AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 42

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Síða 42
ÍBÚÐAHVERFI ÁN EINKABÍLA í nokkrum evrópskum borgum er nú í undirbúningi að byggja íbúðahverfi þar sem ekki er gert ráð fyrir að íbúar eigi bíla og því ekki gert ráð fyrir nema mjög takmörkuðum fjölda bifreiðastæða (eingöngu fyrir gesti). Dæmi um borgir sem eru að fara af stað með þessa tilraun eru Berlín, Amsterdam og Bremen. Hugmyndin að slíku hverfi í Bremen kviknaði á nám- skeiði í skipulagsfræðum í háskólanum í Bremen Nýju sporvagnarnir í Brimaborg. 1991. Michael Glots-Richter skipulagsfræðingur/ verkfræðingur átti hugmyndina en hann er deildar- stjóri umhverfisdeildar hjá Borgarskipulagi Bremen- borgar. Árið 1992 ákváðu skipulagsyfirvöld í Bremen að kynna hugmyndina opinberlega og auglýsa eftir fólki sem áhuga hefði a að búa í slíku hverfi. Um 300 fyrir- spurnir bárust og mikill áhugi er fyrir hugmyndinni. Þess má geta að á um 35% heimila í Bremen er ekki einkabíll, það er heldur hærra en meðaltal í Þýska- landi, sem er 27%. Ákveðið var að taka 2,6 ha landskika á Hollerland- svæðinu undir slíkt hverfi. Samkvæmt tillögu að deili- skipulagi verða um 250 íbúðir í hverfinu í fjölbýli og raðhúsum. Hverfið er skipulagt og byggt af einka- aðilum. í ár er unnið að því að gera svæðið bygging- arhæft og áætlað er að hverfið verði fullbyggt árið 1996. Mikill sparnaður á landi og tilkostnaði er samfara því að takmarka fjölda bílastæða, jafnframt fæst meira „Skipulagsuppdráttur af Hollerland", íbúðahverfinu í Brimaborg, þar sem ekki er gert ráð fyrir bílastæðum fyrir íbúa. rými fyrir byggingar og opin svæði. Allt að 1/4 af íbúðareitum fer undir bílastæði og hvert stæði kostar 500 þúsund krónur. Hringvegur um hverfið fyrir slökkvilið, vöruflutninga o.fl. er 3,5 m breiður. í Hollerland- hverfinu er aðeins gert ráð fyrir 30 gesta- stæðum, en stæðin ættu að vera 200 samkvæmt almennum kröfum Bremenborgar (0,8 stæði á íbúð). Verktakar telja sig spara um 120 milljónir á fækkun bílastæða í Hollerland- hverfinu. Hollerland-hverfið er við hliðina á nýrri sporvagnaleið, þaðan er stutt í strætisvagna, atvinnusvæði, þjón- ustumiðstöð og í Bremen- háskóla. Talsmenn hverf- isins telja þetta vera nauðsynlegar forsendur fyrir því að íbúar hverfisins geti lifað án einkabíls. Lögfræð- ingar Bremenborgar telja ekki stætt á því að banna fólki sem býr í slfkum hverfum að eiga bfl, þótt það eigi ekki rétt á bílastæðum í hverfinu. Fróðlegt verður að fylgjast með framgangi Hollerland hverfisins í Bremen sem verður líklega fyrsta „bíllausa hverfið” í þýskri borg. ■
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.