernig á þá að meta verðmætið. Það er tjónþolinn, eigandi dýrsins, sem verður að sanna tjón sitt, þ.e. verðmæti þess. Það getur hann gert á venjulegan hátt með mati, er byggist á haldbærum gögnum um dýrið og eiginleika þess, svo sem kynbóta- dómum eða dómum frá sýningum og vottorðum manna er þekkja til þess. Þá er sanngjarnt að taka tillit til þess hvers vænta má af dýrinu í framtíðinni og hvaða tekjur það hefði getað fært eiganda sínum. Þessi sjónarmið koma t.d. til álita varðandi keppnis- eða sýningardýr og vænleg undaneldisdýr. Það er einnig eig- andinn, í flestum tilvikum a.m.k., sem ræður því hversu langt er gengið í að lækna slasað dýr og er það þá hans mat, hugsanlega byggt á tilfinningalegum tengslum hans við dýrið, sem ræður. Hins vegar verður tjónvaldi ekki gert að greiða bætur fyrir lækniskostnað sem fer fram úr verðmæti dýrsins. Þau rök eru til þess að dýr hafa sitt verðmæti eins og aðrir hlutir, og sá sem veldur tjóni á dýri á ekki að þurfa að sæta því að verða að greiða hærri bætur vegna þess að tjónþolinn er bundinn við það tilfinningaböndum.12 Hér er um að ræða sama hlutinn og þegar maður á gamla bifreið sem honum þykir „vænt um“, en er verðlítil á almennum markaði. Skemmist hún eða eyðileggst í árekstri verður eigandinn að sætta sig við að fá markaðsverð í bætur. Þessu til stuðnings má nefna H 1993 2114, en þar var maður sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að skjóta hund er hlaupið hafði í lambfé hans. Drepist dýr er niðurstaðan hin sama, eigandinn verður að sætta sig við bætur fyrir verðmæti dýrsins, eins og það er metið, en á ekki rétt á „sárabótum“.13 4.2 Áhættutaka og eigin sök Þessi skyldu atriði koma oft til álita á þessu sviði, sérstaklega mun það eiga við um áhættutöku. Samþykki gæti einnig átt undir þessa umfjöllun, en þar eð sjaldgæft mun líklega vera að menn samþykki beinlínis að dýr valdi þeim tjóni verður ekki frekar fjallað um það atriði. Um hin atriðin verður nú fjallað í einu lagi. Líklega er gleggsta dæmið um áhættutöku á þessu sviði maður sem tekur að sér að vinna með hættuleg villidýr, svo sem ljón eða krókódíla. Maður sem umgengst hættuleg villidýr í eigu annarra, hvort heldur er í vinnu eða frítíma, tekur áhættu, sem samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttarins kann að valda því að hann missi rétt til bóta.14 Hér á landi eru ekki hættuleg villidýr og vart verða gæludýr þau, sem hér eru haldin, eða búfénaður almennt talinn 95 12 Sbr. Arnljótur Björnsson: Skaðabótaréttur. 2. útg. Reykjavík 1999, bls. 23. 13 Sbr. Arnljótur Björnsson: tilvitnað rit bls. 14. 14 Sbr. Arnljótur Björnsson: tilvitnað rit bls. 128.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.