AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 63

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 63
eyðing á hálendi landsins, sem er ógnað með fjárbeit og fjölgun ferðamanna. Ferðamannaþjónustan verður sífellt mikilvægari fyrir efnahag þjóðarinnar og vilji íslendingar leggja áherslu á ímynd hins hreina og óspillta lands hefur verndun náttúru landsins einnig beint fjárhagslegt gildi. Á sama tíma ógnar fjöldi ferðamanna viðkvæmu vistkerfi landsins, og var undirbúningur hálendis- skipulags sem nú stendur yfir og samþættir land- notkun, ferðamannauppbyggingu og náttúruvernd orðinn tímabær fyrir löngu. EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐIÐ Umhverfisumræðan hefur fengið nýjan svip með samningnum um Evrópskt efnahagssvæði er gekk í gildi 1994. Fyrirsamninginn hafði Evrópusambandið ekki bein áhrif á umhverfisþætti EFTA- landanna, en með undirritun samningsins samþykktu EFTA-ríkin fimm hið svokallaða „fjórþætta frelsi sameiginlega evrópska markaðarins" og einnig altæk ákvæði er það varða, þar sem samningurinn kveður á um nán- ari samvinnu á öðrum sviðum, svo sem á sviði rann- sókna og þróunar, umhverfismála, menntunar og félagsmála. Samningurinn krefst þess að lög og reglur sem gilda á EES- svæðinu verði samræmd og samvinna sam- ningsaðila styrkt. Enn er þó leyfilegt fyrir einstök aðildarríki að viðhalda strangari reglum á sviði um- hverfismála, svo lengi sem þau stangast ekki á við viðskiptareglur samningsins. Ffvatt er til aukinnar samvinnu við stefnumótun og gerð framkvæmda- áætlana um umhverfið, samþættingar umhverfis- sjónarmiða vió aðra málaflokka, notkunar hagstjórnar í þágu umhverfisverndar og við lausn mikilvægra svæðisbundinna eða alþjóðlegra vandamála. Mengunarreglur EFTA-landanna verður að sam- ræma að lögum Evrópusambandsins enda uppfyllir íslensk umhverfislöggjöf ekki alls kostar kröfur Evr- ópusambandsins. Samningurinn krefst frekari úrbóta og strangari löggjafar um vinnslu úrgangs, verndun drykkjarvatns, loftmengun og fyrirbyggjandi aðgerðir fyrirtækja gegn mengun. EVRÓPUSAMBANDIÐ Grundvallarmarkmið umhverfislöggjafar Evrópusam- bandsins er að samræma lög og reglur á sviði um- hverfismála (svo sem mengunarmarka og varna) innan aóildarríkja sambandsins til að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði innan evrópska markaðarins. Þrátt fyrir að reglur Evrópusambandsins á sviði nátt- úruverndar og nýtingar náttúruauðlinda séu ekki hluti EES-samningsins, hafa samningsaðilar lýst áhuga á að starfa saman á því sviði í framtíðinni. Innan ES skapa umhverfismál sífellt stærri sess í starfsemi og reglugerðum sambandsins og hafa mikið pólitískt vægi og gæti slík þróun haft bein eða óbein áhrif á íslandi þar sem mörg helstu viðskiptalönd íslands eru í sambandinu. Það er því mikilvægt fyrir ísland að hafa þekkingu á kröfum og grundvallaratriðum umhverfislöggjafar Evrópusambandsins og að fylgjast grannt með þróun umhverfismála í öðrum Evrópulöndum. UMHVERFISÁÆTLANIR EVRÓPUSAMBANDS- INS Umhverfislöggjöf er tiltölulega nýr málaflokkur innan sambandsins, og stefna þess í umhverfismálum var fyrst kynnt 19731 fyrstu umhverfisáætlun sambands- ins (Environmental Action Programme). Síðan hafa fimm umhverfisáætlanir og yfir 200 tilskipanir verið kynntar, og umhverfismál voru innifalin í lögum sam- bandsins með Maastricht- samkomulaginu 1993. Umhverfisáætlanirnar eru mikilvægur þáttur í kynn- ingu á umhverfisstefnu sambandsins, nýir mála- flokkar og áherslur í umhverfismálum eru yfirleitt fyrst kynnt í áætlununum, svo og væntanlegar reglugerðir. Á fyrstu árum umhverfisstefnu sambandsins var megináhersla lögð á að leysa einstök mengunar- vandamál og að samræma mengunarstaðla. Nokkur breyting varð á umhverfisstefnu sambandsins með fjórðu umhverfisáætluninni, þar sem áhersla var lögð á mikilvægi þess að samþætta umhverfisvernd við aðra löggjöf sambandsins, svo sem atvinnumál, landbúnað og ferðamál. Fimmta umhverfisáætlunin „í átt að sjálfbærri þróun“, er gildir til aldamóta, er talin marka tímamót í þróun umhverfisstefnu sambandsins. í áætluninni er lögð áhersla á að öll stjórnunarstig aðildarlandanna taki þátt I að framkvæma stefnumál sambandsins og hvatt til betri samhæfingar á framkvæmdum rlkis- stjórna og sveitarfélaga á sviði umhverfisverndar. Athyglinni er þar sérstaklega beint að bæjar- og sveitarfélögum og hlutverki þeirra sem framkvæmd- araðila. Einnig leggur áætlunin frekari áherslu á að umhverfisþættir séu sameinaðir öðrum stjórnunar- sviðum og ákvarðanatöku, svo sem í „svæðastefnu“ 61

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.