AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 80

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.1995, Side 80
GUÐMUNDUR JÓNSSON, ARKITEKT I VÍKINGAGARÐURINN Formáli Guðmundur Jónsson fékk það verkefni að hanna Víkingagarðinn eftir að Norska sögu- sýningin í Lillehammer sem Guðmundur hannaði varð góðkunnug. Sögusýningin leiddi til að haft er samband við Guðmund víðsvegar að frá Noregi vegna verka er varða bæði stórsýningar í safnastíl og ekki minnst verkefni um hönnun menn- ingarmiðstöðva með tilheyrandi safnasýningum. Þau verkefni sem Guðmundur vinnur að núna eru m.a. eftirfarandi: Menningarmiðstöð/sjóminjasafn í Rörvik (Norður- Þrændalögum), drög að deiliskipu- lagi fyrir Rörvik, menningarmiðstöðin „Draugen Sentret" ásamt sýningu á Hamaröy (Norður - Noregi), Ólympíuleikasafnið í Lillehammer, sýning um Nóbels- skáldið Knut Hamsun í Hamaröy, ferðamiðstöó í Geirangursfirði ásamtsögusýningu (Vestur- Noregi), sýning um Alf Pröysen (landsfrægur vísnasöngvari), sýning um orkusögu Vestur-Noregs (Odda í Tysse- dal), sögusýning með sérstakri áherslu á miðaldir í Trondanes (Harstad, Norður - Noregi). VÍKINGAGARÐURINN Víkingagarðurinn er 25 hektara landssvæði sem sam- anstendur af eftirfarandi sviðsetningu: Aðkoma.kaup- vangur, vatn með bryggjusporði og víkingaskipi, að- seturbátasmiðs,„Þingvellir‘‘, grafhaugur, hestasvæði, jarlasetur, svæði fyrir bogfimi, og aðsetur „hrafna- stúlkunnar" Á svæðinu eru 10 byggingar, m.a. jarlasetur með smiðju og forðabúri, hreysi „hrafnastúlkunnar" graf- haugur með beinagrind forföður jarlsins og hests hans. Fagfólk og sögusérfræðingar deila mjög um hvernig byggingarstílar víkingatímans hafi verið í smáatrið- um, og verkefnið fyrir arkitektastofuna var því ærið 78

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.