AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 60

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 60
k------600 -----)( - *•<> —Jf--- Bjarnaneskirkja, grunnmynd. Bjarnaneskirkja, langskurður. Ur Bjarnaneskirkju í Nesjum,A-Skaftafellssýslu. Hér fór saman tilraun með birtu og form ásamt glímu við notkun steinsteypunnar og mótasmíðina.burður- inn felst í sjálfberandi þunnri bogamyndaðri skel, sem gefur kirkjunni form sitt. Eins og áður segir, taldi Hannes grundvallarviðhorf okkar arkitektanna eiga að vera „að reyna að kryfja verkefnin til skilnings og kryfja eiginleika byggingar- efnanna svo þau verði arkitektunum undirgefin til lausna". Við hæfi er, þegar hér er komið sögu, að fjalla nokk- uð umKjarvalsstaði. Deilumálið skal látið liggja milli Bjarnaneskirkja, þverskurður. hluta. Þegar skoðuð er fyrsta hug- myndin að húsinu er augljós nokkuð tilgerðarleg gamansöm lausn, en mjög vandasöm í útfærslu. Ég dáðist að sjálfstjórn Hannesar, þegar hann lagði þá hugmynd til hliðar eftir að hún hafði verið kynnt almenningi og valdi þá lausn, sem húsið byggðist eftir. Skipting hússins í tvo sali, annan fyrir skammtímasýningar og hinn fyrir langvarandi sýningar.er eðlileg og góð. Hugmyndin um meiriháttar veitinga- rekstur reyndist illa en nú nýtist það rými til sýninga ágætlega. Uppbygging hússins með þakkanta borna uppi af römmum er sýnileg hið ytra og verkar sem leifar af fyrri hug- mynd, en skilgreinir byggingarlagið mjög vel. Gluggalausir útveggir sýningarsalanna eru aðeins frítt stand- andi skermar. Birtan er ofanlýsing, sem að vísu hefur valdið ágreiningi. Tengibyggingar eru í raun glerskálar, sem nýtast vel með mikilli hliðarbirtu. Allir eru sammála um ágæti ofan- lýsingar í sýningarsölunum. Deilt er um fyrirkomulag. Meðfylgjandi uppdráttur sýnir „lamellu“-loft. En eins og Hannes sagði sjálfur dugir það ekki, vegna þess að sólin færist frá austri til vesturs. Þess vegna breytti hann loftinu í kassettur, sem veita afskermun á sólarljósi úr öllum áttum. Inn í kassetturnar er síðan byggt breytanlegt raflýsingarkerfi ásamt möguleik- um á margháttuðu hljómburðarkerfi. Um deilurnar verður ekki rætt hér. Teikningarnar skýra sig sjálfar. Þá eru það verslunarhúsin við Laugaveg og Hús- gagnahöllin við Höfðabakka. Sameiginlegt þessum byggingum er breytilegt fyrirkomulag innréttinga. Hið sama má segja um lyfjabúðirnar, Holtsapótek, Vesturbæjarapótek og Garðsapótek. Byggingarnar við Laugaveginn eru á þröngum lóð- 58

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.