AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Qupperneq 67
SUMARNÁMSKEIÐ ÍSARK 1995
Frá sýningu nemenda í Ásmundarsal.
Sumarnámskeið íslenska arkitektaskólans
ÍSARK var haldið 130. júní.Undirbún-
ingur hófst í desember 1994 og lauk í
byrjun júní.
Stjórn ÍSARK er: Jes Einar Þorsteinsson formaður,
Guðrún Guðmundsdóttir gjaldkeri, Jón Ólafur Ólafs-
son ritari, Guðjón Bjarnason og Jóhannes Þórðarson.
Starfsmaður er Dagfríður Halldórsdóttir.
Námskeiðið fór fram á ensku. Erlendir nemendur
komu til landsins 1,- 5. júní og gistu þeir meðan á
námskeiðinu stóð í heimavist Sjómannaskóla íslands.
Sumarnámskeiðið var sett 1. júní við hátíðlega athöfn.
Vinnustofur nemenda voru í Ásmundarsal, húsi Arki-
tektafélags íslands. Fyrirlestrar fóru fram í Norræna
húsinu og í Odda - húsi hugvísindadeildar Háskóla
íslands.
Leiðbeinendur á námskeiðinu voru: Forstöðumaður:
Dr. Maggi Jónsson, arkitekt FAÍ/ráðgjafi við Háskóla
íslands. Stanislas Fiszer, arkitekt/prófessor við há-
skólann í Nancy/meðlimur í frönsku arkitektaaka-
demíunni. Steven Holl, arkitekt/prófessor við Colum-
biaháskólann í New York. Carsten Juel-Christiansen,
prófessor í arkitektúr við Konunglegu dönsku lista-
akademíuna/gestaprófessor við Katalóníuháskóla.
Daniel Liebskind, arkitekt í Berlín/prófessor við
UCLA-háskólann í Kaliforníu. Juhani Pallasmaa, for-
stöðumaður arkitektadeildar Tækniháskólans í Hels-
inki. Aðstoðarleiðbeinendur: Guðjón Bjarnason,
myndlistarmaður/arkitekt FAÍ/kennari á námskeiði um
borgir og arkitektúr í Verona á Ítalíu og í New York.
Halldór Gíslason, arkitekt FAÍ/lektor við háskólann í
Portsmouth, Englandi. Fyrirlestra héldu: Juhani
Pallasmaa, „Arkitektúr í dýraríkinu” og „Sex temu fyrir
næsta árþúsund”. Carsten Juel-Christiansen,
„Rýmisverk”. Stanislas Fiszer, „Problematique; á
mótum þekkingar og málamiðlunar”. Steven Holl,
„Spurningar um skynjun: Fyrirbærafræði byggingar-
listarinnar”. Daniel Libeskind, „Handan við
múrinn”,auk þess héldu Einar Pálsson, mannfræð-
ingur og rúnafræðingur, og Guðmundur Sigvalda-
son, eldfjallafræðingur, fyrirlestra um efni sem tengd-
ist aðalverkefninu.
Nemendur sem flestir voru langt komnir í námi voru
18 talsins: 4 íslendingar í skólum í Bandaríkjunum,
65
JES EINAR ÞORSTEINSSON, ARKITEKT