Tímarit lögfræðinga - 01.06.2005, Side 114
frumvarpinu yrði breytt í meðförum þingsins. Formaður vék því næst að
úrskurði Samkeppnisráðs, nr. 5/2004, þar sem LMFÍ var sektað um kr.
3.500.000 vegna meintra brota á 10. og 12. gr. samkeppnislaga við gerð kostn-
aðargrunns félagsins. Gerði Gunnar grein fyrir helstu málavöxtum og tilefni
kostnaðargrunnsins og lýsti jafnframt undrun sinni og vonbrigðum með niður-
stöðu Samkeppnisráðs.
Að lokinni ræðu formanns kynnti Jóhannes Karl Sveinsson hrl. helstu nið-
urstöður úr vinnu stjórnar félagsins í tengslum við „Access to Justice“ innan
stjórnsýslunnar, þ.e.a.s. það hvort ómöguleiki á að fá lögfræðikostnað málsað-
ila borinn uppi af hinu opinbera í ágreiningsmálum er varða stjórnsýsluna, tak-
marki aðgang að „réttlæti“. Jafnframt hvort sú staða sé í andstöðu við hug-
myndir um raunverulegt jafnræði aðila kærumála í stjórnsýslunni. Fór Jóhannes
yfir helstu reglur sem gilda um gjafsókn fyrir dómstólum, sem hann taldi að
skiluðu hlutverki sínu. Hann benti á að vandamálið væri hins vegar sá kostnaður
sem félli á einstaklinga þegar þeir þurfa að gæta hagsmuna sinna við rekstur
mála fyrir úrskurðarnefndum í stjórnsýslunni. Jóhannes kvað að erfitt væri fyrir
borgarana að sleppa skaðlausa frá málarekstri innan stjórnsýslunnar í flóknum
málum þar sem sérfræðiaðstoðar væri þörf. Taldi hann nokkrar leiðir færar til
að bæta úr þessu. M.a. kæmi til greina að veita viðkomandi úrskurðaraðila
úrskurðarvald um kostnað með tilheyrandi breytingum á einstökum lögum.
Einnig kæmi til greina að hafa einhverskonar „miðlægt“ afgreiðsluferli á kostn-
aðarmálum, þar sem lagðir væru fram reikningar til ákvörðunar. Loks kæmi til
greina að bæta inn almennu ákvæði í stjórnsýslulög sem heimilaði að kær-
endum yrði ákvarðaður kostnaður af því að halda uppi kærum sem ná fram að
ganga. Taldi Jóhannes þriðju leiðina heppilegasta en það yrði væntanlega hlut-
verk næstu stjórnar að kynna og setja fram nánari hugmyndir.
Að lokinni ræðu formanns og kynningu Jóhannesar Karls Sveinssonar gerði
Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri félagsins, grein fyrir ársreikningi þess og
Námssjóðs fyrir árið 2003, en reikningurinn fylgdi prentaðri ársskýrslu stjórn-
arinnar. Fram kom í máli framkvæmdastjórans að afkoma félagsins í heild hefði
verið jákvæð og tekjur umfram gjöld numið tæpum tveimur milljónum króna á
rekstrarárinu. Hins vegar hafi útistandandi árgjöld og skuldir hjá viðskipta-
mönnum hækkað nokkuð. Að lokinni umfjöllun og umræðum um reikning
félagsins fyrir árið 2003 var hann borinn undir fundarmenn og hann sam-
þykktur samhljóða.
2. Kosningar
Gunnar Jónsson hrl. gaf kost á sér til endurkjörs í stöðu formanns félagsins
og var hann sjálfkjörinn. Auk Gunnars voru kjörnir í aðalstjórn til næstu tveggja
ára þau Jóhannes Albert Sævarsson hrl. og Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl., en
áfram sitja í stjórn Ólafur Rafnsson hdl. og Ragnheiður Bragadóttir hdl.
Í þriggja manna varastjórn voru kjörin Stefán Geir Þórisson hrl., Heimir Örn
Herbertsson hdl. og Helga Jónsdóttir hdl.
114