Skírnir - 01.09.2008, Page 50
324
SVEINN EINARSSON
SKÍRNIR
hafði þá um haustið dvalist í Kaupmannahöfn þar sem hún naut
tilsagnar Kambans, var boðið eitt af hlutverkunum í Munkunum,
en hún svaraði í skeyti að þeir (þ.e. Leikfélagsmenn) skyldu fresta
verki Davíðs, því að Kamban kæmi. Þetta mun hafa verið í desem-
ber. I blaðaskrifunum kemur ennfremur fram að sumarið áður
(þ.e. 1926) hafði borist í tal milli Kambans og Kristjáns Alberts-
sonar að gaman væri að Kamban kæmi einhvern tíma og ynni með
íslenskum leikurum. Þetta virðist hafa verið lauslegt tal, en hins
vegar láðist Kristjáni sem þá var enn starfandi formaður að skýra
samstarfsmönnum sínum frá þessari í sjálfu sér álitlegu hugmynd.
Til að flækja málið enn frekar hafði Leikfélagið hug á að halda
upp á þrjátíu ára afmæli sitt á leikárinu og gerði það reyndar með
sýningum á fjórum af eftirtektarverðustu sýningum undangeng-
inna ára, Þrettándakvöldi, Á útleið, Ævintýrinu (þ.e. því franska)
og Afturgöngum. Félagið mun einnig hafa staðið í samningavið-
ræðum við Adam Poulsen um að koma aftur til starfa með félag-
inu þá um vorið, en af því varð þó ekki.38 Kom Poulsen ári síðar
og stýrði gamla siðbótarleiknum Sérhver í gerð austurríska skálds-
ins Hofmannsthal.
Þarna gekk einfaldlega ekki saman, Leikfélagsmenn neituðu að
ganga á gerða samninga og munu þeir sem komið hafa nálægt leik-
hússtjórn hafa fullan skilning á slíkri afstöðu. Var hún tilkynnt
Kamban þegar í svarskeyti daginn eftir að fyrsta skeytið barst í
janúar. Eigi að síður kom Kamban til landsins í byrjun febrúar, og
var þá, eins og áður segir, tilboð hans enn tekið fyrir á félagsfundi
þeim sem Indriði Waage mun hafa vikið af, og fjölskylda hans sat
hjá við atkvæðagreiðsluna. Leikfélagið sat þó fast við sinn keip.
Að því er virðist léði Kamban í fyrstu ekki máls á að setja upp að-
eins eitt verka sinna þá um vorið, sem hefði verið hugsanleg mála-
miðlun. Svo er og að sjá sem reynd hafi verið önnur málamiðlun
og stungið upp á að hann kæmi í staðinn með haustinu og ynni þá
með félaginu að einu eða fleiri verkefnum. Taldi Kamban á því
tormerki, því að honum hefði borist tilboð frá New York um að
38 Adam Poulsen hafði komið til íslands vorið 1925, leikstýrt Einu sinni var eftir
Drachmann og leikið hlutverk prinsins.