Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 100

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 100
1. INNGANGUR Mestan hluta 20. aldar var kenningin sú í íslenskri lögfræði að dómstólar gætu ekki hróflað við frjálsu mati stjórnvalda og að endurskoðun þeirra á ákvörðunum, þar sem stjórnvöldum hefur verið falið fullnaðarúrskurðarvald, væri takmörkuð. Í Stjórnarfarsrétti frá 1955 benti Ólafur Jóhannesson t.d. á að varðandi matskenndar ákvarðanir eða „úrskurð um meðferð lögleyfðs valds“ væri aðalreglan sú að dómendur gætu ekki hreyft við ákvörðun stjórnvalds sem væri undir frjálsu mati þess komin nema til þess væri sérstök heimild í löggjöf.1 Í öllum tilvikum mætti bera það undir dómstóla hvort mál ætti að sæta fullnaðarúrlausn framkvæmdarvalds eða dómstóla. Kæmust dómstólar að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri fullnaðarúrlausn gætu þeir ekki haggað ákvörðun sem að öðru leyti fullnægði lagaskilyrðum, væri í réttu formi, réttra aðferða hefði verið gætt o.s.frv.2 Hann gekk þannig út frá því að með skýru lagaákvæði væri hægt að undanþiggja stjórnvaldsákvarðanir úr- lausn dómstóla. Þessar kenningar um matskenndar ákvarðanir annars vegar og fullnaðarúrskurðarvald hins vegar voru taldar helstu tvær takmarkanirnar á endurskoðunarvaldi dómstóla að því er snerti stjórnvaldsákvarðanir. Þetta var sprottið upp úr hugmyndum frá miðri 19. öld um það „að dómendum [væri] aðeins ætlað að úrskurða um lögmæti embættisathafna, en eigi um réttmæti þeirra. Þeim [væri] með öðrum orðum, ætlað að dæma um takmark valdsins, en eigi um meðferð lögleyfðs valds, hvort því hefði verið beitt með sanngirni og skynsemi“.3 Grein þessi er sprottin af því að ég var beðin um að halda fyrirlestur um úrskurðarvald dómstóla um matskenndar stjórnvaldsákvarðanir og um ákvarðanir þar sem stjórnvöldum hefur verið falið fullnaðarúrskurðarvald með lögum. Vegna þess sem hér var rakið er efni hennar hins vegar í raun ekki end- urskoðun dómstóla á matskenndum stjórnvaldsákvörðunum annars vegar og þeim núorðið fáu ákvörðunum sem eru teknar af stjórnvöldum sem hefur verið falið fullnaðarúrskurðarvald hins vegar, heldur hugsanlegar takmarkanir á endurskoðunarvaldi dómstóla að því er snertir stjórnvaldsákvarðanir. Til að nálgast þetta efni verður fyrst brugðið upp mynd af því hvernig end- urskoðun dómstóla á stjórnvaldsákvörðunum er háttað. Hún verður fyrst og fremst byggð á nýlegum dómum. Þróunin hefur gengið í þá átt að æ minni tak- markanir á endurskoðunarvaldi dómstóla eru viðurkenndar4 en hér verður skoðað hvort einhverjir þættir stjórnvaldsákvarðana verði ekki endurskoðaðir. Myndin af endurskoðunarvaldinu verður svo sett í samhengi við þrígrein- ingu ríkisvaldsins yfirleitt og hlutverk dómsvaldsins sérstaklega. Í framhaldi 1 Ólafur Jóhannesson: Stjórnarfarsréttur, bls. 328. 2 Sama heimild, bls. 317. 3 Sama heimild, bls. 317. 4 Sjá almennt Starfsskilyrði stjórnvalda, bls. 93 og Jon Andersen: „Domstolsprøvelse“. Forvalt- ningsret. 2. útg. 2002, bls. 826. 100
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.