AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 18
Mynd 2. Sýnir að hvaða marki vatnsfælur ná að hindra
leka í gegnum sprungur. Ofan línuritsins lekur, neðan
þess lekur ekki.
um hvernig efnin skulu notuð og við hvaða aðstæður
þær henta. Á mynd 2 er sýnt upp að hvaða marki
vatnsfælur ráða við að stöðva leka í gegnum sprun-
gur.
Mynd 3. Sýnir vikursteypu, sem er ekki vatns-
dræg, hún er léttari en vatn en nokkur hús hafa
verið byggð úr slíkri steypu hér á landi.
LÉTTSTEYPUR
Á íslandi er til mikið magn léttra fylliefna, gjall og
vikur. Einkum er það vikurinn sem býr yfir einstökum
eiginleikum. Ekki hefur þótekistað nýta þásem skyldi
til húsagerðar og spillti mjög fyrir notkun hans fyrr á
árum, þegar þekking á efninu var ófullnægjandi og
reynslan þvf ekki nógu góð. Helsti ókostur vikur-
steypu er mikil rakadrægni og þar með aukin hætta
á grotnun. I rannsóknum sem gerðar voru á 9. ára-
tugnum tókst að þróa vikursteypu sem ekki var raka-
dræg og þjó því yfir ákjósanlegum eiginleikum til
húsagerðar og framleiðslu á hinum margvíslegustu
einingum. Rannsóknirnar voru gerðar í samstarfi við
B.M. Valláog sænsktfyrirtæki, Delcon, og liggja nið-
urstöður fyrir í skýrslu hjá Rb. Rannsóknaskáli við
Rb. var byggður sem tilraunahús og hafa nokkur
önnur hús verið byggð úr slíkri steypu.
Rannsóknirnar vöktu alheimsathygli þar sem þeim
voru gerð skil í áströlskum sjónvarpsþætti sem
sýndur hefur verið um heim allan og fór Haraldur
Ásgeirsson, fyrrv. forstjóri Rb, á þessu ári sem ráð-
gjafi til Equador vegna þessa en þar er fyrir hendi
mikið magn vikurs. Auk framannefndrar þróunar hafa
verið, í samstarfi við Sementsverksmiðjuna og Jarð-
efnaiðnað hf., þróaðar vatnsfælnar vikurmúrblöndur
sem prófaðar hafa verið á göflum bygginga Rb.
Niðurstöður þessara rannsókna eru einnig fáanlegar
í skýrslu. í gegnum framannefndar rannsóknir hefur
skapast sérþekking á sviðinu sem býður upp á
möguleika á nýjungum í byggingarháttum og nýjum
framleiðsluvörum.
SEIGJUEIGINLEIKAR HRÁSTEYPU - ÍBLÖNDUN-
AREFNI - HÁSTYRKLEIKASTEYPA
Gæði harðnaðrar steypu byggjast á eiginleikum hrá-
steypunnar. Steypunni verður að koma í mót og fæst
nauðsynleg þjálni venjulega með því að blanda í
hana vatni langt umfram það sem nauðsynlegt er
fyrir efnahvörf í steypunni og hörðnun hennar. Við
þetta rýrna gæði hennar verulega. Á seinni árum hafa
verið þróuð ýmiss konar þjálniefni til íblöndunar í
steypu. Vandamálið hefur verið m.a. að ekki hefur
verið fyrir hendi búnaður og tækni til þess að mæla
áhrifin á flæðieiginleika steypunnar á viðunandi hátt.
Starfsmaður Rb, dr. Ólafur Wallevik, þróaði slíkan
búnað í doktorsnámi sínu við tækniháskólann í Þránd-
heimi. Hann hefur haldið áfram þróuninni sem starfs-
maður Rb og er búnaðurinn nú framleiddur hér á
16