AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 52
SVEINN JÓNSSON, VÉLSTJÓRI
GUSTAV
LORENTZEN
- in memoriam
Prófessor Gustav Lorentzen andaðist á
sjúkrahúsi í Þrándheimi þann 7. ág. sl..
Hann varð áttræður þann 13. janúar sl.
Kælitæknimenn á íslandi hafa hrifist af
kenningum hans og rökfestu vegna fjölda greina
sem hann hefur skrifað í helstu kælitæknirit veraldar
síðustu 50 árin.
Norræna varmadæluráðstefnan var haldin hér í
Reykjavík 1987 dagana 22. til 25. júní og var sérstak-
ur utandagskrárumræðufundur settur 24. júní að
frumkvæði eftirfarandi kæli- og varmadælumanna:
Prófessor Gustav Lorentzen N.TH.-SINTEF, Þránd-
heimi - Per Danig frá D.T.H., Danmörku - Erling Gust-
avsen formaður norska kælitæknifélagsins - Jonny
Andersen Kylbransens samarbetsstiftelse (Svíþjóð
K.Y.S.) - Ingvar Tyllström ritstjóri Scan-Ref - Sveinn
Jónsson S.J. Frost h.f. - Páll Lúðvíksson frá Nýju
teiknistofunni - María J. GunnarsdóttirfráOrkustofn-
un - Gísli Júlíusson, deildarverkfræðingur frá Lands-
virkjun.
Umræðuefni þessa fundar var kynning á starfsemi
norrænna kælitæknifélaga og ennfremur var rætt um
brýna þörf á stofnun kælitæknifélags á íslandi (sem
stofnað var skömmu síðar).
Nauðsynlegt tækniupplýsingastreymi og samræmd-
ar aðgerðir til lausnar KFK-vandamálum. Fjallað var
einnig um væntanlega Montreal - ráðstefnu á vegum
U.N.E.P. sem var haldin í september það ár (1987)
og markaði umhverfisverndunartímamót með al-
þjóðasáttmála um ózoneyðandi efni.
Prófessor Gustav Lorentzen, aldurforsetinn við N.TH.
- SINTEF í Þrándheimi, er frumherji í kælitækni á
Norðurlöndum, stofnandi stærstu stofnunar í kæli-
tæknirannsóknum, sem fyrirfinnst í hinum frjálsa
heimi. í hlutverki sínu sem ráðgjafi í umhverfismálum
hefur hann verið kappsamur talsmaður um notkun
ammoníaks og andmælandi freonefna, sem hafa
slæm áhrif á ózonlagið sem verndar jarðarbúa og
allt lífríkið gegn of mikilli útfjólublárri geislun sólar.
Freonefnin hafa einnig gróðurhúsaáhrif sem talin eru
óæskileg fyrir lofthjúp jarðar. Þetta sýnir nokkrar hliðar
þeirrar persónu sem býr í prófessor Gustav Lorent-
zen, sem hefur starfað við kælitæknideild N.TH,- SIN-
TEF og skarað fram úr í mörgum þáttum meðal framá-
manna í heimi kælitækninnar. Hávaxinn og herða-
breiður hefur hann ennfremur kjark til gagnrýni sem
hann sjaldan gerir þá á mjög hugkvæman hátt. Samt
er hann enginn stjórnsýslumaður. „Fólk sem ekkert
veit um hitaorku ætti að þegja, þegar rætt er um orku-
mál,“ sagði hann eitt sinn er hann ræddi við þing-
menn norska þingsins. Hann gefur líka framleiðend-
um freonefna tóninn, eins og „fimmtíu ára rangfær-
sla í upplýsingamiðlun og gríðarlegri hagsmunapóli-
tík hefur komið í veg fyrir notkun margra nýjunga,
jafnframt því sem hún heftir framgang alls kæliiðn-
aðarins".
„Ég get ekki lagt fram mínar skoðanir á hlutlægan
hátt,“ er hnitmiðað svar Gustavs Lorentzens þegar
hann hefur verið spurður, hvers vegna hann sem fjöl-
hæfasti maður kælitækni á Norðurlöndum, hafi ekki
áður virkjað stöðu sína opinskár á opinberum vett-
50