Skírnir - 01.09.2008, Page 18
292
HALLDÓR BJÖRNSSON
SKÍRNIR
Fjórða úttekt IPCC
Þrír vinnuhópar standa að hverri úttekt. Hópur I fjallar um vís-
indasvið sem í grófum dráttum falla undir jarðeðlisfræði, þ.e.
eðlisfræði lofthjúpsins, veðurfræði, jöklafræði, haffræði o.s.frv.
Þessi hópur fjallar um orsakir loftslagsbreytinga og hversu miklar
þær geti orðið. Hópur II nær yfir önnur svið náttúruvísinda og þá
sérstaklega ýmsar undirgreinar líffræði — og einnig félagsfræði.
Þessi hópur leggur mat á afleiðingar loftslagsbreytinga á ýmis kerfi,
bæði náttúruleg og samfélagsleg. Hópur III leggur mat á leiðir til
að bregðast við loftslagsbreytingum, t.d. með því að draga úr los-
un. Hér verða stuttlega rakin helstu atriði í niðurstöðum hóps I,
en ýtarlegra yfirlit má finna í nýlegri skýrslu vísindanefndar um
loftslagsbreytingar.11
Fjórða úttektin rekur fyrst í stað hlýnun síðustu aldar og ýms-
ar umhverfisbreytingar henni tengdar. Á hundrað ára tímabili, frá
1906 til 2005 var hnattræn hlýnun um rúmlega 0.7°C (með óvissu-
mörkum er þessi tala á bilinu 0.56°C til 0.92°C). Af tólf hlýjustu
árum eftir 1850 eru ellefu frá síðasta tólf ára tímabili (þ.e. frá 1995
til 2006). Það er vægast sagt óvenjuhlýtt, því að á norðurhveli jarð-
ar á síðari hluta 20. aldar var líklega hlýrra en á nokkru öðru 50 ára
tímabili í a.m.k. 1300 ár. Köldum dögum hefur víðast hvar fækk-
að, og köldustu dagar eru nú hlýrri en áður. Heitum dögum hefur
hins vegar fjölgað og þeir eru nú heitari en áður. Á norðurheim-
skautssvæðinu hefur hlýnunin verið allt að tvöfalt skarpari en
hlýnun hnattarins í heild.
Á norðurhveli jarðar hefur snjóhula minnkað sérstaklega að
vori, en á suðurhveli eru litlar breytingar merkjanlegar. Hafísþekja
á norðurhveli hefur einnig minnkað síðustu áratugi, meira á sumrin
en að vetri til. Is og jarðvegur á sífrerasvæðum hefur hlýnað,
jarðíslagið hefur víða þynnst, en jarðvegslagið þar ofan á þykknað.
Þetta síðastnefnda hefur áhrif á stöðugleika jarðvegs og afrennsli á
sífrerasvæðum.
11 Sjá fyrsta kafla skýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar (Halldór Björns-
son o.fl. 2008) sem gefin var út af umhverfisráðuneytinu sumarið 2008.