Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Page 110
þeirra samkvæmt felst í stjórnarskrárákvæðum. Lykilatriðið er þó þetta: Árið
1995 var talið að 70. gr. festi það í stjórnarskrá að dómstólar ættu a.m.k að
endurskoða hvort málsmeðferðarreglna hefði verið gætt, ákvörðun verið
byggð á lögmætum sjónarmiðum og hvort hún væri í lögmætu formi. Það er
hins vegar ekkert í 60. gr. stjórnarskrárinnar né 70. gr. hennar sem kemur í veg
fyrir að dómstólar endurskoði að fullu alla þætti stjórnvaldsákvarðana. Eina
ákvæði stjórnarskrárinnar sem hugsanlega gæti takmarkað endurskoðunarvald
þeirra er 2. gr. sem segir m.a. að forseti og önnur stjórnarvöld fari með fram-
kvæmdarvaldið. Við erum sem sé komin aftur að þrígreiningunni og því hvað
felst í dómsvaldinu annars vegar og framkvæmdarvaldinu hins vegar.
5. ÁKVÆÐI SEM FELA STJÓRNVÖLDUM FULLNAÐARÚRSKURÐ-
ARVALD
Enn hefur ekkert verið fjallað um ákvæði sem fela stjórnvöldum fullnaðar-
úrskurðarvald. Um þau er fátt eitt að segja. Slík ákvæði eru fá. Ólafur
Jóhannes Einarsson taldi saman árið 1999 að frá 1990 hefðu aðeins þrjú ný
slík ákvæði verið fest í lög.34 Síðan þá hafa tvö bæst við – eitt í lögum sem eru
eldri að stofni til en voru endurútgefin og eitt um úrskurðarvald yfirskatta-
nefndar um olíu- og kílómetragjald, en það hafði nefndin einnig samkvæmt
eldri lögum.35 Mörg slík eldri ákvæði hafa verið meira eða minna hunsuð, sum
vegna þess að það er ekkert annað við þau að gera.36 Að sumu leyti eru þessi
ákvæði því deyjandi vandamál í stjórnsýslurétti. Í skýrslu um Starfsskilyrði
stjórnvalda frá 1999 er byggt á því, að erfitt sé að rökstyðja það að fólk eigi
ekki að geta leitað til dómstóla um það hvort matskenndar ákvarðanir hafi
verið lögmætar og byggðar á málefnalegum sjónarmiðum og leggur því til að
athugað verði hvort ekki eigi að fella slík ákvæði úr lögum.37
Árið 1992 komst Davíð Þór Björgvinsson að þeirri niðurstöðu að endur-
skoðun dómstóla væri svipuð óháð því hvort um slík ákvæði væri að ræða.38
Í Danmörku eru svona ákvæði talin hafa þau áhrif að dómstólar fari heldur
grynnra ofan í mat stjórnvalda heldur en þeir myndu ella gera.39 Ég held, að
34 Ólafur Jóhannes Einarsson: Endurskoðunarvald dómstóla á matskenndum stjórnvalds-
ákvörðunum. (Lokaritgerð við HÍ) 1999, bls. 22.
35 Sjá 34. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, en þau voru að stofni til lög 92/1976.
Lög nr. 87/2004 um olíugjald og kílómetragjald o.fl. vísa bæði til þess að unnt sé að kæra tilteknar
ákvarðanir ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar samkvæmt ákvæðum laga um yfirskattanefnd og til
þess að úrskurður yfirskattanefndar sé fullnaðarúrskurður (sjá 2. og 4. mgr. 18. gr. laganna).
36 Í þeim hópi er 15. gr. laga um yfirskattanefnd nr. 30/1992. Fyrsta málsgrein hennar er svohljóð-
andi: „Úrskurður yfirskattanefndar er fullnaðarúrskurður um skattfjárhæð. Ágreining um skatt-
skyldu og skattstofna má þó bera undir dómstóla“.
37 Starfsskilyrði stjórnvalda, bls. 150-151.
38 Davíð Þór Björgvinsson: „Lagákvæði á sviði sifjaréttar sem fela stjórnvöldum úrskurðarvald“.
Afmælisrit – Gizur Bergsteinsson níræður 18. apríl 1992, bls. 206.
110