AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 13

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Page 13
 Grafarkirkja á Höfðaströnd. Frágangur þaks og veggjar var þannig að vatn átti jafnvel auðvedlari leið niður í veggina og inn í húsin en fram úr sundunum. Raki í veggjum, gólfi og timbur- verki hefur án efa gert torfhúsin erfið til íveru. Bygg- ingaraðferðir torfhúsa verða því ekki yfirfærðar til ný- bygginga án nýhugsunar. Sá möguleiki að nota torfhús að einhverju leyti sem fyrirmynd nýbygginga er vissulega fyrir hendi eins og dæmin hér að framan sanna. Nokkur dæmi eru þess að reynt hefur verið að byggja hús með torfhús sem fyrirmynd. í flestum tilfellum hefur ekki tekist sem skyldi með þær byggingar því reynsla og þekking á gerð og eðli torfveggja hefur ekki verið nýtt við byggingu þeirra. Flins vegar hafa torf- og grjóthleðsl- ur verið mikið notaðar undanfarin ár við umhverfis- mótun og frágang lóða. Flönnun og staðsetning bygginga í landslagi er sér- staklega krefjandi í viðkvæmri náttúru íslands. Torfhúsin féllu og falla vel að landslagi, ekki bara fyrir það að þar runnu saman í eitt umhverfi og hús, gerð úr sömu efnum, heldur einnig vegna þess að húsum var valinn staður út frá aðstæðum á hverjum stað, landslagi, gróðri, snjóalögum o.fl. Nú er umhverfismótun og staðsetning bygginga í landslagi, bæði hvað varðar landbúnaðarbyggingar og ekki síst sumarbústaði, með slíkum hætti að undr- un sætir. Lítil tilfinning virðist vera fyrir landslagi, um- Bænahúsið á Núpsstað, hverfi, efnisvali eða litavali. Kjarri vaxnar hlfðar eru þaktar byggingum sem virðast vera nýlentar á staura- samstæður sem dreift hefur verið af handahófi um hlíðarnar. Sólpallar umhverfis húsin, sem oft líkjast bryggjusporðum, undirstrika þátilhneigingu nútíma- manna að gnæfa yfir og ráða landinu í stað þess að vera hluti þess og falla að því. Ftér er vissulega verk að vinna og hægt að sækja lærdóm og fyrirmyndir í smiðju forfeðranna. Umhverf- ismótun og hönnun bygginga í viðkvæmri náttúru landsins verður að gera með tilfinningu fyrir hverjum stað og umhverfi hans. ■ 11

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.